Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1985, Page 25

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1985, Page 25
Dyggðir og lestir milli ákveðins goða og bónda á ákveðnum bæ. Líklegast virðist að tengsl goða og bænda hafi oftast gengið að erfðum. Ungur goði sem tók við goðorði af föður sínum hafi tekið þingmenn hans í arf. Bóndasonur sem tók við búi af föður sínum hafi bundist tengslum við sama goða og hann. I rauninni eru samt ekki miklar heimildir um þetta. Og eitt dæmi er um það í Sturlunga sögu að tveir bræður samfeðra tilheyrðu hvor sínu goðorði.26 Annar þeirra, að minnsta kosti, hefur ekki fylgt dæmi föður síns. Ef bændur hefðu ekki þurft að reiða sig á goða sína um neitt, ef einu nauðsynlegu samskiptin við goðann hefðu verið að greiða honum þingfararkaup og ríða með honum til þings, þá er erfitt að ímynda sér að bændur hefðu einu sinni hirt um að hafa á hreinu til hvaða goðorðs þeir töldust. Þeir hefðu getað vanrækt þá skyldu sína að vera þingmenn einhvers goða. Goðarnir þurftu að hafa hlutverk sem var ekki aðeins nauðsynlegt fyrir samfélagið í heild, byggðarlag eða land, heldur hvern einstakan bónda. Þetta hlutverk var einkum að vernda þingmenn sína fyrir ófriði. Til þess að þörf væri á því hlutverki þurfti að ríkja sífelldur ófriðarandi. Slíkur andi þrífst væntanlega betur á stolti og hetjudýrkun en lítillæti og virðingu fyrir mannslífum. Hér kemur enn fleira til. Goðar 12. aldar héldu enga atvinnuheri eða lögreglu til að halda uppi friði og reglu og vernda þingmenn sína. Til þess þurftu þeir að reiða sig á fólkið á bæjunum í kringum sig. I rauninni er rangt að segja að goðar hafi verndað þingmenn sína. Til þess höfðu þeir engan mátt. Þeir voru aðeins það afl sem sameinaði sjálfsvörn þingmannahópsins. Því var lífsnauðsyn fyrir goða að þingmenn þeirra hlypu ekki hver í sína áttina til að bjarga eigin lífi áður en bardaginn hófst. Það var nauðsynlegt að hafa menn sem þótti skömm að því að flýja og fannst eitthvað koma til þess að hætta lífi sínu í bardaga. Þannig þarfnaðist þjóðskipulag goðaveldisins vissrar hernaðardýrkunar. Þessi túlkun á íslenska þjóðveldinu er aðallega sótt í grein mína, Goðar og bændur, sem birtist í Sögu árið 1972.27 Nú nýlega hefur amerískur fræði- maður, Jesse Byock, sett fram þá kenningu að íslensku höfðingjarnir hafi þrifist á ófriði í öðrum skilningi líka. Það hafi verið ábatasamt starf fyrir höfðingja að leysa deilur bænda, oftar en ekki hafi höfðinginn setið uppi með þá eign sem bændurnir deildu um.28 Séu þessar hugmyndir réttar, sem ég held að þær séu í aðalatriðum, styðja þær enn frekar það sem hér er haldið fram, að ófriður, stolt og óbilgirni hafi þjónað hagsmunum höfð- ingjastéttarinnar. A hinn bóginn skapar virðingarleysi fyrir mannslífum alltaf vandræði, og gangi það of langt getur það ógnað þeirri samfélagsreglu sem goðunum var ætlað að vernda. Það var kallað morð ef maður drap mann og gekkst ekki við því. Það var allt annað en víg og miklu verra. Fjórir flokkar skógar- 15
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.