Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1989, Blaðsíða 9

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1989, Blaðsíða 9
Adrepur ekki að ræða í þessu sambandi, því að þeir sem ég á hér orðastað við eru síður en svo fúsari til þess en aðrir að leggja fram hlut til sameiginlegra verkefna þjóða. Við erum ekki aðilar að mannvirkjasjóði Atlantshafsbandalagsins og leggjum ekkert fram til hans, og ekki hef ég heyrt utanríkisráðherra eða nokk- urn annan hreyfa tillögu um að við ættum að gera það. Ekki erum við Islend- ingar fúsari en hverjir aðrir til að hlíta alþjóðlegum samþykktum, til dæmis um hvalveiðar, ef við teljum að þær fari í bága við hagsmuni okkar. Ekki viljum við deila fiskimiðum okkar með Evrópubandalagsþjóðum, þó að við viljum kom- ast tollalaust með fiskinn okkar inn á markaði þeirra. Ekki vildum við sjá handboltamenn okkar keppa eingöngu í sameiginlegu liði NATO eða EFTA, og ekki mundum við fylgjast með slíku liði með sama áhuga og landsliði Is- lendinga, er það? Nei, á vissan hátt erum við Islendingar flestir mestu þjóðernissinnar og sár- nískir á það sem við ráðum sjálfir yfir. Við tímum til dæmis ekki að leggja neitt að ráði fram til þróunarhjálpar, þó að við séum ein af auðugustu þjóðum heims og höfum sjálfir notið þróunarhjálpar Dana þangað til fyrir aðeins rúmum 70 árum. Það lítur því hreint ekki út fyrir að við séum á leiðinni að ganga inn í aðrar þjóðir eða sameinast þeim. Ef við stöndum ekki vörð um sjálfstæði okk- ar, ræktum það og styrkjum, þá bíður okkar ekkert annað en að sökkva ofan í hjálendustandið á ný, í þetta sinn líklega í formi einhvers konar risavaxinnar herstöðvar. Er ekki kominn tími til að breyta um? Hjálenduviðhorfið er auðvitað langt frá því að vera einrátt hjá okkur. Þess vegna var aronskunni mótmælt harkalega, bæði frá hægri og vinstri í stjórnmál- um, þó að hún vilji sækja á aftur og aftur í nýjum myndum. En skýrasta dæmið um hvað við Islendingar eigum mikið af sjálfstæðum, ábyrgum og myndar- legum hugsunarhætti birtist í sjónvarpsmálinu á sjöunda áratug aldarinnar. Þá gerðist það, áður en íslendingar höfðu komið sér upp sjónvarpsstöð sjálfir, að herliðið á Keflavíkurflugvelli fór að senda sjónvarpsefni yfir allt höfuðborgar- svæðið og nágrenni þess, svo að náði til meira en helmings þjóðarinnar. Hópur manna úr öllum stjórnmálaflokkum, bæði stuðningsmenn og andstæðingar hersetunnar, tók sig þá saman um að mótmæla þessari innrás í menningarhelgi Islendinga. Þeir gerðu það svo eftirminnilega að rödd þeirra varð ekki þögguð niður. Það kom meðal annars í ljós í umræðum um sjónvarpsmálið að þingmenn og ráðherrar höfðu haldið fram furðulegum fjarstæðum þegar þeir voru að verja þá ákvörðun sína að leyfa Bandaríkjamönnum að stækka sjónvarpsstöðina úr 50 vöttum í 250. Þáverandi utanríkisráðherra, sem reyndar var þingmaður Al- þýðuflokksins, hélt því til dæmis blákalt fram vorið 1962 að minni stöðvar en 250 vött væru úreltar og fengjust ekki lengur. Síðar kom í ljós að ári síðar rak Bandaríkjaher fjölda stöðva frá einu vatti til 150 vatta, en 250 vatta stöðvar eða 135
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.