Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Page 23

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Page 23
lega sterkt ‘Svarthol’, og umfram allt að láta hann hafa þar lítið að snæða“ (IS/115-116), en Magnús mun hafa verið rómaður matmaður. Hafi skáldið hugsað sér að slíkur dvalarstaður yrði verðugt „víti“ fyrir guðsmanninn, hafa hugmyndir þess um helvíti sannarlega átt lítið skylt við þá mynd sem því er léð í karnivalískri hugmyndafræði. I grótesk-karnivalískri hefð hafa undirheimar frá upphafi tengst átveisl- unni. Þessi dvalarstaður framliðinna var hið dæmigerða karnival þar sem öllu er umsnúið með tilliti til hins ytra heims. Þeir sem æðstir voru í lifanda lífi verða lægstir í víti og öfugt. Þessu mynstri er dyggilega fylgt hjá Benedikt. Víti hans er gáskafullt eins og vera ber, þótt kosturinn sé kannski helst til hversdagslegur. Hér er eldað við hlóðir og athygli er vakin á skyrsá sem sýnist óræk vísbending um að ekki séu beinlínis konunglegar krásir á boðstólum. Þetta mun tengjast þeim ummælum Tschernings sem ýjað er að þegar Djöfsi setur ofan í við þennan þjón sinn sem á í megnustu erfiðleikum með að gera herranum til hæfis: Hvað er þetta Tscherning? allténd ertú svo klaufalegr — ég held ég megi muna þig þegar þú varst að hnýta í íslendinga í ríkisdegin- um“, (23) en þar hafði Tscherning látið sér þessi orð um munn fara: „Vér höfum stælt íslendinga upp til ofdælsku með öllu eftirlætinu (?!), vér kennum sumum þeirra hér niðri betra mataræði en saltfísksátið, en þá taka þeir að rembast og þykjast eiga til fjár að kalla hjá oss“ (IS/116). Er þar átt við kröfu Jóns Sigurðssonar til handa íslendingum sem styrinn stóð um. Fyrir þessi um- mæli má hinn háttsetti embættismaður dönsku krúnunnar sæta því að vera kirfílega aftignaður í helvíti, þar sem hann er gerður að lúðursveini og fyrirskipað að „slá fretinn, þegar maður drammaðist.“ „Ih Gud bevares, herra Djöfull! Þér hafið jú ævinlega pródúcérað yðr sem þann sterkasta latínuhest" (21), segir Frater fullur aðdáunar á hinum fjöl- tyngda Lúcifer. Hrósyrði Fraters er áreiðanlega ekki valið út í bláinn, því að í næsta kafla sjáum við Lúcifer koma þeysandi á Sprengisand með Ögmund dytt á bakinu. Við lestur kaflans „Á Sprengisandi" fer varla hjá því að lesandanum komi í hug samnefnt ljóð Gríms Thomsens. Samkvæmt Andrési Björnssyni fór Grímur um Sprengisand árið 1862 og orti hann ljóð sitt í tilefni af þeirri för.9 Sameiginlegt með ljóði Gríms og Sprengisands-kafla Benedikts er — auk sögusviðsins — gandreiðarþemað og handanheimsöfl- in. En þar sem Sprengisandsævintýri Benedikts ólgar af fjöri og hástemmdur söngur drísildjöfla glymur í hrjóstugri auðninni — sem auðsýnilega er ætlað að undirstrika ófrjóa stefnu skandínavismans — er ljóð Gríms þrungið óhugnaði og ótta við hin ókennilegu öfl og endurspeglar firrta sál í óvin- TMM 1994:3 21
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.