Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Side 37
ar málara af Níelsi og er þar dálítið lesmál um hann. Þar segir meðal annars:
„Níels skáldi var vel greindur en mjög einrænn. Hann hafði í ungdæmi sínu
lært eitthvað í latínu, enda var hann mjög drjúgur af lærdómi sínum og
„lesningu“.“ Ekki er gott að segja hvernig latínulærdómi þessum hefur verið
háttað né hve mikill hann var, en Níels þekkti að minnsta kosti Sallustius og
virðist hafa lesið Schiagraphia Hálfdanar Hólarektors (141). Einnig slettir
hann stundum latneskum hugtökum í kvæðum sínum (Moría, taurus o.fl.).
Sagt er að skólasveinar hafi viljað prófa latínulærdóm Níelsar og beðið hann
að íslenska texta effir Sesar (sbr. PEÓ, 81). Gerðu þeir honum til stríðni að
velja einn strembnasta kaflann sem völ var á, enda stóð hann í karlinum. Ef
til vill bendir þetta til að Níels hafi kunnað meira en hrafl úr því sveinar lögðu
fyrir hann það erfiðasta sem þeir þekktu. En dönsku hefur Níels áreiðanlega
kunnað.
Loks má geta þess að Níels skáldi hefur verið nokkuð ofstækisfullur eða
að minnsta kosti afdráttarlaus í skoðunum. Þetta kemur t.d. fram í skrifum
hans um Sigurð Breiðfjörð, sem hann kallaði „svín“ í einni vísunni. Og í
eftirfarandi kviðlingi, sem einnig er beint til Sigurðar, sést berlega hve
níðskældinn Níels gat verið: „Þú hefir lengi, fól og flón, / fæst illt sparað
vinna, / reynst æ böðull, tálgröf, tjón / tilbiðjenda þinna“ (135).
Rit Níelsar
Nú væri ekki verið að fjalla hér um Níels skálda ef hann hefði aðeins verið
skringimenni — hann er meira. Níels samdi ósköpin öll af kveðskap, og
aðeins fátt af því hefur verið prentað. Ósagt skal látið hvort rímur hans hafa
farið víða en eitthvað hafa þær þó verið skrifaðar upp. Finnur Sigmundsson
lýsir umfangi ljóðmæla hans svo:
í handritasafni Landsbókasafnsins er talsvert á annað hundrað binda,
sem innihalda fleiri eða færri kvæði eða rímur eftir Níels skálda. Flest
eða öll hin meiri kvæði hans eru þar í eiginhandarriti. Ljóðabálkar
trúarlegs og heimspekilegs efnis eru mestir að fyrirferð, þá rímurnar,
en minnst fer fyrir tækifæriskvæðunum. (...) Mesta safh af kvæðum
Níelsar á einum stað er í Lbs. 1490,4to. Sú bók er alls 544 blaðsíður,
þéttskrifaðar og tvídálka, og er hún öll með hendi Níelsar, að undan-
skildum 10 síðustu blaðsíðunum, skrifuð á efri árum hans. (11)
Nú hefur undirritaður ekki nema að sáralitlu leyti kynnt sér þetta gríðarlega
lesmál, en þó skal geta um fáein forvitnileg verk Níelsar. Einn kvæðabálkur-
inn heitir „Bakkus og Naide“ og er bindindiskvæði. Andúð hafði Níels á
misbrúkun áfengis og einkum þó þegar mjöðurinn vildi sullast um of saman
TMM 1994:3
35