Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Side 44

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Side 44
valhent að ógleymdum hrínanda, en dæmið um hrínanda hljóðar svo: „Vor er sökin, votta rökin, / vígs um hauður rauða; / hegnir syndin svo mann- kindin / særist nauðum dauða.“ Þessi frumskógur tilbrigða er forvitnileg heimild um þróun bókmennta- forms og það stig sem rímnagerð komst á á síðustu öld, en raunar skiptu vísnaafbrigði þúsundum.9 Á eftir þessu háttatali kemur ýmis kveðskapur eftir Níels, meðal annars eins konar dulmálskvæði með skýringum, svo og gátur (sbr. Níels 1912). í formála ræðir Níels fyrst um nauðsyn stöðugs þroska og segir að óhófleg drambsemi getið leitt menn til að halda að þeir séu fullkomnir, sem að hans dómi er vís vegur til stöðnunar. Níels ræðir uppruna skáldgáfunnar og ræktun hennar og er svo að skilja, að hann telji það sjálfbyrgingshátt hjá skáldum að segja skáldskapinn eiga sér guðdómlegan uppruna.10 Þess í stað telur hann að skáldskapargáfan komi „beinlínis frá náttúrunnar eigin hendi“ (sbr. 14). Sá sem er skáld „ætti bæði að vera fæddur skáld (...) og líka hafa gegnumgengið allt hvað allslags skáldskaparmennt getur prýðt og fullkomn- að“ [bls. 5 í hdr.] — þar þurfa semsagt meðfætt og áunnið að styðja hvort annað, og minnir sá salómonsdómur á orð Ciceros um sama mál löngu áður.11 Níels gerir grein fýrir hvers vegna hann telji sér skylt að birta hugmyndir sínar um skáldskaparmenntina og játar um leið að hann skrifi „hér lítið eða ekkert, sem maður kann að kalla nýtt, heldur einasta hvað af því sem eg hef lesið um skáldreglur“, en því miður getur hann ekki heimilda sinna nánar. Síðar í ritgerðinni segir hann að hann hafi hér aðeins raðað niður setningum lærdómsmanna, og sjálfur sé hann ekki „þeirra höfundur framar en skóladrengurinn lexíunnar sem hann útlagði úr latínu eða grísku eða sýslumaðurinn fororðningarnar sem hann íslenskaði þér á þinginu" [38]. Af lítillæti segir hann að skrif sitt geti ekki kallast „Leiðarsteinn eða mælisnúra fyrir eftirtíðarinnar skáldmenni" en þó má skilja af heildarsam- henginu að kannski var þetta engu að síður einmitt það sem Níels ætlaði sér með ritgerðinni.12 Hann hafði sýnilega hug á að skrifa óðfræði eða eins konar handbók um skáldskap (lat. ars poetica) og feta þannig í fótspor höfunda á borð við Hóras, Geoffrey frá Vinsauf og Snorra Sturluson. Næst víkur Níels að því hvort skáldlistin geri gagn eða hvort hún sé öðru fremur tímasóun, og felur málsvörn hans í sér helstu röksemd Gorgíasar til varnar mælskulistinni í Gorgíasi Platons: „Það er vel satt, að skáldgáfan er og hefur verið mikillri vanbrúkun undirköstuð, en er hún þar fyrir foragtan- leg?“13 Ekki telur Níels heldur að menn verði fátækir af skáldskapariðkun og svo hafi ekki heldur verið um sig, þar hafi ritstörfm litlu um valdið. Af hógværð segir Níels að rit sitt sé ætlað viðvaningum en betra sé að veifa röngu 42 TMM 1994:3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.