Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Síða 62

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Síða 62
langaði til að hljóða, grýta einhverju í spegilinn, en hún sat grafkyrr og starði fram fyrir sig. Hún ætlaði að bíða þar til spegilmyndin birtist aftur. í hálfa klukkustund starði hún í auðan spegilinn án þess að depla auga en þá urðu augnlokin óbærilega þung og féllu aftur eins og kistulok. Hún rankaði við sér þegar hún var að detta út af og leit í spegilinn, beint í augu óttasleginnar mannveru sem starði á hana. En það var ekki hún og hún heyrði hryllilegt óp sem skelfdi hana og hún hljóðaði aftur. Lengi var ekkert nema skelfingaróp sem hræddu hvert annað, eða þar til hún fann að einhver faðmaði hana að sér og hvíslaði: suss — suss, hvað eftir annað í eyra hennar. f speglinum sá hún föður sinn kyssa loftið blíðlega og tala róandi við ekkert. Hún snéri sér að honum, andlitið baðað svita og tárum, skelfing í augum. Hann fann að ef hann léti undan ótta sínum myndi hann missa dóttur sína fyrir fullt og allt. Hann bað guð um styrk og sjálfum sér að óvörum sagði hann full- komlega eðlilegum rómi: „Það er óþarfi að óttast, elskan mín, þú hefur bara enga spegil- mynd.“ Hið trausta fas hans færði hana svo nálægt honum að hættunni á sturlun var bægt ffá. Hún hjúfraði sig fast að honum og spurði ákaft: „Af hverju pabbi, af hverju?“ Hann hafði alltaf svarað ótal spurningum hennar en fann að það var einskisvert ef hann stæði á gati í þetta eina skipti. Þá héldi hún út í heiminn í vonlausri leit að svari við spurningu sinni. Vísindamenn myndu krefjast þess að fá að rannsaka hana, fjöldinn myndi óttast hana og heimta líf hennar. Ef dómstólar þyrmdu henni myndi múg- urinn taka lögin í sínar blóðidrifnu hendur og, og,... hvað gat hann sagt við hana? Það dygði skammt að skrökva einhverju, með lygi myndi hann ýta henni frá sér, með þögn myndi hann loka hana úti í kuldanum. Hann varð að segja henni sannleikann. En hver var sann- leikurinn? Það var honum með öllu hulið. Aftur bað hann guð, sem hann hafði ekki trúað á fram til þessa, um liðveislu: °Drottinn guð, skapari himins og jarðar, ég geng sæll í eilífan hreinsunareldinn ef þú aðeins gefur mér svarið sem bjargar dóttur minni.° )VAf hverju pabbi, af hverju?“ heyrði hann fagra rödd dóttur sinnar 60 TMM 1994:3
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.