Morgunblaðið - 25.04.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Færeyingar og Evrópusambandið
(ESB) leggja til að hlutdeild Íslands
í kolmunnaveiðinni í N-Atlantshafi á
þessu ári minnki úr 17,63% í 4,8%.
Búið er að úthluta íslenskum skipum
kolmunnakvóta á grundvelli þess að
hlutur okkar sé 17,63% og skipin eru
byrjuð að veiða.
Þá leggja Færeyingar og ESB til
að hlutur þeirra í kolmunnanum
verði samtals 83,8% í stað 56,63%
eins og verið hefur. Þar af var ESB
með 30,5% heildarkvótans og Fær-
eyjar með 26,13%. Þá leggja ESB og
Færeyjar til að hlutdeild Noregs
minnki úr 25,75% í 11,4% en Rússar
haldi óbreyttum hlut sínum sem út-
hafsveiðiþjóð. Þeir hafa veitt sem
svarar um 7% af samanlögðum
kvóta strandríkjanna. Fyrrgreind
tillaga ESB og Færeyinga um
kvótaskiptingu kolmunnans kom
fram á strandríkjafundi um veiðar á
kolmunna fyrir árið 2015 í Clona-
kilty á Írlandi 21.-23. apríl.
Tillögu ESB og Færeyja hafnað
„Tillögu ESB og Færeyinga var
algjörlega hafnað,“ sagði Jóhann
Guðmundsson, skrifstofustjóri í at-
vinnuvegaráðuneytinu. Engin niður-
staða náðist því milli strandríkjanna
um skiptingu hlutdeildar í kolmunna
á þessu ári.
Jóhann sagði athyglisvert að
Færeyingar og ESB legðu fram svo
róttækar breytingar á skiptingu kol-
munnakvótans t.d. í ljósi þess að
Norðmenn væru langt komnir með
að veiða kvóta sinn upp á 25,75%.
Auk þess hefðu þeir tekið sér auka-
lega á þessu ári 10% kvóta vegna
þess að samningurinn um kolmunn-
ann væri kominn í uppnám.
„Við Íslendingar erum búnir að
setja kolmunnakvóta fyrir þetta ár
og höfum hann eins og við höfum
haft, það eru þessi 17,63%, og veið-
um það sem við teljum að við eigum
að veiða. Það er ekkert flóknara en
það,“ sagði Jóhann. „Við höfum ekki
samþykkt neitt annað og látum
þessa tillögu ekki trufla okkur.“
Ekki er ljóst hvað veldur þessu
samkrulli ESB og Færeyinga. Ekki
eru nema tvö ár síðan ESB setti
löndunarbann á makríl og síld frá
Færeyjum sem refsiaðgerðir vegna
makrílveiða Færeyinga. ESB, Fær-
eyjar og Noregur sömdu svo í fyrra
sín á milli um skiptingu makrílkvóta
á þessu ári. Nú virðast ESB og Fær-
eyingar komin í eina sæng hvað kol-
munnann varðar.
Færeyingar boðuðu til fundarins í
Clonakilty og var hann framhald
viðræðna sem hófust í október í
fyrra. Færeyingar hyggjast boða
framhaldsfund innan næstu tveggja
mánaða. Fundarstjórn vegna kol-
munnaveiða á næsta ári verður í
höndum Íslands og tekur Ísland við
stjórnartaumunum af Færeyingum í
haust.
Vilja minnka hlut Íslands
Evrópusambandið og Færeyingar vilja minnka hlutdeild Íslands í kolmunna á
þessu ári úr 17,63% í 4,8% Íslendingar byrjaðir að veiða og halda sínu striki
„Tillögu Evrópu-
sambandsins og
Færeyinga var al-
gjörlega hafnað.“
Jóhann Guðmundsson
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
„Ég hélt fyrst að það væri verið að
gera at í mér,“ segir Freyja Jóns-
dóttir, en hún fékk í gær afhentan
vinninginn í áskrifendahappdrætti
Morgunblaðsins, glænýjan Toyota
Corolla-bíl, en verðmæti hans er
4.899.000 krónur. Þetta er önnur
bifreiðin sem dregin hefur verið út
á árinu í áskrifendahappdrætti
blaðsins. „Það var erfitt að með-
taka þetta, ég spurði: „Getur þetta
verið?““ segir Freyja, en hún hefur
aldrei unnið í happdrætti áður.
„Aldrei nokkurn tímann, en ég hef
kannski heldur ekki verið mikið að
spila.“
Áskrifandi frá 25 ára aldri
Freyja hefur verið áskrifandi
Morgunblaðsins frá 25 ára aldri, en
hún er 82 ára. Hún og blaðið hafa
því orðið samferða í nærri sextíu
ár. „Ég hef alltaf verið áskrifandi
og ég byrja daginn alltaf á því að
lesa Morgunblaðið.“
Það vakti nokkra athygli þegar
Morgunblaðið kom út öfugt á dög-
unum, þar sem baksíðan varð að
forsíðu, en í því tölublaði var jafn-
framt tilkynnt um happdrættið sem
Freyja vann í. Byrjar hún aftast á
blaðinu? „Nei, ég byrja á fremstu
síðunni og les svo þá öftustu, og les
síðan blaðið í réttri röð.“
Freyja vann um hríð við Morgun-
blaðið. „Ég skrifaði í það um skeið,
og þá aðallega greinar um söguleg
málefni,“ segir Freyja. Hún bætir
við að hún hafi einkum skrifað um
gömul hús á Íslandi og farið yfir
sögu þeirra og byggingu. „Ég
fylgdi þeim eftir alveg að þeim degi
sem greinin birtist,“ segir Freyja.
„Þetta voru heimildagreinar, ég fór
á söfnin og leitaði mér heimilda,
bæði á Árbæjarsafn og Þjóðskjala-
safnið,“ segir Freyja og bætir við
að þetta hafi verið mjög skemmti-
leg vinna.
Kominn tími á nýjan bíl
„Ég hef yfirleitt átt Toyota,“ seg-
ir Freyja, „svona síðustu 20 árin hið
minnsta, en áður keyrði ég Chevr-
olet.“ Freyja segist hafa verið farin
að huga að því að skipta um bíl
þegar tilkynningin barst um vinn-
inginn; hafi meira að segja verið
farin að ræða um það að kíkja í
Toyota-umboðið í leit að nýjum bíl.
Vinningurinn kom sér því ein-
staklega vel fyrir Freyju.
„Þetta var bara eins og himna-
sending,“ segir hún glöð.
Áskrifendahappdrætti Morgun-
blaðsins heldur áfram og verður
nýr bílavinningur tilkynntur í lok
mánaðarins.
„Kom eins og himnasending“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Við afhendinguna Freyja Jónsdóttir er hér ásamt Úlfari Steindórssyni, forstjóra Toyota á Íslandi, og Haraldi Johannessen, ritstjóra Morgunblaðsins, þeg-
ar henni var afhent bifreiðin í höfuðstöðvum Toyota í gær. Freyja segir þetta sinn fyrsta happdrættisvinning og hann hafi komið sem himnasending.
Freyja Jónsdóttir vann nýja Toyota-bifreið í áskrifendahappdrætti Morgun-
blaðsins Hefur verið áskrifandi í 57 ár Var farin að huga að bílakaupum
Happdrætti
» Freyja Jónsdóttir áskrifandi
fékk nýjan Toyota Corolla í
verðlaun í áskrifendahapp-
drætti Morgunblaðsins.
» Hún hefur verið áskrifandi í
57 ár og vann um hríð við blað-
ið.
» Hún segir vinninginn hafa
komið á besta tíma fyrir sig.
„Ég geri ekki ráð
fyrir því að
greiða um þetta
atkvæði,“ segir
Páll Jóhann Páls-
son, þingmaður
Framsóknar-
flokksins, um
nýtt makríl-
frumvarp sjáv-
arútvegsráðherra
en eiginkona
Páls Jóhanns er skráð fyrir útgerð-
arfyrirtæki sem fengi úthlutaðan
ákveðinn kvóta samkvæmt því.
Hefur talað gegn frumvarpinu
„Ég hef ekki greitt atkvæði fram
að þessu í þessum veiðigjöldum. Ég
hef engu að síður tjáð mig um þessi
mál og miðlað minni þekkingu og
reynslu. Ef eitthvað er hef ég varað
við þessu og talað frekar gegn því
að kvótasetja smábátana. Ég hef
lýst yfir í ræðum á Alþingi efa-
semdum um þessi mál. Það eru allt
önnur lögmál sem gilda um smá-
bátaveiðar á makríl á grunninu en
hjá stóru skipunum sem hafa allt
Norður-Atlantshafið til að veiða
makrílinn. Ég hef frekar talið að
það sé gáfulegra að smábátarnir
séu áfram í sameiginlegum potti,“
segir hann.
„Ég mun taka þátt í umræðunum
um þetta mál á þeim forsendum að
við hjónin erum með þessa trillu-
útgerð, sem hún sinnir á meðan ég
er á þingi,“ segir hann. david-
mar@mbl.is
Mun ekki
greiða
atkvæði
Páll Jóhann
Pálsson
Þingmaður um
makrílfrumvarpið
Myndlistarmaðurinn Marco Evar-
istti hellti snemma í gærmorgun
fimm lítrum af rauðum ávaxtalit í
hverinn Strokk við Geysi. Við það
litaðist gosstrókurinn fagurbleikur.
Landeigendur við Geysi kærðu Ev-
aristti til lögreglu fyrir tiltækið.
Í fyrra setti hann rauðan matarlit
í foss í Noregi og þarf að dúsa þar 15
daga í fangelsi fyrir tiltækið.
„Ég harma það að gestur sem
kemur hingað til okkar ágæta lands
láti sér detta í hug að framkvæma og
þakka fyrir komu sína með þessum
hætti, ég á fá orð til að lýsa vanþókn-
un minni á þessu,“ segir Garðar Ei-
ríksson, talsmaður Landeigenda-
félags Geysis.
Garðar sagði að í gær hefðu enn
verið leifar af litnum í kringum
Strokk enda frost í jörðu.
Strokkur
var litaður
bleikur
Ljósmynd/Marco Evaristti
Strokkur Listamaðurinn hefur vit-
anlega verið kærður fyrir athæfið.
Skannaðu kóðann
til að sjá viðtal við
Freyju Jónsdóttur.