Morgunblaðið - 25.04.2015, Síða 76
76
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
Margverðlaunuð NOKIAN gæðadekk
ein öruggustu dekk sem völ er á
valin bestu dekkin í gæðakönnunum
eigum dekk fyrir fólksbíla, jeppa og sendibíla
Bíldshöfða 5a, Rvk
Jafnaseli 6, Rvk
Dalshrauni 5, Hfj
Opnunartími: virka daga kl. 8-17. Laugardaga: sjá MAX1.is
Á Íslandi vitum við að sumarveður getur þýtt alls konar veður.
Þess vegna hefur Nokian þróað sumar- og heilsársdekk sem
henta fjölbreyttu veðurfari norðlægra slóða.
Greiðsludreifing í boði
Aðalsímanúmer
515 7190
Mundu: nagladekkin af fyrir 15. apríl
Knarrarvogi 2, Rvk (ath. ekki dekkjaþjónusta)
VELDU ÖRYGGI
Skoðaðudekkjaleitarvélina áMAX1.is
Nánar um
hátíðina á
arborg.is
2015
Fjöldi sýninga, tónleika og annarra viðburða fyrir alla fjölskylduna.
„Gaman saman“ stimpilleikurinn á sýnum stað. Tónleikar í Gónhól á Eyrarbakka lau. 25. apríl kl. 20:00
og í Barnaskólanum á Stokkseyri sun. 26. apríl kl. 16:00. Frítt inn.
Bæjar- og menningarhátíð haldin 23.-26. apríl í Sveitarfélaginu Árborg
Guðrún Sigríður Guðlaugsdóttir
gudrunsg@gmail.com
G
öngur létta lund fólks en
afskaplega misjafnt er
hvernig það vill haga
gönguferðum sínum. Sum-
ir vilja bara ganga einir og út af
fyrir sig og alltaf sömu leiðina.
Aðrir gera meiri kröfur, vilja vera í
gönguhóp og kanna ókunnar slóðir.
Fyrir þá síðarnefndu er hæfur leið-
sögumaður góður kostur. Jón Gauti
Jónsson er þaulreyndur fjallagarp-
ur sem nú er að fara af stað með
gönguhópa á vegum Fjallaskólans
sem hann rekur.
„Síðustu átta eða níu ár hef ég
verið að ganga reglulega með
gönguhópa víðs vegar um landið.
Vikulega er farið í styttri göngur á
þriðjudagskvöldum og á fimmtu-
dagsmorgnum gerum við morg-
unþrekæfingar, fjallaþrek hef ég
kallað þetta. Og einu sinni til tvisv-
ar í mánuði göngum við á fjöll.“
Er þetta fyrirætlun sumars-
ins?
„Fólk í hópnum mínum, sem
nefnist Útiverur Fjallaskólans
gengur allt árið um kring og lítur á
gönguferðir og útivist sem lífsstíl.
Þess vegna er vetur ekki undan-
skilinn. Á sumrin tökum við okkur
sumarfrí en áhuginn á gönguferð-
um hópsins er slíkur að við förum
oftast líka í ferð um mitt sumar og
þá lengra inn til landsins. Næst á
dagskrá hópsins er ganga á Sveins-
tind á Öræfajökli um hvítasunnu-
helgina. Sú ganga er með lengri
dagsgöngum sem við höfum farið í
og tekur um fjórtán til sextán
tíma.“
Í Fjallaskólanum er og boðið
er upp á námskeið og dagsferðir.
En svo býð ég líka upp á einkaleið-
sögn sem sniðin er að þörfum er-
lendra ferðamanna undir nafninu
Mountain Tours.“
Klettaklifursvæði í Kulusuk
En hvert gengur þú sjálfur á
eigin vegum?
„Eitt af því skemmtilegasta
sem ég geri er að fara með fjöl-
skylduna, konu mína og þrjú börn
og einnig vini í bakpokaferðir. Í ár
stefnum við á að ganga um Kerl-
ingarfjöll. Það verður um þriggja
daga ferð.
Einnig ætla ég til Grænlands,
þar sem ég og félagar mínir feng-
um styrk til að útbúa klettaklif-
ursvæði í Kulusuk og klifra á
nokkra ófarna í tinda. Svo vil ég
nota tækifærið hér og nú og bjóða
konunni minni í bakpokaferð um
hálendið í tilefni af tuttugu ára
brúðkaupsafmæli okkar fyrsta júlí.“
Byrjendur velji sér
viðfangsefni við hæfi
Hvaða ferðir bendir þú fólki á
að fara sem ekki er vant miklum
göngum?
„Allir geta byrjað í göngum ef
menn velja sér viðfangsefni við
hæfi. Rétt er að byrja á láglendi
eða lágum fjöllum og velja aðeins
daga þegar veður er einsýnt gott.
Ef menn passa þetta er engu að
kvíða.“
Hvað um útbúnað?
„Ef þess er gætt sem fyrr er
greint skiptir ekki svo miklu máli
með útbúnað. Hins vegar er rétt að
muna að á Íslandi geta veðurbreyt-
ingar verið snöggar og því ávallt
rétt að búast við hinu versta þó að
menn vonist eftir hinu besta.“
Hvað þurfa byrjendur í fjalla-
göngum helst að varast?
„Á vorin þegar snjóa leysir
verður landið viðkvæmt og þá er
rétt að velja þolnara undirlag. Þá
getur verið ágætt að ganga á mó-
bergsklöppum eins og á til dæmis á
Reykjanesi. Í Fjallabókinni sem
kom út eftir mig árið 2013 er farið
yfir helstu atriði fyrir þá sem eru
að byrja fjallgöngur. Þess má geta
að í sumar kemur út eftir mig og
George Fischer ljósmyndabók með
myndum frá ýmsum gönguleiðum á
Íslandi.“
Gæði ferðaþjónustu
má verðleggja
Hvaða leiðir vilja útlendir
ferðamenn helst fara? „Því miður
virðist Laugavegurinn svokallaði,
(gönguleiðin frá Landmannalaugum
til Þórsmerkur) vera vinsælastur,
en þar eru þegar alltof margir
ferðamenn á gangi á sumrin. Það
væri hægt að dreifa álaginu miklu
meira en það krefst talsverðrar
vinnu og samstarfs ferðaþjón-
ustuaðila.“
Hefur þú sem reyndur fjalla-
maður áhyggjur af hálendinu?
„Já, ég hef áhyggjur af því að
margir staðir á hálendinu veiti ekki
lengur á sumrin þá upplifun sem
þeir áður gerðu, hvað varðar frið-
sæld og hreinleika. Síðustu sumur
hef ég komið á marga vinsælustu
staðina á hálendinu og séð þessa
breytingu.
Þrátt fyrir allt er margt gott
að gerast í íslenskri ferðaþjónustu.
Og mikilvægast af öllu finnst mér
bætt gæðavitund í íslenskri ferða-
þjónustu, þar sem Ferðamálastofa
hefur kynnt Vakan til leiks tekið og
sífellt fleiri fyrirtæki eru þátttak-
endur í. Þar eru kynntar kröfur
sem gerðar eru til ferðaskipuleggj-
enda og leiðsögumanna. Allt miðar
þetta að meiri gæðum í íslenskri
ferðaþjónustu. Og slík gæði má
verðleggja.“
Bakpoka-
ferð á brúð-
kaupsafmæli
Eftir langan og heldur misviðrasaman vetur hugsa
margir sér gott til glóðarinnar að hefja útivist og þar eru
göngur ofarlega á blaði, enda er gangan ein hollasta lík-
amshreyfing sem manneskjunni stendur til boða í þessu
jarðlífi Jón Gauti Jónsson er fjallaleiðsögumaður og höf-
undur Fjallabókarinnar Hann hefur yfirgripsmikla
reynslu af göngum við hvers kyns aðstæður í áratugi.
Útiverur „Á sumrin tökum við okkur sumarfrí en áhuginn á gönguferðum hópsins er slíkur að við förum oftast líka í
ferð um mitt sumar og þá lengra inn til landsins. Næst á dagskrá hópsins er ganga á Sveinstind á Öræfajökli.
Morgunblaðið/Eggert
Fjallagarpur Jón Gauti Jónsson er þrautreyndur útivistarmaður.
SUMAR-SÓLútivera