Morgunblaðið - 25.04.2015, Blaðsíða 102
102 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
KLASSÍSKI LISTDANSSKÓLINN
Inntöku
próf
30. apr
íl
Vorhátíð skólans í Borgarleikhúsinu
mánudaginn 27. apríl kl. 18:00
WWW.BALLET.IS
Grensásvegi 14 & Álfabakka 14a s: 534 9030 mail: info@ballet.is
Inntökupróf fer fram á
Grensásvegi 14 fimmtudag 30. apríl
nemendur 13 ára og eldri mæti kl.18:00
Miðasala á www.borgarleikhus.is
Skráning fyrir nýja nemendur
fyrir haustönn 2015 er hafin á
Rússar banna sýningar á Barni 44
AFP
Söguskoðun Stuðningsmenn Kommúnistaflokksins hampa myndum af hetjum sínum, Stalín
og Lenín, í kröfugöngu í Moskvu. Kvikmyndin Barn 44 hefur verið bönnuð í Rússlandi vegna
neikvæðrar lýsingar sem í henni birtist á Sovétríkjunum á tímum Stalíns.
„Hrækt á Rússland og Rússa“
Í Rússlandi hefur orðið „Rússafóbía“
verið notað um myndina. Í menningar-
tímaritinu Kúltúr, sem gefið er út fyrir op-
inbert fé, var vísað í Hringadróttinssögu
og sagt að í myndinni væru Sovétríkin eins
og „Mordor og íbúarnir eins og skítugir,
siðblindir, huglausir orkar“. Þar sagði
einnig að myndin væri uppfull af lygum og
þar væri „hrækt á Rússland og Rússa“. Rit-
stjóri blaðsins situr í listráði rússneska for-
setaembættisins.
Medinskí hefur markað sér stöðu sem
harðlínumaður í menningarmálum. Til árs-
ins 2012 sat hann í nefnd, sem í umboði
stjórnvalda hafði það hlutverk að láta til
skarar skríða gegn „sögufölsunum þar sem
hallar á Rússland“. Undir hans forustu er
menningarráðuneytið orðið nokkurs konar
varðhundur og hefur komið fram að í
framtíðinni muni það ekki styðja neinar
kvikmyndir þar sem landinu sé lýst sem
„skíta-Rússlandi“ og „hrækt [sé] á kjörin
stjórnvöld“.
Fyrirtækið, sem hefði dreift myndinni,
sagði að sátt ríkti um bann myndarinnar.
„Við teljum mikilvægt í framtíðinni að
auka stjórn ríkisins á dreifingu mynda,
sem hafa félagslega mikilvægt innihald,“
sagði Pavel Stepanov, forstjóri fyrirtæk-
isins, í yfirlýsingu.
Medinskí lýsti fyrr á þessu ári yfir
vanþóknun sinni á rússnesku kvikmyndinni
Levíatan og kvartaði undan því að hún
væri full af „tilvistarvonleysi“. Myndin
hreppti verðlaun á Golden Globe-hátíðinni.
Hún var einnig framlag Rússa til Ósk-
arsverðlauna og hlaut tilnefningu til
þeirra.
Óæskileg óperuuppfærsla
Í mars lét Medinskí reka stjórnanda
leikhúss í Novosibirsk í Síberíu vegna upp-
færslu á óperunni Tannhäuser eftir Rich-
ard Wagner. Leikstjórinn var líka látinn
fjúka. Aðilar innan rússnesku rétttrún-
aðarkirkjunnar höfðu kvartað vegna
mynda af Jesú Kristi í uppfærslunni. Málið
fór til dómstóla, sem sáu enga ástæðu til
að amast við sýningunni, en það gilti einu í
ráðuneytinu.
Tom Rob Smith, höfundur „Barns 44“,
skrifaði grein í breska blaðið the Times
daginn, sem myndin var frumsýnd þar sem
hann sagði að þótt sér þætti miður að
myndin skyldi hafa verið bönnuð í Rúss-
landi, væri hann „stoltur af því að myndin í
sinni endanlegu mynd væri svo kraftmikil
að hana þyrfti að ritskoða“.
» „… stoltur af því aðmyndin í sinni endanlegu
mynd væri svo kraftmikil að
hana þyrfti að ritskoða“
AF RITSKOÐUN
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Kvikmyndin „Barn 44“ verður ekkitekin til sýninga í kvikmyndahúsumí Rússlandi. Frumsýna átti myndina
í liðinni viku, en menningarráðherra lands-
ins, Vladimír Medinskí, greip í taumana.
Honum fannst myndin „óbærileg“.
„Barn 44“ er gerð eftir samnefndri
skáldsögu eftir breska rithöfundinn Tom
Rob Smith. Bókin er frá 2008, en svo vill
til að hún kom út í íslenskri þýðingu fyrr í
þessum mánuði.
Samkvæmt yfirlýsingu frá rússneska
menningarráðuneytinu var þessi ákvörðun
tekin í samráði við rússneskan dreifing-
araðila myndarinnar eftir að embætt-
ismenn ráðuneytisins höfðu horft á mynd-
ina. „Myndir á borð við „Barn 44“ ættu
ekki að fara í almennar sýningar í landi
okkar, þéna peninga af kvikmyndaáhorf-
endum okkar, ekki á 70 ára afmæli sigurs-
ins [í síðari heimsstyrjöld], aldrei,“ skrifaði
Medinskí á vefsíðu ráðuneytisins.
Í bókinni er sagt frá sovéskum rann-
sóknarlögreglumanni, sem mætir mikilli
fyrirstöðu við rannsókn á ódæðisverkum
barnamorðingja. Myndin gerist í Sovétríkj-
unum í valdatíð Stalíns árið 1953. Í fyr-
irmyndarríki Stalíns þar sem hinn nýi mað-
ur hefur rutt sér rúms er útilokað að slíkir
glæpir geti átt sér stað – morð voru sjúk-
dómur kapítalismans – og því eru þeir
þaggaðir niður. Kveikjan að sögunni var
mál fjöldamorðingja, sem gekk laus á átt-
unda og níunda áratugnum og myrti að tal-
ið er meira en 50 manns, þar á meðal
fjölda barna, en höfundurinn færir at-
burðarásina aftur til tíma Stalíns. Smith
segir að í sínum huga sé „Sovét-Rússland
ein af höfuðpersónum bókarinnar, óhugn-
anleg blanda af hryllingi og fáránleika“.
Árið er 1953, og Leo Demi-dov (Tom Hardy), stríðs-hetja úr síðari heimsstyrj-öld, vinnur nú fyrir MGB
(fyrirrennara KGB) við að hand-
sama meinta „föðurlandssvikara“ og
koma þeim í hendur stjórnvalda.
Einn daginn finnst guðsonur hans
látinn við lestarteina, og virðist sem
hann hafi verið myrtur. Eini gallinn
við þá kenningu er sá að samkvæmt
fyrirmælum Stalíns eru engir glæpir
í verkamannaparadísinni og þar af
leiðandi eru engin morð framin þar.
Demidov lendir fljótlega upp á
kant við yfirmenn sína, og er á end-
anum handtekinn og lækkaður
hressilega í tign. Hann og kona
hans, Raisa (Noomi Rapace) eru
send í hálfgerða útlegð til Volsk í
Kákasushéruðunum, þar sem Demi-
dov er gerður að héraðslögreglu-
manni undir stjórn Nesterovs hers-
höfðingja (Gary Oldman). Leo og
Raisa ákveða að rannsaka málið
áfram og komast að því að 43 önnur
börn hafi dáið með svipuðum hætti.
Mun Demidov ná að leysa málið áð-
ur en morðinginn lætur til skarar
skríða á ný? Eða verður hann tekinn
af lífi af yfirvöldum áður?
Mikið er lagt í myndina Child 44.
Stórleikarar drjúpa eins og smjör af
hverju strái, og búningahönnun er
fengin beint frá tísku þeirra tíma í
Sovétríkjunum. Reynt er að láta
andrúmsloft myndarinnar ná þeim
hæðum vænisýkinnar sem ríktu þar
á síðustu árum Stalíns, og nokkuð er
fjallað um líf venjulegs fólks undir
harðstjórninni. Umgjörð mynd-
arinnar gæti því heillað áhugamenn
um sögu Sovétríkjanna.
Sem spennumynd er myndin hins
vegar hálfgert klúður. Þrátt fyrir hið
ríka andrúmsloft vænisýkinnar
tekst illa að búa til spennu, og mynd-
in líður nokkurn veginn hjá stór-
átakalaust. Að miklu leyti skrifast
þetta á handritið, en myndin er
byggð á samnefndri metsölubók eft-
ir Tom Rob Smith, sem hlaut góða
dóma á sínum tíma. Það virðist því
eitthvað hafa skolast til á leiðinni á
hvíta tjaldið, og fær áhorfandinn á
tilfinninguna að ansi margt hafi ver-
ið skorið niður.
Leikararnir komast flestir vel frá
sínu, en vinna þó engin stórafrek.
Það er þó athyglisvert, að þeir bera
fram línurnar sínar með mjög sterk-
um rússneskum hreim sem gæti
virkað ankannalega á suma áhorf-
endur.
Með þeirri miklu vinnu sem lögð
var í umgjörð myndarinnar og þeim
efniviði sem úr var að moða hafði
Child 44 alla burði við fyrstu sýn til
þess að geta orðið hin fínasta ræma.
Því miður er reyndin allt önnur og
útkoman verður spennulaus spennu-
mynd.
Klúður Tom Hardy í hlutverki Leo Demidov í Child 44. Umgjörð mynd-
arinnar gæti heillað áhugamenn um sögu Sovétríkjanna en sem spennu-
mynd er myndin hins vegar hálfgert klúður, að mati gagnrýnanda.
Spennulaus spennumynd
Sambíóin
Child 44 bmnnn
Leikstjóri: Daniel Espinosa. Handrit:
Richard Price, byggt á sögu Tom Rob
Smith. Aðalhlutverk: Tom Hardy, Gary
Oldman, Noomi Rapace, Joel Kinnaman,
Jason Clarke, Vincent Cassel og Charles
Dance.
STEFÁN GUNNAR
SVEINSSON
KVIKMYNDIR