Morgunblaðið - 25.04.2015, Blaðsíða 68
68 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
Ármúla 19 | S: 553-9595 | gahusgogn@gahusgogn.is | www.gahusgogn.is
GÁ húsgögn ehf. er traust fyrirtæki sem hefur verið á
íslenskum markaði um árabil. Við leggjum áherslu á
stílhrein, vönduð húsgögn og góða þjónustu.
Við tökum málin þín
í okkar hendur
Sérsmíðum fyrir heimili og fyrirtæki
Fjarðargötu 17
Hafnarfirði
Sími 520 2600
as@as.is
www.as.is
Opið alla virka daga 9-17
HÓTEL BEST, STAPAVEGUR 7
VOGAR VATNSLEYSUSTRÖND
ATVINNUTÆKIFÆRI - FJÁRFESTAR
Eignin er alls 1.311,8 fm að stærð á einni hæð.
28 2ja manna herbergi með sér snyrtingu, öll með sjónvarpi og
interneti, dúkur, teppi og korkflísar á gólfum. Sjö herbergi með
sameiginlega snyrtingu, þ.e. eitt 2ja manna og sex herbergi
með aðstöðu fyrir fjóra, internet aðgangur. Þrjár íbúðir (ca 40
fm hver) með gistiaðstöðu fyrir allt að fimm manns. Að auki
er gestamóttaka, tvö þvottahús, rúmgóður matsalur, eldhús,
herbergi fyrir næturvörð, setustofa fyrir gesti, tölvuherbergi,
snyrting og líkamræktarherbergi, aðallega flísar á gólfum.
Sjá nánar uppl.www.hotelvogar.is eða hjá Eiríki Svani
Sigfússyni, löggiltum fasteignasala.
Eiríkur Svanur Sigfússon
Lögg. fasteignasali
S. 862 3377
Hinn 24. apríl 2015 er
þess minnst, að 100 ár
eru liðin frá upphafsdegi
skipulegrar útrýmingar
Armena í Tyrklandi. Áð-
ur höfðu Armenar sætt
grimmilegum morðum í
tíð „blóðsoldánsins,“ Ab-
dul Hamid 2., á árunum
1894-1896. Staða Ar-
mena versnaði aftur til
muna eftir valdatöku
hinna „ungu Tyrkja,“ árið 1913, undir
forystu þríeykisins, Talaat, Enver og
Djemal, sem allir báru hertitilinn
Pasha. Þeir fóru fram undir kjörorð-
inu: „Ein trú, eitt ríki.“ Löggjöf undir
nafninu Tehcir frá 27. maí 1915 kvað á
um, að lönd, búfénaður og eignir Ar-
mena, skyldu gerð upptæk. Helför
Armena var hluti skipulegrar útrým-
ingar kristins fólk í tyrkneska hluta
ottómanveldisins, þar sem talið er að
1,5 milljónir Armena, allt að 1 milljón
Grikkja og allt að 800 þúsund Assýr-
íumanna hafi verið tekin af lífi, með
ótrúlega grimmilegum aðferðum, þar
sem fólk var ekki aðeins rænt lífi og
æru heldur einnig fatnaði sínum.
Armenamorðin fyrirmyndir
Leníns og Hitlers
Yfir helmingur allt að 6 milljóna
kristinna manna, sem um árþúsund
höfðu búið í Anatólíu, Assýríu og við
strendur Svartahafs og Eyjahafs, var
myrtur. Staðfest er, að fjöldamorðin á
Armenum voru um margt fyrirmynd
seinni tíma fjöldamorðingja, eins og
bolsjevikkaleiðtogans Vladimirs Ily-
ich Uljanovs, sem kallaður var Lenín,
í Sovétríkjunum og nasistaforingjans
Adolfs Hitlers, í Þýskalandi. Lenín
var þó ekki jafn sértækur í morðum
sínum og þeir pasharnir og Hitler, því
hann virtist hata alla Rússa, en eftir
honum er haft spakmælið: „Eitt
mannslát er harmleikur, en milljón er
bara tala.“ Lenín var raunar mikill
bandamaður arftaka pashanna
þriggja, Mustafa Enfedi Kemal Pasha
„Atatürk“, en viðurnefnið, sem þýðir
„faðir Tyrklands,“ fékk hann lögleitt
árið 1934, eftir að hafa verið fyrsti
leiðtogi hins nýja Tyrklands frá 1923.
Þá hafði hann linnulítið drepið Ar-
mena, en þó sérstaklega Grikki. Gjör-
eyðingarárás Mustafa Kemal Pasha
(síðar „Atatürks“) á borgina Smyrna
við Eyjahaf, árið 1922,
fer aldrei úr þjóðarvit-
und Grikkja, en fjöldi
Armena dó líka í
Smyrna. Flotar vest-
rænna þjóða reyndu að
bjarga fólki úr sjónum,
en höfðu fyrirmæli um,
að aðhafast ekkert gegn
morðárás Tyrkja.
Mismunandi örlög
tyrknesku fjölda-
morðingjanna
Byltingarforingjarnir
og síðar dæmdu fjöldamorðingjarnir
Talaat, Enver og Djemal Pasha höfðu
flúið land árið 1918. Þá höfðu þeir að
mestu lokið við útrýmingu Assýringa
í austurhéruðum Tyrklands, með að-
stoð Kúrda. Armenar og Grikkir voru
hins vegar fjölmennari í vesturhluta
ríkisins, einkum í Anatólíu og við
hafsstrendurnar, á rótgrónustu upp-
hafssvæðum kristninnar. Örlög En-
ver Pasha, vinar Leníns, urðu þau, að
hann var skotinn af Rauða hernum,
eftir að hafa skyndilega snúist gegn
samherjum sínum, árið 1922. Talaat
Pasha var skotinn ári fyrr í Berlín, af
ungum Armena. Djemal Pasha flúði
til Georgíu, en var skotinn á ferðalagi
af tveim Armenum, árið 1922. Kemal
Pasha, eða „Atatürk,“ hlaut hvorki
dauðadóm né aftöku fyrir gjörðir sín-
ar og voðaverk. Þvert á móti er hann
enn í dag í hávegum hafður, af Tyrkj-
um og sjálfhverfum Vesturlandabú-
um, sem almennt virðist standa á
sama um örlög orþódoxkristinna
meðbræðra sinna. Það var „Atatürk,“
sem þaggaði kristnimorðin niður og
glotti síðan til vesturs! Aðeins 0,2%
íbúa Tyrklands í dag eru kristin og
tungumál kristinna þjóða að hverfa í
Tyrklandi. Aramíska, tungumál hinna
landlausu Assýringa og tungumál
Krists, er í útrýmingarhættu á heims-
vísu!
Sannanir Wegners og
Morgenthau
Þýski hermaðurinn og sjúkraliðinn
Armin Wegner fæddist árið 1886 í
Wuppertal í Rínarlöndum. Hann
sinnti hjálparstörfum í tyrkneska ot-
tómanveldinu frá apríl 1915 og heyrði
fljótt háværar raddir um fjöldamorð á
Armenum. Hann notaði aðstöðu sína,
þegar hann var í leyfi, til að ferðast
um Litlu-Asíu og fór á skjön við
ströng fyrirmæli þýskra og tyrk-
neskra hernaðaryfirvalda um bann
við fréttum, bréfaskriftum og mynda-
tökum. Honum tókst að senda sönn-
unargögn til Þýskalands og Banda-
ríkjanna, en upp komst um hann.
Eftir miklar hremmingar tókst hon-
um að komast aftur til Þýskalands í
lok árs 1916. Wegner faldi m.a. filmur
undir belti sínu, sem reyndust ómet-
anleg sönnunargögn. Hann ritaði op-
ið bréf, í „Berliner Tageblatt“, til Wo-
odrows Wilsons Bandaríkjaforseta,
árið 1919, með ósk um sjálfstætt lýð-
veldi Armena. Wegner var svo djarf-
ur að mótmæla meðferð Hitlers á
gyðingum og var settur í fangabúðir,
en komst um síðir til Ítalíu, þar sem
hann bjó til dauðadags, árið 1978. Ar-
menar heiðra minningu hans með því
að hafa ösku hans við hlið hins sílog-
andi elds á minnismerki um helförina
í Yerevan. Bók með myndum hans er
til á mörgum armenskum heimilum!
Bandaríski lögmaðurinn Henry
Morgenthau fæddist í Mannheim í
Badenfylki Þýskalands árið 1856.
Hann var Askenasy-gyðingur og
flutti fjölskylda hans til New York,
árið 1866. Það var ekki síst vegna
uppruna hans, að vinur hans, Wilson
Bandaríkjaforseti, skipaði hann
sendiherra í ottómanveldinu, árið
1913, en hugur Morgenthau stóð til
ráðherradóms. Eftir harða baráttu
við valdamenn (þ. á m. sjálfa pash-
ana) í Tyrklandi, var hann orðinn
uppgefinn á þeim viðbjóði, sem hann
horfði upp á, og fór aftur til Banda-
ríkjanna. Áður hafði hann skrifað
hundruð bréfa og greina og komið á
fót miklu hjálparstarfi fyrir Armena,
en Tyrkir stóðu í vegi fyrir árangri
þess. Hann hélt baráttunni áfram fyr-
ir kristna í Tyrklandi, þegar meg-
indrápin bárust að Grikkjum, og
heiðraði gríska þjóðin Morgenthau
fyrir ómetanlega aðstoð, en Morgent-
hau lést árið 1946.
100 ár frá helför
kristinna í Tyrklandi
Eftir Ólaf F.
Magnússon » Yfir helmingur allt
að 6 milljóna krist-
inna manna, sem um ár-
þúsund höfðu búið í
Anatólíu, Assýríu og við
strendur Svartahafs og
Eyjahafs, var myrtur.
Ólafur F. Magnússon
Höfundur er læknir og
fv. borgarstjóri.
Undanfarið hefur mik-
ið verið rætt um lág-
launastefnuna sem rekin
hefur verið á Íslandi frá
ómunatíð. Samstöðu-
hreyfing láglaunastefn-
unnar á marga formæl-
endur úr röðum atvinnu-
rekenda og stjórnenda á
ýmsum stigum sam-
félagsins. Atvinnurek-
andinn í litla fyrirtækinu
segir það munu ríða fyr-
irtækinu að fullu ef laun myndu
hækka. Á meðan segir Seðlabankinn
verðbólgudrauginn síðar munu ríða
baggamuninn og gefa þegar von-
lausri stöðu nýjan blæ af ömurleika,
sem er alveg ferlegt að hugsa til. Þá
er ógleymdur stjórnarformaðurinn í
ónefndri undirstöðugrein efnahags-
lífsins – segjum bara fiskvinnslu –
sem segir hluthafaflótta óumflýj-
anlegan, ef í slíkar aðgerðir yrði ráð-
ist. Sem er líka ferlegt að hugsa til.
Þetta er því hálfgerð pattstaða, í
mínum augum. Enginn getur gert
neitt, og enginn gerir það.
Allir eiga þeir samúð mína, þó mis-
mikil sé..
Stytting vinnudags-
ins gæti verið lausn
Stytting vinnudagsins
úr hinum hefðbundnu
átta tímum í til dæmis
fimm tíma gæti opnað
ýmsa möguleika.
Ef aðili A – segjum
bara Jóhann – sem vinn-
ur hjá virtu fyrirtæki í
undirstöðugrein efna-
hagsins – segjum bara
fiskvinnslu – myndi
vinna fimm tíma vinnudag í staðinn
fyrir átta eða 10, liti dæmið öðruvísi
út. Að loknum vinnudegi væri orðinn
til tími sem nýta mætti með ýmsum
hætti. Jóhanni gæfist tími til að vinna
meira og vinna sér inn meiri peninga.
Til dæmis við þrif eða sölu Herbalife.
Þeir sem vel geta unað við mán-
aðarlaun sín þurfa ekki að vinna
meira. Þeir gætu jafnvel byrjað að
stunda áhugamál sín af kappi. Hugsið
ykkur, ef fjármálastjóri í virtu fyr-
irtæki gæti farið á leiklistarnámskeið
kl. 15 og verið kominn heim til að elda
mat kl 17!
Jóhann, aftur á móti, gæti þurft að
vinna 8-9 tíma á dag. En ef það er
með það að leiðarljósi að börnin hans
þurfi ekki að alast upp á róló utan
skipulagðrar dagskrár leikskólanna,
hlýtur að vera hægt að finna flöt á því.
Eina sem stæði út af borðinu væri
að rafvæða skattkortskerfið. Sem er
náttúrlega löngu tímabært, ef út í það
er farið. Allt á pappír yrði ferlegt
maus í þessu kerfi.
Vandamál gæti orðið með af-
greiðslutíma þjónustuaðila. En ég tel
það einnig orðið löngu tímabært að
taka þá til endurskoðunar líka. Það
kemst enginn í bankann milli 9 og 16!
Það eru allir í vinnunni!
Það sem þetta í raun fjallar um
Það hlýtur að vera flestum ljóst að
glaður starfsmaður er betri starfs-
kraftur en óhamingjusamur. Þeir eru
ólíklegri til að fara í verkfall, ólíklegri
til að stunda óheiðarleika í vinnu sinni
og framleiðni þeirra er að öllum lík-
indum meiri.
Áhyggjur af afkomu eru þrándur í
götu gleðinnar, sama hversu oft við
kyrjum að hamingjan komi innan frá.
Óumflýjanleg stytting
vinnudagsins
Eftir Inga Vífil
»Á meðan segir Seðla-
bankinn verðbólgu-
drauginn síðar munu ríða
baggamuninn og gefa
þegar vonlausri stöðu
nýjan blæ af ömurleika
Ingi Vífill
Höfundur er launamaður.