Morgunblaðið - 25.04.2015, Blaðsíða 113
MENNING 113
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
ÍSLENSKT TAL
ÍSLENSKT TAL
POWERSÝNING
KL. 10
Sími: 553-2075
www.laugarasbio.is
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS
EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI
- bara lúxus
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Þegar Bretapoppið svokallaða,„Britpoppið“, stóð sem hæstárið 1995 bitust tvær sveitir
um konungdóminn sem því fylgdi.
Oasis voru kjaftforar verkalýðs-
blækur frá Norður-Englandi sem
endurunnu Bítlalög með undraverð-
um hætti. Svo vel var þetta gert að
lögin hljómuðu eins og þú værir að
heyra þau í fyrsta skipti. Blur voru
listaskólastúdentar frá London og
tónlistin af hökustrokusortinni, með
nokkuð áberandi vísun í enskuheit
Kinks og síðari „mod“-bylgjuna.
Sveitirnar gátu eiginlega ekki verið
ólíkari. Enn þann dag í dag hafa þær
nokkuð gott tak á bresku þjóðarsál-
inni, sem bíður eiginlega og vonar,
leynt sem ljóst, eftir nýrri Breta-
poppsbylgju.
Læti
Oasis hætti með látum árið
2009 eftir að Liam Gallagher henti
plómu í stóra bróður sinn eftir tón-
leika. Allar götur síðan hefur verið
hvíslað um og ýjað að endurkomu.
Blur eru hins vegar búnir með þann
pakka. Ekki nóg með að sveitin hafi
komið aftur saman, og það í bróð-
erni, heldur er ný plata og klár, The
Magic Whip, og kemur hún út nú
Dularfulla töfrasvipan
Sameinaðir Gróið er um heilt, svona meira og minna, hjá gömlu félögunum í Blur.
eftir helgi. „Bræðurnir“ í Blur, Da-
mon Albarn og Graham Coxon eru
þá á betri stað en áður. Coxon og Al-
barn létu þó handalögmál að sjóara-
sið eiga sig að mestu og stunduðu
frekar hina klassísku, spennuhlöðnu
launillsku ( að vera „passive agres-
sive“) sem setti bandið eðlilega á
hliðina undir rest.
Coxon hætti 2001 og síðasta
hljóðversplatan, Think Tank, kom
út 2003. Coxon hefur síðan þá keyrt
sæmilegasta sólóferil og Albarn hef-
ur verið sérstaklega farsæll í sínum
verkefnum, hvort heldur í gegnum
hópa eins og Gorillaz og Mali Music
eða upp á eigin spýtur. Hrynparið,
þeir Alex James og Dave Rowntree
hafa að langmestu sinnt störfum ut-
an tónlistarinnar, hinn fyrrnefndi
hefur m.a. fengist við ostagerð og
fjölmiðlun en hinn síðarnefndi er
lögfræðingur og pólitíkus.
Einlægt
Albarn er sá sem þarf minnst á
því að halda að endurreisa Blur.
Engu að síður kom sveitin saman til
hljómleikahalds árið 2009 og hefur
leikið annað slagið á stærri við-
burðum. Ekkert hefur þó verið í
spilunum hvað nýja tónlist varðar. Í
upphafi árs 2012 var gerð tilraun til
að taka upp en hún endaði úti í
skurði. Í maí 2013 voru meðlimir
strandaglópar í Hong Kong í fimm
daga en tónlistarhátíð í Tókýó, þar
sem sveitin átti að spila, hafði verið
blásin af. Menn dunduðu sér við að
taka upp til að drepa tímann en af-
raksturinn safnaði síðan ryki. Síð-
asta haust hafði Coxon svo samband
við Albarn og fékk grænt ljós á að
kafa í efnið og reyna að vinna úr því
útgáfuhæfa plötu. Coxon fór í þá
vinnu með upptökustjóranum
Stephen Street og í febrúar síðast-
liðnum var tilkynnt að platan kæmi
út. Kom það nokkuð flatt upp á fólk
sem var eiginlega búið að gefa
drauma um slíkt upp á bátinn.
Það merkilegasta við þetta allt
saman er að meðlimir virðast ein-
læglega kátir með að vera komnir
saman aftur. Í maíhefti Mojo er við-
tal við sveitina og þetta er myndin
sem maður fær þar. Athugið að Al-
barn, eins og áður hefur komið
fram, þarf engan veginn á þessu að
halda, listrænt eða fjárhagslega.
Þannig að eitthvað annað stýrir
þessu, eitthvað heilnæmt sem maður
er hreinlega ekki vanur að sjá. Þörf
fyrir vináttu, metnaður fyrir listinni
sem slíkri? Ef þetta er blekking-
arleikrit er það a.m.k. frábærlega
unnið. Og ekki að það skipti máli,
þannig séð, á endanum. Tónlistin er
komin út og hún talar á endanum
fyrir sig sjálf.
» Það merkilegastavið þetta allt saman er
að meðlimir virðast ein-
læglega kátir með að
vera komnir saman aftur
Bretapoppssveitin Blur gefur út
nýja plötu, þá fyrstu í tólf ár
Bandaríska tónlistarsíðan Fader
frumsýndi 22. apríl sl. nýtt mynd-
band hljómsveitarinnar Kaleo sem
sýnir lifandi flutning hennar á nýju
lagi, „I Can’t Go On With Out You“.
Myndbandið var tekið upp í desem-
ber síðastliðnum í Búðakirkju á
Snæfellsnesi.
Kaleo er stödd í Bandaríkjunum
á tónleikaferð með hljómsveitinni
Vance Joy og segir í tilkynningu að
Bandaríkjamenn virðist yfir sig
hrifnir af mosfellsku hljómsveit-
inni. Lagið „All The Pretty Girls“
hafi gert það gott á útvarps-
stöðvum vestanhafs og gagnrýn-
endur vart haldið vatni yfir
frammistöðu sveitarinnar á South
By South West tónlistarhátíðinni í
mars.
Kaleo hefur á
undanförnum
vikum leikið á
vesturströnd
Bandaríkjanna
en þurfti að
sleppa nokkrum
tónleikum eftir
að Jökull Júl-
íusson, söngvari
sveitarinnar,
meiddist i körfubolta.
Nokkrir tónleikar eru fram-
undan hjá sveitinni í Texas og
Mexíkó, skv. tilkynningu, og hljóm-
sveitin bókuð á nokkrar tónlist-
arhátíðir í sumar, þ. á m. Bonnaroo
í Tennessee og Summerfest í Mil-
waukee en sú síðarnefnda er með
þeim stærri í heiminum.
Mosfellingar heilla Bandaríkjamenn
Jökull Júlíusson
ir lykilatriði að hafa gott fólk á sínum
snærum, ætli maður að fá fræga lista-
menn til landsins.
Kristinn bendir á að Funktion One
hljóðkerfið verði í fyrsta skipti notað
sem heildarkerfi í Laugardalshöllinni
sjálfri.„Þetta er frægasta klúbba-
hljóðkerfi sem til er í heiminum í dag
og það vinsælasta. Því teljum við til-
valið að fylla Laugardalshöllina af
hljóðkerfinu þegar Snoop Dogg kem-
ur.“ Funktion One hljóðkerfið kemur
í gegnum fyrirtækið Ofurhljóðkerfi,
sem er með leyfi fyrir Funktion One
á Íslandi.
Kristinn bætir við að Snoop Dogg
sé fyrsti viðburðurinn af mörgum
sem Nordic Events mun bjóða upp á.
,,Það eru spennandi tímar framundan
hjá okkur,“ segir hann en kveðst ekki
geta gefið upp að svo stöddu hvaða
viðburðir séu væntanlegir.
AFP
Nordic Events
Að sögn Kristins
mun fyrirtækið
flytja fleiri lista-
menn til landsins.