Morgunblaðið - 25.04.2015, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
Verð frá659.900 kr.*
og 12.500 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta 669.900 kr.
Fararstjóri er Jón Karl Einarsson
VITA - Skógarhlíð 12 - Sími 570 4444Flogið með Icelandair
Sigling umAsíu
3. - 25. október
PEKING-S.KÓREA- JAPAN-VIETNAM-SINGAPORE
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Nær ein af hverjum sex fjölskyldum í
landinu greiðir engan beinan skatt
eftir að tekið hefur verið tillit til bóta,
frádráttarliða o.fl. Á árinu 2013
greiddu 18% tekjulægstu fjölskyldn-
anna engan skatt en hlutfallið var
19% á árinu 2012. Þetta kemur fram í
nýrri úttekt á
skattbyrði fjöl-
skyldna í Tíund,
fréttariti Ríkis-
skattstjóra.
„Íslendingar
búa við stighækk-
andi skatt. Hvort
sem litið er til
krónutölu eða til-
tölu greiða tekju-
lágir lægri skatta en þeir sem hafa
meira umleikis. Stór hluti lands-
manna greiðir enga beina skatta en á
móti vegur að lítill hluti landsmanna
greiðir stóran hluta þeirra skatta
sem lagðir eru á einstaklinga á
hverju ári,“ segir í grein Páls Kol-
beins, rekstrarhagfræðings hjá Rík-
isskattstjóra, í Tíund.
Bendir hann á að tekjuhæsta tíund
fjölskyldna hér á landi var með 32,8%
heildartekna allra einstaklinga í
landinu á árinu 2013. Þessar fjöl-
skyldur greiddu 44,7% samanlagðra
skatta á árinu. Næsthæsta tíund
tekjuhæstu fjölskyldnanna var með
18% heildartekna allra fjölskyldna í
landinu og skattgreiðslur þessa hóps
voru 20,1% af heildarskattgreiðslum.
„Árið 2013 voru 10% fjölskyldna
með meira en 13.009.131 kr. í tekjur.
Samanlagt voru þessar fjölskyldur
með 372,8 milljarða í heildartekjur.
Þessi 18.531 fjölskylda var með tæp-
an þriðjung tekna einstaklinga í
landinu og greiddi 117,5 milljarða í
tekju- og eignarskatta sem var um
44,7% álagðra skatta,“ segir í grein-
inni. Bent er á að lítil breyting hafi
orðið á þessu milli áranna 2012 og
2013.
„Eitt prósent fjölskyldna var með
meira en 27.542.360 kr. í tekjur.
Þessar 1.853 fjölskyldur voru með
7,6% tekna og greiddu 11,5% skatta í
landinu,“ segir í greininni í Tíund.
Fram kemur að á hinn bóginn voru
92.700 fjölskyldur með minna en
4.311.627 kr. í tekjur á ári. „Þessar
fjölskyldur voru með tæpa 202,5
milljarða í tekjur og greiddu 20,7
milljarða í skatta. Helmingur fjöl-
skyldna var með 17,8% tekna og
greiddi 7,9% skatta. Árið 2012 var
helmingur landsmanna með sama
hlutfall tekna en þá greiddi þessi
helmingur um 7,6% beinna skatta í
landinu.“
Heildartekjur í neðri helmingi
tekjustigans hækkuðu um 5,7 millj-
arða, eða um 2,9% að raungildi, á
milli áranna 2012 og 2013. Skattarnir
hækkuðu um 1,6 milljarða. Tekjur í
efri helmingi skattstigans jukust um
tæpan 25,1 milljarð eða 2,8% að raun-
gildi og skattarnir um 9,9 milljarða,
eða 4,3%.
Sé litið yfir lengra tímabil og öllum
fjölskyldum í landinu raðað í vaxandi
röð eftir tekjum og skattur hvers og
eins reiknaður kemur fram að þeir
sem eru með lágar tekjur greiða
lægra hlutfall tekna í skatta en þeir
sem eru með háar tekjur en á síðustu
tveimur áratugum hefur skattbyrði
flestra tekjuhópa í þjóðfélaginu
þyngst. „Skattbyrði þeirra sem voru
lægstir í tekjuröðuninni jókst nokk-
uð á 10. áratugnum þegar tekjur juk-
ust í þjóðfélaginu og gildi afslátta og
bóta minnkaði. Skattbyrði tekju-
hæstu fjölskyldnanna jókst í upphafi
annars áratugar þessarar aldar þeg-
ar fjármagnstekjur minnkuðu á
sama tíma og fjármagnstekjuskattur
var hækkaður,“ segir í greininni.
Ólík tekjuskipting og
misþung skattbyrði
92.700 fjölskyldur með minna en 4.311.627 kr. í tekjur á ári
1.853 voru tekjuhæstar með yfir 27,5 milljónir í árstekjur
Morgunblaðið/Kristinn
Laun og skattar Í Tíund, fréttablaði Ríkisskattstjóra, er bent á að flókið samspil tekna, frádráttar, ívilnana, skatt-
hlutfalls, afslátta og bóta hefur áhrif á hversu stóran hluta tekna hver einstaklingur og fjölskylda greiða í skatt.
Tekjur og skattar fjölskyldna 2013
Fjöldi fjölskyldna Heildartekjur Skattar samtals
100%
80%
60%
40%
20%
0%
Heimild: Tíund fréttablað Ríkisskattstjóra
Óveruleg breyting varð á tekjuskiptingu og skattbyrði á milli áranna 2012 og 2013. Tekjuhæsta tíund fjölskyldna var
með 32,8% heildartekna einstaklinga í landinu árið 2013. Hlutur samsvarandi tíundar árið 2012 var 32,5%. Tíundin
greiddi 44,7% í skatta árið 2013, saman borið við 44,9% árið 2012. Hlutur þessarar tíundar í tekjum var 0,3% meiri
en hlutur hennar í sköttum var 0,2% minni. Hlutur tekjuhæsta fimmtungs fjölskyldna í heildartekjum jókst hins
vegar um 0,1% en hlutur þeirra í sköttum minnkaði um 0,5%.
11-20 31-40 51-60 71-80 91-1001-10 21-30 41-50 61-70 81-90
10%
32,8%
47,7%
20,1%
12,9%
10%
18,0%
13,3%
10%
Páll Kolbeins
Góður árangur hefur verið af heim-
ild ríkisskattstjóra til að stöðva
ólöglegan atvinnurekstur með at-
beina lögreglu á grundvelli stað-
greiðslu- og virðisaukaskattslaga.
Embættið hefur haft þessa heimild í
tvö ár og nú sinna tveir til þrír
starfsmenn þessu verkefni. Þetta
kemur fram í grein Sigurðar Jens-
sonar, sviðsstjóra eftirlitssviðs rík-
isskattstjóra, í Tíund, fréttablaði
embættisins.
„Á árunum 2013 og 2014 voru
skrifuð um 470 leiðbeinandi tilmæli
til rekstraraðila. Þar af sinntu um
70 aðilar í fyrstu ekki tilmælunum í
fyrstu skrefunum og hófst þá lok-
unarferli gagnvart þeim. Þegar
upp var staðið voru einungis fimm
tilvik þar sem kom til þess að
starfsstöð við-
komandi var inn-
sigluð með at-
beina lögreglu.
Þetta sýnir í
hnotskurn þann
árangur sem úr-
ræði sem þessi
skila, en á þess-
um árum var ein-
ungis horft til launaþátta því úr-
ræðin tóku einvörðungu til þessa.
Með nýjum úrræðum í virðisauka-
skattslögunum verður hægt að taka
mun fleiri atriði í skattskilum
rekstraraðila fastari tökum en áð-
ur,“ segir í greininni.
Komið hefur í ljós ákveðið ójafn-
vægi á milli þeirra sem hafa fastar
starfsstöðvar og atvinnurekstrar
þar sem engin föst starfsstöð er fyr-
irliggjandi. Bendir Sigurður á að til
að hægt sé að sinna þeim aðilum
með sambærilegum hætti sem ekki
hafa fasta starfsstöð hefur ríkis-
skattstjóri, í samstarfi við lögreglu,
kannað möguleika þess að stöðva
slíkan atvinnurekstur. Fyrir liggi
drög að verklagsreglum sem fljót-
lega verði farið að vinna eftir. Fel-
ur það m.a. í sér að launamönnum
og verktökum sem starfa fyrir
þann rekstraraðila sem stöðvun at-
vinnurekstrar beinist að sé óheimilt
að starfa fyrir hann á grundvelli
fyrirmæla lögreglu að viðlögðum
sektum. Jafnframt er lögreglu
heimilt að innsigla tæki og tól og
eftir atvikum efni sem tilheyrir við-
komandi. omfr@mbl.is
Fimm fyrirtæki innsigluð
með atbeina lögreglu
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„Það er athyglisvert að 9.436 af
31.961 fyrirtæki, sem búið var að
skila skattframtali um miðjan mars-
mánuð, voru ekki með neinar
rekstrartekjur. Það er tæpur þriðj-
ungur félaga,“ segir í nýrri grein í
Tíund, fréttablaði Ríkisskattstjóra,
þar sem farið er ítarlega yfir fram-
töl og niðurstöður álagningar á fyr-
irtæki og aðra lögaðila.
Páll Kolbeins, rekstrarhagfræð-
ingur og höfundur greinarinnar,
bendir á í skýringu á þessu að á
undanförnum árum hafi
fjárfestingarfélögum eða eign-
arhaldsfélögum fjölgað mikið og
þessi félög hafi flest hver aðallega
tekjur af vöxtum, arði eða geng-
isbreytingum.
„Af 31.961 fyrirtæki sem hafði
skilað skattframtali vegna rekstr-
arársins 2013 um miðjan mars sl. er
athyglisvert að rúmur helmingur,
eða 16.420 fyrirtæki, greiddi hvorki
laun né launatengd gjöld á árinu en
7.213 þeirra voru þó með rekstrar-
tekjur. Tekjurnar hafa þá bersýni-
lega orðið til af sjálfu sér, sem er
nýlunda,“ segir m.a. í greininni.
15.223 fyrirtæki með hagnað
Rekstrarhagnaður fyrirtækja
minnkaði skv. framtölum talsvert
milli áranna 2012 og 2013 og rekstr-
artap jókst. Árið 2013 var hagnaður
af rekstri 15.223 félaga. Saman-
lagður hagnaður þessara félaga var
tæpir 598 milljarðar. Á hinn bóginn
var tap af rekstri 14.492 félaga og
2.209 félög voru rekin á núlli. Það
var því hagnaður af rekstri tæps
helmings eða 48% félaga,“ segir í
grein Páls.
Á árinu 2012 var rekstrarhagn-
aður 1.186 milljarðar kr. og minnk-
aði hann um 588 milljarða á milli
ára, eða um 49,6%. Á sama tíma
jókst rekstartap félaga um 70 millj-
arða að raunvirði að því er fram
kemur og fór úr 153 milljörðum í
224 milljarða en minnt er á að árið
2012 var óvenjulegt fyrir þær sakir
að þá varð stór hluti rekstrartekna
til vegna leiðréttinga nokkurra fjár-
málafyrirtækja m.t.t. ársreikninga.
Í umfjöllun um skuldir fyrirtækja
og eigið fé segir meðal annars að frá
árinu 2000 og til 2007 jókst eigið fé
fyrirtækja um 10.034 milljarða en
þessi eign þurrkaðist út þegar eign-
ir féllu í verði á sama tíma og skuld-
ir hækkuðu. „Árið 2009 voru skuldir
4.416 milljörðum hærri en eignirnar
en síðan þá hefur gengið saman með
eignum og skuldum um 2.988 millj-
arða. Skuldir eru enn 1.432 millj-
örðum meiri en eignirnar,“ segir í
úttektinni í Tíund.
Eignir og skuldir falla í verði
Yfirlitið sýnir þá miklu breytingu
sem orðið hefur frá því kreppan reið
yfir. Frá árinu 2008 hafa eignir og
skuldir fallið í verði ár frá ári. Fram
til ársins 2010 féllu eignir um 9.520
milljarða á sama tíma og skuldirnar
minnkuðu um 6.671 milljarð. Skuld-
ir voru þá 4.262 milljörðum hærri en
eignir. Á árunum 2010 til 2013 lækk-
uðu skuldir svo hraðar en eignirnar,
eignirnar um 5.029 milljarða á sama
tíma og skuldir hafa lækkað um
7.854 milljarða.
Efnahagsreikningur fyrirtækj-
anna hefur því dregist mikið saman
á umliðnum árum. Úttektin í Tíund
leiðir í ljós að þau fyrirtæki sem
áttu fyrir skuldum áttu samtals
5.157 milljarða í eigið fé í árslok árið
2013. „Þau fyrirtæki sem skulduðu
meira en þau áttu skulduðu 6.595
milljarða umfram eignir árið 2013,“
segir í greininni.
Tæpur helmingur
félaga með hagnað
Þróun eigna og skulda fyrirtækja
1997 20052001 20091999 20072003 20111998 20062002 20102000 20082004 2012 2013
4.500
4.000
3.500
3.000
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
Eignir Skuldir
Heimild: Tíund fréttablað Ríkisskattstjóra
Skuldir jukust eins og eignir en þó ívið meira en þær. Frá árinu 2001 til 2007 rúmlega sexfölduðust eignir og skuldir
fyrirtækja. Árið 2008 féllu eignir í verði um 13,1% á sama tíma og skuldir jukust um þriðjung, en frá þeim tíma hafa
eignir og skuldir fallið. Fyrst féllu eignir mun hraðar en skuldir en síðustu þrjú árin hafa skuldir lækkað hraðar en
eignir og neikvætt eigið fé hefur minnkað.
14.492 fyrirtæki í tapi árið 2013