Morgunblaðið - 25.04.2015, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Gallerí Fold býður þér að koma með listaverk,
bækur og silfur til verðmats,
laugardaginn 25. apríl kl. 13-16.
Verðmatsdagur
í Gallerí Fold
Átt þú
verðmæti sem
þú vilt selja?
Sérfræðingar frá Gallerí Fold og Bókinni verða á staðnum
til að verðmeta listaverk, bækur og silfur með sölu í huga.
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Vetur og sumar frusu saman ogmargir fylltust bjartsýni um
sumarveðrið.
Öllu verraútlit er
þegar kemur
að vinnumark-
aðnum. Þar
stefnir í
áframhaldandi
frost og fyr-
irsjáanlegt er að afleiðingar þess
yrðu afar slæmar fyrir þjóðarbúið
og allan almenning. Og raunar
fleiri, því að fjórfætlingar og fið-
urfénaður fara ekki varhluta af
verkfallsaðgerðum frekar en aðrir.
Takist að semja á næstunni ogkoma atvinnulífinu aftur í eðli-
legt horf eru allar forsendur til að
efnahagslífið geti haldið áfram að
rétta úr kútnum.
Atvinnuleysi er nánast horfið oglaun og kjör hafa batnað.
Skuldir hafa minnkað og almenn-
ingur er farinn að treysta sér í
vörukaup sem of lengi höfðu setið á
hakanum, svo sem á nýjum bílum.
Fasteignamarkaðurinn er einnigfarinn að fá á sig eðlilegri blæ,
en svo gerist það að þinglýsingar
safnast upp vegna verkfallsaðgerða
hjá sýslumanni. Augljóst er að með
því sigla fasteignaviðskipti í strand
og hætt er við að aðrir markaðir
fylgi í kjölfarið.
Enginn er betur settur með þvíað verkfallsaðgerðir haldi
áfram eða verði umfangsmeiri.
Nú er búið að sýna verkfalls-vopnin og öllum er ljóst að
full alvara er beggja vegna samn-
ingaborðsins. Þá er tímabært að
ljúka málum af ábyrgð áður en
skaðinn verður meiri.
Í nístingsfrosti
fram eftir sumri?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 24.4., kl. 18.00
Reykjavík 0 léttskýjað
Bolungarvík -4 alskýjað
Akureyri -3 alskýjað
Nuuk 0 skýjað
Þórshöfn 2 skúrir
Ósló 6 skúrir
Kaupmannahöfn 12 léttskýjað
Stokkhólmur 11 heiðskírt
Helsinki 7 léttskýjað
Lúxemborg 20 heiðskírt
Brussel 21 heiðskírt
Dublin 12 skýjað
Glasgow 10 skúrir
London 17 léttskýjað
París 17 heiðskírt
Amsterdam 17 heiðskírt
Hamborg 18 heiðskírt
Berlín 20 heiðskírt
Vín 20 léttskýjað
Moskva 10 heiðskírt
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 22 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 20 heiðskírt
Róm 20 léttskýjað
Aþena 17 léttskýjað
Winnipeg 7 skýjað
Montreal 2 alskýjað
New York 6 alskýjað
Chicago 13 skýjað
Orlando 27 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
25. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:21 21:31
ÍSAFJÖRÐUR 5:13 21:49
SIGLUFJÖRÐUR 4:56 21:33
DJÚPIVOGUR 4:48 21:04
Veðurspáin fyrir næstu daga er
kuldaleg. Kalda loftið sem kemur
yfir landið úr norðri, sérstaklega í
dag, er eins kalt og hugsast getur á
þessum árstíma, að sögn Einars
Sveinbjörnssonar veðurfræðings.
Hann sagði þetta loft koma norðan
úr Íshafi og að Ísland lenti í miðju
þess kalda loftstraums sem legði
þaðan og suður á bóginn.
Einar sagði að þegar færi að vora
fyrir sunnan okkur og enn væri
talsverður vetur á norðurhjara leit-
aði kalda loftið til suðurs. Oftast
nær slyppum við og kalda loftið
færi yfir Kanada, Svalbarða eða
Norður-Noreg. Nú slyppum við
ekki.
Hann sagði að
af myndum að
dæma hefði tals-
vert snjóað á
Eyjafjarð-
arsvæðinu, jafn-
vel meira en gert
var ráð fyrir
samkvæmt spám.
Héldi þetta
áfram legðist
snjóföl yfir allt.
„Vorkoman er skrykkjótt eins og
oft áður,“ sagði Einar. „Við fengum
ágætis tíð í nokkra daga. Úr því að
við fáum þetta hret getum við hrós-
að happi yfir að gróður er óvíða
kominn af stað.“ gudni@mbl.is
„Vorkoman er skrykkjótt eins og oft áður“
Einar
Sveinbjörnsson
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Verkin frá Hólum eru orðin hátt
í 250 ára gömul,“ segir Sverrir
Kristinsson, bókavörður Hins ís-
lenska bókmenntafélags, en félag-
ið stendur um helgina fyrir mark-
aði á bókum úr einkasafni. Mikið
og fjölbreytt úrval íslenskra bóka
frá ýmsum tímum, sumt mjög
sjaldséð, verður þar að finna en
Sverrir segir að um mikil menn-
ingarleg verðmæti sé að ræða.
Verk frá Leirárgörðum
„Þarna er mikið um bækur um
þjóðlegan fróðleik auk ýmissa
skáld- og ritverka. Við getum
nefnt ýmis verk: Landfræðisögu
Íslands eftir Þorvald Thoroddsen,
Bréf og ritgerðir Stephans G.
Stephanssonar og verk eftir Sig-
urð Nordal,
Þórberg Þórð-
arson, Pál Egg-
ert Ólafsson og
fleiri,“ segir
hann.
„Það má auk
þess nefna
verkið Sá guð-
lega þenkjandi
náttúruskoð-
andi, sem
prentað var á Leirárgörðum árið
1798, það var prentað í nokkur ár.
Síðan er hér bók úr Viðey og
auk þess eintak frá 1772 af Njáls-
sögu, það var reyndar prentað í
Kaupmannahöfn,“ segir Sverrir.
Markaðurinn verður haldinn í
húsnæði Hins íslenska bók-
menntafélags, Skeifunni 3b, frá
klukkan 11 til 16 í dag og á morg-
un.
Elstu ritverkin eru
um 250 ára gömul
Þórbergur
Þórðarson
Bókmenntafélagið með markað
Bæjarráð Akur-
eyrar ákvað á
fundi sínum í
gær að áfrýja til
Hæstaréttar nið-
urstöðu Héraðs-
dóms Norður-
lands eystra frá
10. apríl sl. í máli
Akureyrarkaup-
staðar gegn
Snorra Óskarssyni og innanrík-
isráðuneytinu til réttargæslu.
Snorri var í byrjun apríl sýknaður
af kröfum bæjarins í héraðsdómi en
bærinn krafðist þess að úrskurður
ráðuneytisins, um að uppsögn
Snorra frá störfum við Brekku-
skóla væri ólögmæt, yrði felldur úr
gildi. „Afar brýnt er að fá úrskurð
Hæstaréttar um mörk tjáning-
arfrelsis kennara í grunnskólum og
ábyrgð þeirra þegar kemur að um-
fjöllun um minnihlutahópa,“ segir í
tilkynningu bæjarráðs.
Áfrýja máli Snorra
til Hæstaréttar
Snorri Óskarsson