Morgunblaðið - 25.04.2015, Blaðsíða 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
Nánar á oryggi.isÖryggismiðstöðin | Askalind 1 | Kópavogur | Sími 570 2400 – Njarðarnesi 1 | Akureyri | Sími 470 2400
mig, með því tek ég hugmynd ömmu
minnar lengra, “ segir Elsa Dagný.
Verkið fjallar um minningar og
nafnið ,,fragments“ vísar í minn-
ingabrot. „Gæti líka verið tannbrot,“
segir Elsa Dagný. Tannbrotin sem
urðu að mulningi; hvítu dufti inni í
glerperlum, sem allar eru í svipaðri
stærð um einn cm í þvermál og engar
tvær nákvæmlega eins í laginu frekar
en önnur mannanna handverk. „Ég
notaði gamaldags aðferð, muldi tenn-
urnar á milli tveggja stálplatna og
prófaði að því búnu alls konar aðferðir
til að bræða það inn í glærar gler-
perlur. Á endanum vann ég verkið hjá
Sverri Guðmundssyni, glersmiði við
Háskóla Íslands, með því að setja
duftið í glerrör, sem síðan var brætt
og gert perlulaga,“ útskýrir hún.
Sagan öll
En ekki var öll sagan sögð. Þar
sem markmið Elsu Dagnýjar var að
„þýða“ – eins og hún segir, þennan
efnisbrunn yfir á nýja hönnun vildi
hún gera frekari grein fyrir gildi
verksins fyrir fjölskyldu sína. Í því
skyni fékk hún nokkra fjölskyldu-
meðlimi til að skreyta sig skartinu og
sitja fyrir á mynd hjá ljósmyndara,
en sjálf var hún listrænn stjórnandi.
Þrjár þessara mynda eru partur af
verkinu. Og það er raunar líka loka-
ritgerð hennar frá Listaháskólanum,
sem hún skrifaði fyrir jólin og ber yf-
irskriftina Einu sinni var …, undir-
fyrirsögnin er Samband sagna og
vöruhönnunar.
„Ritgerðin er ekki beintengd
tannverkinu sem slíku, frekar nokk-
urs konar undanfari, en í henni lýsi
ég hvernig sögur og frásagnir koma
fram í vöruhönnun,“ segir Elsa
Dagný. „Sumar sögur má lesa úr
myndmáli hlutarins, hvort sem það
er efnið, aðferðin eða formið, aðrar
sögur myndast kringum tilfinn-
ingaleg tengsl við hlut og enn aðrar
hafa verið búnar til sem rammi til að
hanna vörur,“ segir hún m.a. í rit-
gerðinni
Það má augljóslega segja sögur
með ýmsum hætti, líka fjöl-
skyldusögur. Brot af fjölskyldusögu
Elsu Dagnýjar eru hjúpaðar gleri.Sveinn Jörundur frændi.
Perlum skreytt fjölskylda Bjarki frændi, Tinna Sól systir og Erna mamma.
Arna Katrín frænka.
Stærðin Perlurnar eru um einn sentimetri í þvermál.
Breytileg Tannduft í perlu.
Ljósmyndir/Hörður Ásbjörnsson