Morgunblaðið - 25.04.2015, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
ÁRMÚLI 17
533 12 34
WWW.ISOL.IS
Batterís Höggborvél Batterís Skrúfvél
Batterís Borvél Batterís Borvél
Batterís Stingsög Batterís Sleðasög
Batterí Hleðslutæki
Batterí - Borvél 10,8VBatterís Borvél 10,8V
Þyngd 2,1 kg m. magasíni
og batteríi.
Hægt að slökkva á höggi,
Þyngd 2,6 kg m. batteríi.
4 gírar, 1,5-13mm patróna.
Þyngd 1,8 kg m. batteríi.
2 gírar. 1,5-13mm patróna.
Þyngd 1,7 kg m. batteríi.
1500-3800 str/min,
Þyngd 2,4kg m. batteríi.
Gengur á 1 eða 2 batteríum og
afköstin eru á við snúrusög.
18V 5,2Ah-Li Ion batterí. Mjög fyrirferðarlítið, veggfesting
og einfalt að koma snúrunni fyrir
2 gírar og 12 torkstillingar, 10,8V.
Kemur í tösku með hleðslutæki
og 2 batteríum.
Þyngd 0,9kg með 2,6Ah batteríi.
Kemur í tösku með hleðslutæki
og 2 batteríum.
Verð: 70.921 kr. með VSKVerð: 60.547 kr. með VSK
Verð: 47.421 kr. með VSKVerð: 55.255 kr. með VSK
Verð: 96.325 kr. með VSKVerð: 65.416 kr. með VSK
Verð: 11.427 kr. með VSK
Verð: 20.562 kr. með VSK
Verð: 45.094 kr. með VSK Verð: 45.094 kr. með VSK
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Þorkell Sigurlaugsson er formaður fram-
kvæmdaráðs Ferðaþjónustu fatlaðra, sem sett
var á laggirnar eftir að neyðarstjórnin lauk
störfum í febrúar. Þorkell
sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að Ferðaþjón-
usta fatlaðra gengi betur
nú, eftir að neyðarstjórnin
lauk störfum í febrúar-
mánuði.
„Það er vissulega verk að
vinna. Þetta er ekki enn
komið í það lag sem við vilj-
um hafa þessa þjónustu.
Þessa mánuði erum við að
framkvæma tillögur neyð-
arstjórnarinnar, eins og nafnið á ráðinu gefur
til kynna og við vinnum að því að koma þess-
ari þjónustu í varanlegt horf,“ sagði Þorkell.
Þorkell segir að tillögur neyðarstjórn-
arinnar séu umfangsmiklar og það muni taka
tíma að hrinda þeim öllum í framkvæmd. „Það
má segja að það sé búið að slökkva elda og
sníða ýmsa agnúa af sem voru, þannig að
verkefnið er nú í ágætis farvegi,“ sagði Þor-
kell.
Hann segir að ýmsir hlutir hafi verið að
koma upp á, þó ekki jafn alvarlegir og voru á
tímabili í vetur.
Þorkell var valinn í ráðið fyrir hönd Sam-
taka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Í
ráðinu eru einnig tveir aðrir fulltrúar frá
sveitarfélögunum auk tveggja fulltrúa hags-
munasamtakanna, en þau áttu líka fulltrúa í
neyðarstjórninni.
„Það má segja að það sem vantaði á, fyrir
tíð neyðarstjórnarinnar, var að hagsmunaaðil-
arnir væru hafðir með í ráðum. Þeir sem til-
heyra félagasamtökum öryrkja, hvort sem
það eru hreyfihamlaðir, einhverfir, geðfatlaðir
eða einstaklingar með annars konar fötlun,
eru vitanlega með mismunandi vandamál, eft-
ir því hvers eðlis örorka þeirra er. Þetta er
mjög flókinn og erfiður hópur og því nauðsyn-
legt að hann eigi fulltrúa í framkvæmda-
ráðinu,“ sagði Þorkell.
Engar fréttir góðar fréttir
Smári Ólafsson, sviðsstjóri akstursþjónustu
Reykjavíkurborgar, segir að ferðaþjónusta
fatlaðra gangi ágætlega. „Þetta er allt komið í
hefðbundið, daglegt starf og í þessum efnum,
held ég að óhætt sé að segja, að engar fréttir
séu góðar fréttir,“ sagði Smári í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Smári segir að eftir að neyðarstjórnin, und-
ir forystu Stefáns Eiríkssonar, sviðsstjóra vel-
ferðarsviðs Reykjavíkurborgar, hætti störfum
í febrúarmánuði og skilaði af sér skýrslu, hafi
starfið gengið vel.
„Við höfum unnið ötullega að því að bæta
þjónustuna, alveg frá áramótum og höfum
gengið í alls konar umbótaverkefni sem
reyndust vera gagnleg og bæta þjónustuna,“
sagði Smári.
Agnúar sniðnir af Ferðaþjónustu fatlaðra
Þorkell Sigurlaugsson, formaður framkvæmdaráðs Ferðaþjónustunnar, segir að enn sé verk að vinna
Morgunblaðið/Kristinn
Ferðaþjónusta fatlaðra Formaður framkvæmdaráðs segir að enn sé verk að vinna.
Þorkell
Sigurlaugsson
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Þetta eru algjör straumhvörf. Með
bættu fjarskiptasambandi öðlast
sveitin nýtt líf og við komumst inn í
nútímann,“ segir
Benedikt Braga-
son, ferðaþjón-
ustubóndi á Ytri-
Sólheimum í
Mýrdal. Ljósleið-
arakerfi sem
flestir bæir í
Mýrdal tengjast
var tekið form-
lega í notkun í
gær. Fyrstu bæ-
irnir fengu teng-
ingu í október og smám saman hefur
netið orðið þéttriðnara. Yfirumsjón
með verkinu hafði Ingólfur Bruun
hjá Betri fjarskiptum ehf.
Dæmi hafa verið um að sjónvarps-
útsendingar um loftnet næðust ekki í
Mýrdal, en nú sést sjónvarp í há-
skerpu þegar myndin er fengin um
ljósleiðara. Samband yfir netið er
sömuleiðis stórum betra sem skiptir
miklu máli fyrir ferðaþjónustuna.
Koparlína dugar ekki
„Bókunum í ferðir og allri papp-
írsvinnu er að miklu leyti sinnt í fjar-
vinnslu í dag. Til þessa hefur síma-
sambandið verið einföld koparlína og
slíkt dugar ekki samkvæmt kröfum
nútímans,“ segir Benedikt Bragason
sem með konu sinni, Andrínu Guð-
rúnu Erlingsdóttur, rekur afþrey-
ingarfyrirtækið Arcanum ehf.
Benedikt segir Mýrdælinga lengi
hafa hamrað á kröfum sínum, en
ekkert hafi gengið. Því hafi fólk á
svæðinu gripið til sinna ráða, stofnað
einkahlutafélagið Líf í Mýrdal – og
vitni nafnið vel um hve miklu máli
ljósleiðaratengingar skipti sveitina.
„Netsamband og sjónvarpsendingar
hafa verið götóttar sem hefur komið
sér illa fyrir fólk sem er í gistingu hjá
okkur. Þeir gestir vilja ganga að allri
þjónustu, geta komist á samfélags-
miðla, í tölvupóst og fleira.“
17 hluthafar og 45 notendur
Það var fyrir rúmu ári sem hafist
var handa við að plægja niður alls 90
kílómetra af rörum í Mýrdalnum
sem ljósleiðari fer um. Stofnað var
áðurnefnt einkahlutfélag um verk-
efnið sem ferðaþjónustufyrirtæki,
tvö búnaðarfélög og Mýrdalshrepp-
ur eiga aðild að. Alls eru hlutafar 17
og notendur kerfisins sem Vodafone
þjónar eru alls 75.
Tæknilega byggist kerfið á svo-
kallaðri P2P Ethernet lausn með
1000 Mbits/1 Gbits grunnhraða og
því horft til framtíðar varðandi eft-
irspurn eftir nethraða. Mýrdæling-
um býðst nú aðgangur sem er 100
Mbits. Miðjubúnaður þessa kerfis er
í Víkurþorpi, en þaðan var kerfið
lagt í dreifbýlið í Mýrdal. Þá eru fjór-
ir tengipunktar í Vík sem auðveldar
mjög að ljósleiðaravæða þéttbýlið
þar.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Dráttur Frá framkvæmdum við lagningu ljósleiðarans sem miklu breytir.
Sveitin fær nýtt
líf með ljósleiðara
Mýrdalur í samband Mikill nethraði
Benedikt
Bragason