Morgunblaðið - 25.04.2015, Blaðsíða 42
42 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
FRÉTTASKÝRING
Brynja Dögg Guðmundsdóttir
brynjadogg@mbl.is
Barnaverndarstofa auglýsti nýlega
eftir fósturforeldrum. Að sögn Bryn-
dísar S. Guðmundsdóttur og Guð-
jóns Bjarnasonar, sérfræðinga á
Barnaverndarstofu, sem umsjón
hafa með fósturmálum, eru þó ekki
mörg börn á biðlista eftir því að
komast á fósturheimili. Hins vegar
skiptir miklu máli að Barnavernd-
arstofa hafi alla jafna aðgang að
fjölda fósturforeldra umfram þörf
hverju sinni, enda mikilvægt að
hægt sé að finna börnum á ólíkum
aldri og með mismunandi þarfir
hentug heimili.
Fjöldi umsókna um að gerast fóst-
urforeldrar hefur aukist nokkuð á
síðustu árum. Árið 1996 voru um-
sóknir til Barnaverndarstofu 51 en
þær voru 69 árið 2013. Fjöldi barna,
sem þurfa varanlegt fóstur, hefur
farið vaxandi. Um er að ræða 17-20
börn á ári en áður þurftu að jafnaði
um 10 börn á fóstri að halda. Börnin
eru allt frá því að vera nýfædd upp í
15 ára gömul og jafnvel eldri. Til-
vikin eru oftast mjög ólík.
Fósturráðstafanir hérlendis eru á
annað hundrað á ári hverju en yfir
þrjú hundruð börn eru í fóstri á
hverjum tíma. Guðjón og Bryndís
segja ýmsar skýringar geta verið á
því að þörf fyrir varanlegt fóstur fer
vaxandi en vísbending
sé þó um aukna neyslu fíkniefna
og óreglulegt líferni hjá foreldrum
ungra barna sem valdi var-
hugaverðum eða skaðlegum óstöð-
ugleika og óöryggi. Með fóst-
urráðstöfunum er átt við bæði
tímabundið fóstur, varanlegt fóstur
og styrkt fóstur en það síðastnefnda
er úrræði fyrir börn með verulega
hegðunarerfiðleika vegna geðrænna,
tilfinningalegra eða annarra vanda-
mála.
Eins og fram hefur komið hefur
umsóknum frá þeim sem vilja gerast
fósturforeldrar fjölgað en um leið
hefur umsækjendahópurinn tekið
breytingum. Á undanförnum árum
hafa fleiri sótt um að gerast var-
anlegir fósturforeldrar ungra barna.
Guðjón segir almennt ekki vandamál
að finna fósturforeldra fyrir lítil börn
en þegar um ræðir unglinga, sér-
staklega ef um ræðir margþættan
vanda barnanna, þá flækist málin.
Barnaverndarstofa fæst mjög oft
við þá stöðu að vera með barn sem
kann að hafa þörf fyrir tímabundið
fóstur í byrjun en síðar kemur á
daginn að ráðstöfunin þarf að vera
varanleg. Þetta á sérstaklega við
þegar um ræðir ung börn.
Heldur hefur fækkaði í hópi
þeirra sem sækjast eftir að taka
börn í tímabundið fóstur. Guðjón og
Bryndís telja ýmislegt geta skýrt
það. Áður var mjög algengt að börn
færu í sveit en nú er talsvert minna
um það. Þau telja þó enn þörf á fóst-
urheimilum í sveit en einnig æski-
legt að heimilin séu nálægt þéttbýli
og helst þeim skólum þar sem börn-
in hafa stundað nám við fyrir fóst-
urráðstöfun eða hæfa þeim vel að
öðru leyti. Rannsóknir Svía hafa
leitt í ljós að vel heppnuð skóla-
ganga skipti hvað mestu varðandi
velferð fósturbarna.
Þörf er á fleiri fósturforeldrum
sem geta tekið börn í styrkt fóstur
þar sem umsóknum fyrir börn með
margþættan vanda hefur fjölgað.
Guðjón og Bryndís segja að milli 20
og 30 börn séu í styrktu fóstri á
hverjum tíma. Þar er um að ræða
börn með miklar þarfir og eiga við
mikinn vanda að etja. Þessi tilvik
eru afar erfið úrlausnar þar sem
annað fósturforeldra þarf að gefa
sig að fullu í verkefnið.
Skortur á vistheimilum
Að mati Bryndísar og Guðjóns er
undirbúningur fósturs gjarnan full-
skammur. Þegar börn þurfa að yf-
irgefa heimili sín skyndilega þarf að
vera fyrir hendi vistheimili þar sem
hægt er að vista börnin á meðan
unnið er að því að finna fósturheim-
ili, undirbúa fósturforeldra, barnið
sjálft og kynfjölskyldu þess fyrir
flutning.
„Að mínu viti þyrftu aðstæður
barnaverndarnefnda almennt að
vera betri til að undirbúa fóst-
urráðstafanir. Til að mynda
væri æskilegt að barna-
verndarnefndir hefðu
greiðari aðgang að vistheim-
ilum í aðdraganda fósturs,“ segir
Bryndís. Það er nefnilega vanda-
samt og flókið ferli að finna rétta
foreldra handa barni. Barnavernd-
arstofa skoðar t.d. hvers konar fóst-
urráðstöfun verði líklegust, bak-
grunn barns, hegðun, áhugamál,
greiningar og ýmsa fleiri þætti.
Þessir þættir þurfa að fara vel sam-
an við þætti í fari fósturforeldra, s.s.
viðhorf fósturforeldra, vinnu, stað-
setningu og húsakynni, fjöl-
skyldugerð, stuðning, hæfni og ann-
að. Mikilvægt er að rétt ákvörðun sé
tekin um fósturheimili, þess vegna
þarf að vera aðgengilegt pláss í um-
hverfi þar sem hægt er að kynnast
barni og aðstæðum þess vel.
Auglýst eftir fósturforeldrum
Á annað hundruð börn fara í fóstur á ári hverju Skortur er á fósturforeldrum fyrir börn
í tímabundnu og styrktu fóstri og plássum á vistheimilum Umsóknir fósturforeldra að breytast
Morgunblaðið/Eggert
Fósturmál Ýmiskonar erfiðleikar geta komið upp þegar um ræðir ráðstöfun í fóstur. Þó að málin séu oft erfið hafa
rannsóknir á afstöðu fósturforeldra sýnt að þeir séu ánægðir með krefjandi hlutverk sitt og mæli með því.
Um tilkynningarskyldu almennings í barnaverndarmálum
er fjallað í barnaverndarlögunum. Tilkynna skal barna-
verndarnefnd í því umdæmi þar sem barn er búsett.
Barnaverndarnefndir bregðast við með því að athuga
hvort hefja skuli könnun máls eða mál látið niður falla.
Ef mál er látið niður falla er ekki aðhafst frekar í því. Eft-
ir könnun máls er máli lokið teljist ekki ástæða til frek-
ari afskipta eða forsendur fyrir afskiptum teljist
ekki fyrir hendi. Ef tilefni er til frekari afskipta er
mál unnið áfram. Reynt er að styðja fjölskyldur og
aðstoða ef hægt er. Fósturráðstöfun er einungis
beitt ef vægari úrræði eru fullreynd eða talin ekki geta
skilað árangri.
Tilkynningarskylda
FÓSTURRÁÐSTÖFUN ER NEYÐARÚRRÆÐI
Tilvonandi fósturforeldrar þurfa
að fara í gegnum töluverðan und-
irbúning áður en þau taka barn í
fóstur. Fyrst má nefna að tilvon-
andi fósturforeldrar þurfa að upp-
fylla settar kröfur að lögum, þeir
þurfa að skila ítarlegum upplýs-
ingum til Barnaverndarstofu og
þurfa svo að ljúka svokölluðu
Foster-Pride námskeiði, undirbún-
ingsnámskeiði sem Barnavernd-
arstofa heldur fyrir væntanlega
fósturforeldra.
Tilvonandi fósturforeldrar þurfa
að vera við öllu búnir og gera sér
grein fyrir hvaða verkefni þeir eru
að takast á hendur og þeim að-
stæðum sem upp geta komið.
Jafnframt þurfa þeir að átta sig á
samstarfi og stuðningi frá barna-
vernd. „Þrátt fyrir að fóst-
urumönnun geti verið mjög gef-
andi og rannsóknir í Noregi sýni
að fósturforeldrum þyki hlutverk
sitt bæði mikilvægt og skemmti-
legt er mikilvægt að fósturfor-
eldrar átti sig á að óvissa í þessu
ferli getur verið mikil og ýmislegt
komið upp,“ segir Bryndís.
Bryndís og Guðjón eru sammála
um að mikilvægustu eiginleikar
fósturforeldra séu áhugi, jákvæðni
og þolinmæði. „Fósturforeldrar
eru að leggja mjög mikið á sig og
verða því að hafa einlægan vilja til
að annast barn,“ segir Guðjón.
Morgunblaðið/Eggert
Barnaverndarstofa Haldið er nám-
skeið fyrir verðandi fósturforeldra.
Langur aðdragandi að fóstri
Námskeið að bandarískri fyrirmynd eitt af skilyrðum
leyfis fósturforeldra Áhugi, jákvæðni og þolinmæði
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottum fatnaði.