Morgunblaðið - 25.04.2015, Qupperneq 46
Andri Steinn Hilmarsson
Guðni Einarsson
Ólöf Nordal innanríkisráðherra seg-
ir það hafa verið með öllu ótímabært
að gefa út framkvæmdaleyfi og hefja
framkvæmdir á svæði Valsmanna
við Hlíðarenda. Þetta kom fram í
bréfi hennar til Dags B. Eggertsson-
ar borgarstjóra, sem vefritið Kjarn-
inn birti í gær.
Undir bréfið, sem dagsett er 17.
apríl síðastliðinn, skrifar einnig
Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneyt-
isstjóri innnaríkisráðuneytisins, og
segir þar að ekki liggi fyrir niður-
staða verkefnisstjórnar um könnun á
flugvallarkostum og að Samgöngu-
stofa hafi enn til umfjöllunar mögu-
leg áhrif lokunar flugbrautar 06/24,
eða neyðarbrautarinnar eins og hún
er yfirleitt kölluð. Brautinni verði því
ekki lokað á meðan niðurstöður
nefndarinnar liggja ekki fyrir eða
aðrar ákvarðanir teknar sem leiða til
þess að flugbrautin verði tekin úr
notkun.
Framkvæmdir á svæðinu hófust
hinn 13. apríl sl. og eru þær undan-
fari uppbyggingar og byggingar-
framkvæmda á svæðinu, sem ekki
getur orðið af að óbreyttum skipu-
lagsreglum flugvallarins, segir í
bréfinu en gert er ráð fyrir að 800 til
850 íbúðir rísi á svæðinu á næstu sex
árum. Fyrst á að leggja fram-
kvæmdaveg um svæðið til að hægt sé
að komast að öllum lóðunum níu sem
skipulagðar eru á svæðinu.
Telur borgina í fullum rétti
Hjálmar Sveinsson, formaður um-
hverfis- og skipulagsráðs Reykjavík-
urborgar, segir öll skilyrði hafa verið
uppfyllt þegar framkvæmdaleyfið
var veitt.
„Ég veit ekki betur en að borgin
sé í fullum rétti til að skipuleggja sitt
landsvæði og veita framkvæmda-
leyfi,“ segir hann og bætir við að
framkvæmdirnar á þessum stað hafi
ekki neitt með flugbrautina að gera
til að byrja með. Eins segir hann
mjög mikilvægt að hafa það í huga að
það sé Reykjavíkurborg sem fari
með skipulagsvaldið og veiti fram-
kvæmdaleyfi.
„Valsmenn ætla þarna að byggja
tvær byggingar til að byrja með á
svæði sem er fjærst flugbrautinni.
Það er þó nokkuð í að þessar fram-
kvæmdir muni hafa einhver áhrif á
þessa flugbraut, sem er þó ekki til
lengur á skipulagi,“ segir hann.
Grípa þarf til varna
Sem kunnugt er sagði Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson forsætis-
ráðherra á flokksþingi Framsóknar-
flokksins fyrr í þessum mánuði að
öllum mætti vera ljóst „að grípa þarf
til varna fyrir Reykjavíkurflugvöll
og koma í veg fyrir að borgaryfirvöld
grafi stöðugt undan flugvellinum og
beiti brögðum til að losna við hann“.
Morgunblaðið/Kristinn
Hlíðarendi Framkvæmdir eru hafnar en innanríkisráðherra segir þær með öllu ótímabærar.
Ótímabært að gefa út
framkvæmdaleyfið
Innanríkisráðherra skrifaði borgarstjóra um Hlíðarenda
Ólöf Nordal Hjálmar Sveinsson
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Búið er að gefa út stiklu fyrir nýja
teiknimyndaseríu um Vini í Valhöll,
sem ætlunin er að kynna fyrir er-
lendum sjónvarpsstöðvum. Stiklan,
sem aðgengileg er á netinu, byggist
á samnefndri rafbók sem nú er í
vinnslu og fjallar um ævintýri goð-
anna í Ásgarði þegar þau eru á
barnsaldri.
Bjarni Einarsson, einn af höfund-
um þáttanna, segir hugmyndina
hafa kviknað út frá rafbókinni, sem
var meðal annars fjármögnuð á hóp-
fjármögnunarsíðunni karolinafund.-
com. Hann hafi tekið eftir því hversu
mikill áhugi var á verkefninu. „Þá
ákvað ég að skoða hvort hægt væri
að búa til sjónvarpsseríu úr þessu.
Næsta dag hafði ég samband við
RÚV og Skjáinn og þau sögðu strax
að þetta hljómaði vel en þau þyrftu
að sjá einhvers konar stiklu.“
Áhugi frá útlöndum
Bjarni ákvað einnig að skoða
hvort áhugi væri erlendis og hafði
samband við NRK, DR og SVT auk
ARD í Þýskalandi og segir að þær
stöðvar hafi tekið vel í hugmyndina,
en stiklan er hluti af kynningarefni
til þeirra.
Þótt Bjarni hafi átt upphaflegu
hugmyndina segir hann að ekkert
hefði orðið úr þessu án samstarfs-
manna sinna og nefnir þar sérstak-
lega þau Alexöndru Eyfjörð, sem
skrifar handrit með Bjarna, Karítas
Gunnarsdóttur, sem teiknar þætt-
ina, og Kristján Frey Einarsson hjá
Playmo-teiknistúdíóinu sem sér um
að gæða teikningarnar lífi. „Ég er
rosalega heppinn að hafa fundið
teymi þar sem hver meðlimur kemur
með hæfileika á sviðið sem ég gæti
bara látið mig dreyma um. Án þeirra
hefði þetta aldrei orðið að veruleika
og ekki eins æðislegt og það varð.“
Vinir í Valhöll hugsanlega
seldir til erlendra stöðva
Ný teiknimyndasería byggð á norrænni goðafræði
Vinir í Valhöll Ætlunin er að búa til teiknimyndaseríu um ævintýri goðanna.
BAILEYS-TERTA
SÍMI: 588 8998
RÓSATERTA MEÐ
FRÖNSKU BANANA-SMJÖRKREMI
Kökur og kruðerí
að hætti Jóa Fel
GULRÓTARTERTA
BROSKALLAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
Innlent