Morgunblaðið - 25.04.2015, Blaðsíða 50
50 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
Laugavegi 54, sími 552 5201
Finnið okkur á facebook
Nýir sumarkjólar
Stærðir 36-48
20% afsláttur
Fyrir brúðkaupið
og útskriftina
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Hákarlaveiðar eru stundaðar á
nokkrum stöðum á Íslandi. Óðinn Sig-
urðsson á Húsavík er einn þeirra sem
stunda þennan fornfræga atvinnuveg
og bjarga þannig þorranum fyrir
marga. Kæsti hákarlinn er ómissandi.
Hákarlalýsið, sem oft er geysimikið,
er líka nýtt í skepnufóður og hefur
verið notað á dísilbíla. Með Óðni rær
Helgi Héðinsson, 86 ára gamall Hús-
víkingur sem hefur áratuga reynslu af
hákarlinum.
„Óðinn var með mér til að byrja
með en nú er hann tekinn við og ég ræ
með honum frænda mínum, bara mér
til ánægju,“ segir Helgi. „Ég hef ekki
gert annað um dagana en að stunda
sjó og þetta er gott fyrir heilsuna. Við
fengum fjóra væna fiska um daginn
en þar á undan höfðum við ekki náð
fiski í fjóra mánuði þó að við bleyttum
alltaf í sjó. Við erum með sjö króka á
annarri línunni en sex á hinni. Í beitu
notum við bara spik af sel og hnísu.“
Helgi segir að dálítið komi alltaf af
vel feitum vöðusel með hafísnum og
jafnvel fleiri tegundum. Í hákarls-
maganum sé því oft selspik en nýlega
hafi þeir einnig séð rengi af hrefnu í
einum. Fiskurinn hafi vafalaust fund-
ið hrefnuna dauða á sjávarbotni. En
hvað er þetta stór hákarl sem þeir
veiða?
Vissara að gæta sín
„Þrír af þessum fjórum voru mjög
vænir, hver þeirra losaði tonn. Það
var mikið af lifur í þeim, sá sem lifraði
best var með um 230 lítra af lifur. En
þeir voru allir mjög sverir og lifr-
armiklir. Við setjum lifrina í plastílát
og sólin er látin bræða hana. Svo er
þetta gefið skepnum, þykir ágætt fóð-
ur en hefur líka verið prófað á dís-
ilbíla.“
Helgi segir að ef fiskurinn maga-
gleypi krókinn geti hann hjarað í
nokkra daga en sé þá við það að drep-
ast. En þessir fjórir sem veiddust um
daginn hafi verið kraftmiklir. Þá sé
vissara að gæta sín á þeim ef það sé
veltingur.
Hákarlaveiðar séu stopular en eitt
sumarið hafi þeir samt fengið sjö fiska
í júlímánuði. Línan sé yfirleitt látin
liggja í hálfan mánuð. Fiskurinn virð-
ist helst taka beituna þrem dögum
fyrir nýtt tungl og þrem dögum eftir
fullt tungl, hann komi gjarnan á rétt
eftir stórstreymi.
„En þetta er annars bara lotterí,
þessar veiðar. Við verkum hákarlinn
sjálfir en þá vandast málið vegna veð-
urfarsins og flugunnar. Hann þarf að
liggja í kös í fimm vikur og seinnipart-
inn í maí hengjum við hann upp. Þetta
þolir ekki mikinn hita meðan það er
alveg hrátt og nýsett upp. Lágmarkið
er að hann fái að þorna í fjóra mánuði
eftir að hafa legið fimm til sex vikur í
kös,“ segir Helgi Héðinsson á Húsa-
vík.
„Þetta er annars bara
lotterí þessar veiðar“
Helgi Héðinsson hefur stundað hákarlaveiðar í áratugi
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Vel lifraður Stór hákarl er engin smásmíði og getur vegið tonn. Hér er
Helgi Héðinsson við einn slíkan. Þeir félagar fengu fjóra í sama túrnum.
Morgunblaðið/Hörður Jónasson
Aðgerð Helgi Héðinsson (tv.) og Óðinn Sigurðsson á Húsavík gera að myndarlegum hákarli.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Garðyrkjuverðlaunin 2015 voru af-
hent á opnu húsi í garðyrkjudeild
Landbúnaðarháskóla Íslands á
Reykjum í Ölfusi, hvar var opið hús
á sumardaginn fyrsta eins og tíðk-
ast hefur í áratugi. Verðlaunin, sem
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra afhenti, fóru til
verknámsstaðar í garðyrkju auk
þess sem veitt voru hvatningar- og
heiðursverðlaun.
Þórir Kr. Þórisson er í forsvari
fyrir skrúðgarðyrkjufyrirtækið
Stjörnugarða sem fékk verðlaun
verkmannsstaða. Þórir Kr. hefur
starfað við garðyrkju í um tuttugu
ár og einbeitir sér að jarðvinnu.
Það var árið 2012, að loknu námi,
sem Þórir stofnaði Stjörnugarða og
dafnar fyrirtækið vel og verkefni
eru fjölbreytt.
Hvatningaverðlaun garðyrkj-
unnar 2015 fengu Gunnar Þorgeirs-
son og Sigurdís Edda Jóhanns-
dóttir, sem reka gróðrarstöðina
Ártanga í Grímsnesi. Þau hófu
starfsemi árið 1985, þá nýlega flutt
heim frá Danmörku. Á Ártanga var
lengi stunduð pottaplönturæktun
en á síðustu árum hefur framleiðsla
á kryddjurtum orðið uppistaðan í
rekstrinum og hefur það gefist vel.
Brandur Gíslason fékk heiðurs-
verðlaun garðyrkjunnar 2015.
Hann hefur starfað við skrúðgarð-
yrkju í áratugi og stofnaði fyr-
irtækið Úða árið 1973, sem hann
rak óslitið til ársins 2010. Þá seldi
Brandur fyrirtækið og fylgdi sjálf-
ur með í kaupunum. Fyrirtækið
heitir í dag Hreinir garðar – Úði.
Brandur hefur verið talsmaður
þess að efla kennslu í meðferð
varnarefna í garðyrkju og hefur
barist fyrir því á opinberum vett-
vangi.
Stjörnugarðar og krydd
Sumargleði á Reykjum í Ölfusi Verðlaun til garðyrkju-
fólks Jarðverktaki, Árbakkabændur og úðamaður
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Verðlaun Frá vinstri Brandur Gíslason, Gunnar Þorgeirsson, Sigurdís Edda
Jóhannsdóttir, Þórir Kr. Þórisson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og
Björgvin Eggertsson garðyrkjuskólamaður. Fremst er forseti Íslands.