Morgunblaðið - 25.04.2015, Síða 58
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Alþjóðleg mannréttindasamtök
sögðu í gær að aðgerðir sem ríki
Evrópusambandsins hafa samþykkt
dygðu ekki til að koma í veg fyrir
fleiri mannskæð sjóslys í Miðjarðar-
hafi þar sem þúsundir flóttamanna
hafa drukknað.
Mannréttindasamtökin Amnesty
International og Human Rights
Watch og hjálparsamtökin Save the
Children, Barnaheill, sögðu að ríki
Evrópusambandsins þyrftu að
stækka eftirlitssvæði skipa sem hafa
annast björgunarstarfið á Mið-
jarðarhafi á vegum landamæra-
stofnunar sambandsins. Skipin
þyrftu að fara nær strönd Líbíu þar
sem nokkur mannskæð sjóslys hafa
orðið. Yfir 35.000 flóttamenn hafa
farið yfir hafið frá Norður-Afríku til
Evrópu það sem af er árinu og talið
er að um 1.500 hafi drukknað á leið-
inni. A.m.k. 3.500 til viðbótar fórust í
hafinu á síðasta ári.
John Dalhuisen, framkvæmda-
stjóri Evrópudeildar Amnesty, sagði
að með aðgerðunum vildu ESB-ríkin
„bjarga andlitinu“ frekar en bjarga
mannslífum. Niðurstaðan væri
„skammarleg“, enn fleiri flóttamenn
myndu drukkna og ESB-ríkjunum
hefði enn einu sinni mistekist að
leysa vandann.
„Það er ekki nóg að fjölga bátum
ESB á hafinu ef þeir einbeita sér að
því að verja landamæri Evrópuríkj-
anna frekar en að vernda fólkið sem
deyr á leiðinni yfir hafið,“ hafði
fréttavefur breska ríkisútvarpsins
eftir Kenneth Roth, framkvæmda-
stjóra Human Rights Watch.
Framlögin þrefölduð
Leiðtogar ESB-ríkjanna sam-
þykktu á fundi í Brussel í fyrradag
að þrefalda fjárframlögin til eftir-
lits- og björgunarstarfsins í Mið-
jarðarhafi. Fjárframlögin eiga að
nema 120 milljónum evra, jafnvirði
17,7 milljarða króna, og verða jafn-
mikil og til Mare Nostrum, björg-
unarverkefnis sem var stöðvað á síð-
asta ári. Verkefnið var umdeilt
vegna kostnaðarins og var sagt
stuðla að enn meiri straumi flótta-
fólks yfir hafið frá Norður-Afríku til
Ítalíu. Við tók verkefni sem nefnist
Triton og hefur verið miklu viða-
minna.
Á leiðtogafundinum náðist ekki
samkomulag um hvernig afgreiða
ætti hælisumsóknir flóttamanna eft-
ir komu þeirra til Ítalíu. Mörg ESB-
Aðgerðir ESB-ríkja duga e
Mannréttinda-
samtök gagnrýna
niðurstöðu
leiðtogafundar
Heimildir: Frontex,„Le dessous des cartes“, ESB
Á landi
Heilstu leiðir
Á sjó
Helstu
landamæra-
stöðvar
Helstu
flugvellir
Sch
eng
en-s
væð
ið
Stefna ESB
gagnvart grannríkjum
Samningar
Óformlegt
samstarf
Leiðir flóttamanna
og innflytjenda til
ESB-landa
ALS ÍR
MAROKKÓ TÚNIS
EGYPTAL .
TYRKLAND
HVÍTA-
RÚSSL .
ÚKRAÍNA
MOLDÓVA
GEO.
ARM. AS .
SÝRLAND
LÍB .
JÓRD.
ÍSR .
Átök
Samstarf
stöðvaðist
árið 2011
L ÍB ÍA
Í höfn Flóttafólk sem bjargað var úr báti á Miðjarðarhafi gengur á
hafnarbakka í bænum Augusta á Sikiley eftir að hafa verið flutt þangað með herskipi.
Um 283.000 flóttamenn og ólöglegir
innflytjendur voru stöðvaðir á
landamærastöðvum og flugvöllum
aðildarríkja Evrópusambandsins á
síðasta ári. Þar af fóru um 220.000
með bátum yfir Miðjarðarhafið frá
Norður-Afríku til Ítalíu og Möltu,
að sögn embættismanna sambands-
ins.
Flestir þeirra sem fara yfir Mið-
jarðarhafið frá Norður-Afríku
koma frá Afríku sunnan Sahara og
Mið-Austurlöndum, einkum Sýr-
landi og Írak. Um 170.800 flótta-
mannanna fóru yfir hafið frá Líbíu.
Flóttamönnum og ólöglegum inn-
flytjendum sem fóru þessa leið
fjölgaði um 42% í fyrra miðað við
árið áður.
Um 50.830 flóttamenn voru stöðv-
aðir í Grikklandi, Búlgaríu og Kýp-
ur á síðasta ári, tvöfalt fleiri en árið
áður. Flestir voru stöðvaðir á þess-
um leiðum árið 2011, þegar arab-
íska vorið svonefnda var í hámarki,
eða 57.000 manns. Þorri þeirra kom
þangað frá Sýrlandi, Afganistan og
Sómalíu, með viðkomu í Tyrklandi.
Um 7.800 ólöglegir innflytjendur
voru stöðvaðir á vestanverðu Mið-
jarðarhafi, meðal annars Gíbraltar-
sundi, og spænsku borgunum Ceuta
og Melilla á strönd Marokkó.
AFP
Bjargað Flóttamenn og ólöglegir
innflytjendur í ítölsku varðskipi.
283.000 flóttamenn og
ólöglegir innflytjendur
Skeifunni 8 | Kringlunni
sími 588 0640 | casa.is
CINDY
Verð 37.500.-
BOURGIE
Verð frá 42.900.-
TAKE
Verð 14.900.-
COMPONIBILI
Verð frá 22.900.-
Sími 555 2992 og 698 7999
Hátt hlutfall
Omega 3 fitusýra
Meiri virkni
Gott fyrir:
Maga- og þarmastarfsemi
Hjarta og æðar
Ónæmiskerfið
Kolesterol
Liðina
Læknar mæla
með selaolíunni
Selaolían fæst í:
apótekum, Þín verslun Seljabraut,
heilsuhúsum, Fjarðarkaupum,
Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð
Selaolía Meiri virkniEinstök olía
Nýtt útlit