Morgunblaðið - 25.04.2015, Síða 59
FRÉTTIR 59Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
AKUREYRI
Draupnisgötu 5
462 3002
EGILSSTAÐIR
Þverklettum 1
471 2002
REYKJAVÍK
Skeifunni 5
581 3002
REYKJAVÍK
Skútuvogi 12
581 3022
– fyrir kröfuharða ökumenn
www.dekkjahollin.is
Skoðaðu úrvalið á vefnum okkar:
/dekkjahollin
ríkjanna vilja ekki taka við fleiri
hælisleitendum. „Ég hafði vonað að
við tækjum á þessu af meiri metnaði
en það var ekki hægt,“ hefur frétta-
veitan AFP eftir Jean-Claude
Juncker, forseta framkvæmda-
stjórnar ESB.
Vilja heimild til hernaðar
Nokkur ESB-ríki, m.a. Bretland,
Þýskaland, Frakkland og Belgía,
lofuðu að leggja til herskip, þyrlur
og önnur tæki. Leiðtogarnir ákváðu
einnig að kanna leiðir til að granda
bátum sem glæpamenn í Líbíu gætu
notað til að smygla flóttafólki yfir
hafið. Leiðtogar Bretlands og
Frakklands samþykktu að leita eftir
heimild öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna fyrir því að hefja hernað
gegn glæpahópum sem smygla fólki
yfir hafið.
Fréttaskýrendur og sérfræðingar
í öryggismálum hafa þó látið í ljósi
efasemdir um að hægt verði að leysa
vandann með því að granda bátum
glæpahópanna, m.a. vegna hættunn-
ar á að flóttafólk bíði bana í árás-
unum. „Það væri ekki auðvelt verk-
efni að sökkva bátum í höfnum
Líbíu,“ hefur AFP eftir evrópskum
embættimanni sem vildi ekki láta
nafns síns getið. Hann bætti við að
t.a.m. væri hætta á að evrópskir her-
menn yrðu fyrir árásum vígamanna
Ríkis íslams, samtaka íslamista, sem
hafa náð svæðum í Líbíu á sitt vald.
ekki
AFP
Embættismenn í Taílandi byrjuðu í
gær að telja tígrisdýr í munka-
klaustri í Kanchanaburi-héraði í
vesturhluta landsins og sögðu að
munkarnir hefðu haldið nær 150
tígra sem gæludýr án tilskilinna
leyfa. Dýraverndarsamtök höfðu
látið í ljósi áhyggjur af aðbúnaði
dýranna.
Embættismennirnir hófu rann-
sókn málsins eftir að dýralæknir
klaustursins skýrði lögreglunni frá
því að þrjú tígrisdýr hefðu horfið
úr klaustrinu. Óttast var að dýrin
hefðu verið seld.
Klaustrið heitir Wat Pha Luang
Ta Bua og er oft kallað „Tígra-
hofið“. Það hefur notið mikilla vin-
sælda meðal erlendra ferðamanna
sem flykkjast þangað til að láta
taka myndir af sér með tígrisdýr-
unum.
Embættismenn þjóðgarða- og
náttúruverndarráðuneytis Taílands
sögðu fyrr í vikunni að þeir hygðust
fara í klaustrið til að fjarlægja
tígrisdýrin. Þegar þeir mættu á
staðinn í gær létu þeir þó nægja að
telja dýrin og skanna örflögur sem
höfðu verið settar í þau.
Deilt um nær 150 tígris-
dýr í munkaklaustri
AFP
Tígrahofið Vörður faðmar eitt tígrisdýranna í taílenska munkaklaustrinu.
Mannréttinda-
fulltrúi Samein-
uðu þjóðanna
hefur hvatt
bresk yfirvöld til
að taka á haturs-
fullum yfir-
lýsingum í garð
útlendinga í fjöl-
miðlum eftir að
flóttafólki var
lýst sem „kakkalökkum“ í grein í
The Sun. Í greininni lýsti sjónvarps-
og blaðakonan Katie Hopkins einn-
ig flóttafólkinu sem fer yfir Mið-
jarðarhafið frá Afríku til Evrópu
sem „nóróveiru á skemmtiferða-
skipi“. Mannréttindafulltrúinn
sagði orðin sem Hopkins notaði
minna á hatursfullar yfirlýsingar í
blöðum í Rúanda fyrir fjöldamorðin
þar 1994 og í blöðum nasista fyrir
helför gyðinga.
BRETLAND
Tekið verði á
hatursáróðri
Katie Hopkins