Morgunblaðið - 25.04.2015, Síða 63
63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
Verðandi slökkviliðsmenn Sýning Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu veður formlega opnuð í Ráðhúsinu í Reykjavík í dag en þau sem erfa munu landið fengu forskot á sæluna í gær.
Árni Sæberg
Landsvirkjun er
fimmtíu ára í ár. Fyr-
irtækið var stofnað ár-
ið 1. júlí árið 1965, í
kringum byggingu
Búrfellsvirkjunar.
Þessar framkvæmdir
báru vott um stórhug
og framsýni, enda er
virkjun þess eðlis að
afraksturinn kemur oft
ekki í ljós fyrr en að
mörgum árum liðnum.
Það er mikilvægt að horfa til fram-
tíðar og það er grunnurinn að öllum
framförum. Uppbygging Lands-
virkjunar hefur alltaf snúist um
framtíðina.
Við hjá Landsvirkjun erum stolt
af þessari arfleifð og staðráðin í að
halda henni við. Það er okkar hlut-
verk að horfa fram á veginn og búa í
haginn fyrir afkomendur okkar með
því að hámarka afrakstur af þeim
orkulindum sem fyrirtækinu er trú-
að fyrir, með sjálfbæra nýtingu,
verðmætasköpun og hagkvæmni að
leiðarljósi.
Við stöndum á ákveðnum tíma-
mótum, á þessu hálfrar aldar afmæli
fyrirtækisins. Við stöndum á traust-
um grunni þeirrar miklu uppbygg-
ingar sem hefur átt sér stað á þess-
um fimmtíu árum. Þessi mikla
uppbygging hefði aldrei verið mögu-
leg án þess að byggð hefðu verið
upp farsæl viðskiptasambönd við
fjölmörg erlend stórfyrirtæki sem
hafa ákveðið að setja upp starfsemi
hér.
Traustur fjárhagur
Við sjáum þennan trausta grund-
völl Landsvirkjunar birtast í af-
komu hennar og efnahagsreikningi,
en á árinu 2014 nam hagnaður fyrir
óinnleysta fjármagnsliði 19 millj-
örðum króna. Eignir umfram skuld-
ir nema nú rúmum 230 milljörðum
króna og eiginfjárhlutfallið er tæp-
lega 40%. Það hefur ekki verið
hærra frá upphafsárum Landsvirkj-
unar og fjárhagsstaða fyrirtækisins
batnar með hverju
árinu sem líður.
Annar mælikvarði,
sem okkur er tamt að
líta til, er svokölluð
fjármunamyndun í
rekstri fyrirtækisins:
Það sem við höfum til
ráðstöfunar eftir að við
erum búin að greiða
allan rekstrarkostnað
og vaxtakostnað
Landsvirkjunar. Á síð-
ustu fimm árum hefur
fjármunamyndunin
numið rúmum 140
milljörðum króna: Fjárfestingar í
orkumannvirkjum rúmum 60 millj-
örðum og niðurgreiðsla skulda rúm-
um 80 milljörðum króna.
Dregið úr áhættu
Afkoma Landsvirkjunar mun
áfram ráðast að miklu leyti af þróun
álverðs, vaxta og gjaldmiðla, en við
höfum að undanförnu unnið mark-
visst að því að draga úr áhættu sem
tengist þessum þáttum og ánægju-
legt er að sjá þess merki í rekstri fé-
lagsins.
Aukin eftirspurn er
komin til að vera
Vísbendingar eru um að markaðs-
umhverfið sé að verða Landsvirkjun
enn hagfelldara. Spurn eftir orku
fer sívaxandi í heiminum og raf-
orkuverð fer hækkandi. Þessi aukna
eftirspurn gefur vísbendingar um að
við getum í framtíðinni haldið áfram
að greiða niður skuldir og fengið
aukið svigrúm til þess að greiða eig-
endum okkar arð.
Í markaðsstarfi okkar höfum við
orðið vör við aukinn áhuga frá
stærri og breiðari hópi fyrirtækja
en áður, úr fjölbreyttari iðn-
greinum. Þessi aukna eftirspurn
hefur m.a. haft þá ánægjulegu birt-
ingarmynd að raforkuverð til iðn-
aðar hefur hækkað umtalsvert með
nýjustu samningum fyrirtækisins.
Þetta nýja ástand, þar sem eft-
irspurn er meiri en framboð, er
komið til að vera og því fylgja nýjar
áskoranir. Ef þróun á alþjóðlegum
raforkumörkuðum verður eins og
spáð er og ef vel tekst til í rekstri
Landsvirkjunar, mun afkoma fyr-
irtækisins og arð- og skattgreiðslur
hafa mjög jákvæð áhrif á lífskjör Ís-
lendinga.
Við erum í öfundsverðri stöðu
Við Íslendingar erum orðnir svo
góðu vanir að okkur hættir til að
taka auðlindum okkar sem sjálf-
sögðum hlut. Við eigum líka til að
gleyma því að öll orka sem við fram-
leiðum hérna er endurnýjanleg.
Vatnið sem rennur til sjávar og knýr
túrbínurnar okkar á leiðinni gufar
upp og snýr aftur upp á hálendið þar
sem hringrásin hefst á ný.
Útlendingar horfa margir hverjir
öfundaraugum á okkur. Í Banda-
ríkjunum og innan Evrópusam-
bandsins er lögð höfuðáhersla á að
auka hlut endurnýjanlegrar orku í
orkuframleiðslunni, enda hafa aðrir
orkugjafar – jarðefnaeldsneyti og
kjarnorka, svo dæmi séu tekin –
ýmsa ókosti í för með sér fyrir sam-
félag og umhverfi. Við hjá Lands-
virkjun erum farin að finna fyrir því
að þessi kostur – að orkan sé end-
urnýjanleg – er orðinn eftirsóttur í
sjálfum sér hjá erlendum aðilum.
Það er einnig til marks um breytt
umhverfi á markað fyrir raforku í
heiminum, að víðs vegar er orku-
öryggi í hættu. Sem dæmi má nefna
Bretland, en þar fækkar nú óðum
kolaorkuverum, um leið og eft-
irspurn eftir orku eykst. Þetta hefur
gert að verkum að geta raforkukerf-
isins í Bretlandi til að mæta sveifl-
um í eftirspurn hefur minnkað
mjög. Bretar hafa mikinn áhuga á
því að gera langtíma samninga um
orkukaup og breska ríkisstjórnin
hefur þegar gert samninga við fjöl-
marga aðila sem tryggja ákveðið
aukagjald fyrir afhendingaröryggi.
Þeir líta svo á að um þjóðaröryggi sé
að tefla.
Áhugaverður viðskiptavinur
Sæstrengur er mögulega mjög
áhugaverður viðskiptavinur fyrir
fyrirtækið. Fyrir liggur að í boði
gæti verið umtalsvert hærra orku-
verð en nemur meðalverði Lands-
virkjunar, þannig að um er að tefla
mikla fjárhagslega hagsmuni fyrir
fyrirtækið og þjóðina alla. Með
tengingu við aðra markaði gæfist
okkur kostur á að nýta þá umfram-
orku sem óhjákvæmilega er til stað-
ar í lokuðu raforkukerfi. Við mat á
kostum og göllum sæstrengs er
nærtækast að líta til reynslu Norð-
manna, sem hafa góða reynslu af
tengingu við Holland í gegnum
lengsta sæstreng í heimi, NorNed-
strenginn. Norðmenn hafa nú þrjá
sæstrengi á teikniborðinu – tvo til
Bretlands og einn til Þýskalands.
Vissulega er ýmsum spurningum
ósvarað þegar litið er til heildar-
áhrifa þessarar framkvæmdar. Til
að mynda þarf að tryggja leiðir til
að raforkuverð til heimila hækki
ekki umtalsvert og um leið þarf að
búa svo um hnútana að samkeppn-
isumhverfi iðnaðar á Íslandi sé
tryggt.
Viðskiptaforsendur ráða
Það er mikilvægt að hafa í huga
að sæstrengur er eins og hver annar
viðskiptavinur og hvert annað tæki-
færi í augum okkar. Við störfum á
viðskiptalegum forsendum og ef
góðir samningar nást um orkuverð
sjáum við fram á stóraukna arðsemi
af auðlindinni, í samræmi við það
hlutverk Landsvirkjunar að há-
marka afrakstur af þeim orkulind-
um sem fyrirtækinu er trúað fyrir,
með sjálfbæra nýtingu, verðmæta-
sköpun og hagkvæmni að leiðarljósi.
Orkuöryggi fyrir Íslendinga
Ekki má gleyma því heldur að
orkuöryggið virkar í báðar áttir og
hægt verður að flytja orku frá Bret-
landi til Íslands þegar þess gerist
þörf. Við Íslendingar búum að mínu
mati ekki við fullnægjandi orku-
öryggi eins og staðan er núna. Eins
og okkur er fullljóst getur fyr-
irvaralaust brostið á með nátt-
úruhamförum eða bilunum, auk
þess sem við getum auðveldlega lent
í þeirri stöðu að eftirspurn eftir
orku verði meiri en framboðið, sér í
lagi ef vatnsárið er í lakara lagi.
Virðing við umhverfi
er lykilatriði
Framkvæmdir Landsvirkjunar
hafa óhjákvæmilega umtalsverð
áhrif á umhverfi, en við reynum eftir
fremsta megni að draga úr neikvæð-
um áhrifum og auka þau jákvæðu
sem kostur er. Upp hefur safnast
mikil reynsla hjá fyrirtækinu á
þessu sviði og starfsfólk hefur þróað
með sér mikinn metnað til að gera
vel. Framkvæmdir við virkjun hefj-
ast ekki fyrr en að undangengnum
áratuga rannsóknum enda er fyrir
hendi umfangsmikil löggjöf um
þetta mikla samráðsferli sem felur
m.a. í sér rammaáætlun og lögboðið
umhverfismat. Við fögnum líka því
virka aðhaldi sem við fáum frá hin-
um ýmsu félagasamtökum og ein-
staklingum sem er hugað um að
vernda þau miklu verðmæti sem við
eigum í íslenskri náttúru.
Mikilvæg samskipti
Landsvirkjun er í eigu þjóð-
arinnar og við viljum eiga opin og
góð samskipti við alla sem sýna
starfsemi okkar áhuga. Ég vil því
hvetja Íslendinga til að mæta á op-
inn ársfund okkar á fimmtugasta af-
mælisári Landsvirkjunar, sem hald-
inn verður í Hörpu þriðjudaginn 5.
maí næstkomandi.
Eftir Hörð
Arnarson » Það er okkar hlut-
verk að horfa fram á
veginn og búa í haginn
fyrir afkomendur okkar
með því að hámarka af-
rakstur af þeim orku-
lindum sem fyrirtækinu
er trúað fyrir, með sjálf-
bæra nýtingu, verð-
mætasköpun og hag-
kvæmni að leiðarljósi.
Hörður
Arnarson
Höfundur er forstjóri
Landsvirkjunar.
Verðmæti til framtíðar