Morgunblaðið - 25.04.2015, Page 90
90 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
GLERÁRKIRKJA | Fermingarmessa
laugardag kl. 13.30. Sr. Gunnlaugur
Garðarsson og sr. Jón Ómar Gunn-
arsson þjóna. Kór Glerárkirkju syngur
undir stjón Valmars Väljaots. Ferming-
armessa sunnudag kl. 13.30. Sr.
Gunnlaugur Garðarsson og sr. Jón
Ómar Gunnarsson þjóna. Kór Gler-
árkirkju syngur undir stjórn Valmar
Väljaots. Sunnudagaskóli kl. 11.
Sunna Kristrún Gunnlaugsdóttir
djákni leiðir samveruna ásamt leiðtog-
um.
GRAFARVOGSKIRKJA | Flugmessa
kl. 11. Sr. Vigfús Þór Árnason þjónar
fyrir altari. Arngrímur Jóhannsson flug-
stjóri flytur hugvekju. Flugfreyjukórinn
syngur undir stjórn Magnúsar Kjart-
anssonar. Strengjasveit Olgu Ólafs-
dóttur. Trompet: Sigurður H. Wiium.
Bassi: Jón Hörður Jónsson flugstjóri.
Jóhannes Jóhannsson flugmaður og
Jarþrúður Guðmundsdóttir flugfreyja
lesa ritningarorð. Organisti er Ólafur
W. Finnsson. Sunnudagaskóli kl. 11.
Umsjón hafa sr. Sigurður Grétar og
Þóra Björg. Undirleikari er Stefán
Birkisson.
GRAFARVOGUR – KIRKJUSELIÐ Í
SPÖNG | Síðasta Selmessa á þessu
vori kl. 13. Séra Sigurður Grétar
Helgason prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Vox Populi syngur. Organisti er
Hilmar Örn Agnarsson. Sunnudaga-
skóli á sama tíma. Umsjón hefur Ást-
hildur Guðmundsdóttir. Undirleikari er
Stefán Birkisson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður
kl. 10 og bænastund kl. 10.15.
Barnastarf kl 11. í umsjá Lellu o.fl.
Messa kl. 11. Altarisganga. Samskot
til langveikra barna. Messuhópur
þjónar. Kór frá Domus vox syngur,
skólastjóri Margrét J. Pálmadóttir.
Organisti Ásta Haraldsdóttir. Prestur
Ólafur Jóhannsson. Molasopi eftir
messu. Hversdagsmessa með léttu
sniði á fimmtudag kl. 18.10-18.50.
Hentar allri fjölskyldunni. Þorvaldur
Halldórsson sér um tónlist
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Fermingarguðsþjónusta kl. 10.30.
Prestur Karl V. Matthíasson. Organisti
Hrönn Helgadóttir og kór Guðríð-
arkirkju syngur. Messuþjónn Sigur-
björg Þorgrímsdóttir. Meðhjálpari Að-
alsteinn D. Októsson. Kyrtlamátarar
Lovísa Guðmundsdóttir. Kirkjuvörður
Lovísa Guðmundsdóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa
og sunnudagaskóli kl. 11. Prestur Jón
Helgi Þórarinsson. Organisti Douglas
A. Brotschie. Jóhanna Ósk Valsdóttir
syngur. Anna Elísa leiðir sunnudaga-
skólann ásamt sínu fólki. Sögur,
söngvar, leikir og fleira. Hressing eftir
stundirnar.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og
barnastarf kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Ósk-
arsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Hópur messuþjóna aðstoðar. Félagar
úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja.
Organisti er Björn Steinar Sólbergs-
son. Umsjón barnastarfs Inga Harð-
ardóttir. Ensk messa kl. 14 í umsjá sr.
Bjarna Þórs Bjarnasonar.
HÁTEIGSKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Ballerínur frá Ball-
ettskóla Eddu Scheving dansa undir
stjórn Brynju Scheving. Mikill almenn-
ur og léttur söngur. Organisti Kári All-
ansson. Prestur Helga Soffía Kon-
ráðsdóttir.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Út-
varpsguðsþjónusta kl. 11. Séra Sig-
fús Kristjánsson þjónar. Félagar úr
Kór Hjallakirkju syngja og Jón Ólafur
verður við orgelið. Kl. 13 er sunnu-
dagaskólinn á neðri hæðinni. sjá nán-
ar á hjallakirkja.is
HVALSNESKIRKJA | Fermingar-
messa kl. 14. Hljómsveitin Sálmari
annast tónlist. Prestur Sigurður
Grétar Sigurðsson. Tíu börn fermd.
Sjá mbl.is/fermingar.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sam-
koma kl. 13.30. Lofgjörð og fyr-
irbænir. Ólafur H. Knútsson predikar.
Barnastarf á sama tíma í aldurs-
skiptum hópum. Kaffi eftir stundina.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Messa og
ferming kl. 11. Fermdir verða ungling-
ar úr Myllubakkaskóla. Prestar Sigfús
Baldvin Ingvason og Erla Guðmunds-
dóttir.
KÓPAVOGSKIRKJA | Uppskeruhátíð
barna- og æskulýðsstarfs í Kópavogs-
kirkju kl. 11 hefst í kirkjunni með
barna- og æskulýðsguðsþjónustu.
Umsjón hafa sr. Sigurður Arnarson,
Ágústa Tryggvadóttir og Oddur Örn
Ólafsson. Eftir guðsþjónustu verður
boðið upp á pylsur og með því í safn-
aðarheimilinu Borgum. Hoppkastalar
á staðnum.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11.
Sunnudagaskóli á sama tíma. Sr.
Guðbjörg Jóhannesdóttir predikar og
þjónar fyrir altari, ásamt messuþjón-
um og kirkjuverði. Graduale Futuri
syngur. Stjórnandi er Rósa Jóhann-
esdóttir. Organisti er Jón Stefánsson.
Skírn verður í messunni. Jóhanna
Gísladóttir æskulýðsfulltrúi og Snæv-
ar Andrésson guðfræðinemi í sunnu-
dagaskólanum ásamt Esju. Kaffi og
AÐVENTKIRKJAN í Reykjavík | Ing-
ólfsstræti 19, Reykjavík. Biblíu-
fræðsla laugardag kl. 11. Guðsþjón-
usta kl. 12. Ræðumaður: Raafat
Kamal. Barna- og unglingastarf. Sam-
eiginleg máltíð í Suðurhlíðarskóla eftir
samkomu.
AÐVENTKIRKJAN í Vestmanna-
eyjum | Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum. Guðsþjónusta laug-
ardag kl. 12. Bein útsending frá
Reykjavíkursöfnuði.
AÐVENTSÖFNUÐURINN á Akur-
eyri | Eiðsvallagötu 14, Gamli Lundur.
Biblíurannsókn laugardag kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 12. Barnastarf.
AÐVENTSÖFNUÐURINN á Suður-
nesjum | Blikabraut 2, Keflavík. Lok-
að vegna sameiginlegrar guðsþjón-
ustu í Reykjavíkurkirkju, Ingólfsstræti
19.
AÐVENTSÖFNUÐURINN í Árnesi |
Eyravegi 67, Selfossi. Lokað vegna
sameiginlegrar guðsþjónustu í Reykja-
víkurkirkju, Ingólfsstræti 19.
AÐVENTSÖFNUÐURINN í Hafnar-
firði | Hólshrauni 3, Hafnarfirði. Lokað
vegna sameiginlegrar guðsþjónustu í
Reykjavíkurkirkju, Ingólfsstræti 19.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Kveðjumessa sr. Sigrúnar
Óskarsdóttur. Kirkjukórinn undir stjórn
Krizstine K. Szklenár organista. Kirkju-
kórinn leiðir almennan safnaðarsöng.
Nemendur úr Tónlistarskóla Sig-
ursveins spila nokkur lög. Sunnudaga-
skólinn á sama tíma í safnaðarheimili
kirkjunnar. Veitingar á eftir.
ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. At-
hugið breyttan messutíma. Félagar úr
Barðstrendingafélaginu taka þátt í at-
höfninni. Sveinn Valgeirsson, dóm-
kirkjuprestur og fyrrverandi sóknar-
prestur á Tálknafirði, prédikar og
þjónar fyrir altari. Hljómfélagið syngur
undir stjórn Fjólu Kristínar Nikulás-
dóttur. Organisti Magnús Ragnarsson.
Kaffisala Barðstrendingafélagsins
verður í Breiðfirðingabúð, Faxafeni
14, að guðsþjónustu lokinni.
ÁSTJARNARKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Kór Ástjarnarkirkju syngur
undir stjórn Matthíasar V. Baldurs-
sonar. Meðhjálpari er Sigurður Þór-
isson. Prestur er Úrsúla Árnadóttir.
Sunnudagaskóli á sama tíma undir
stjórn Hólmfríðar S. Jónsdóttur og
Bryndísar Svavarsdóttur. Hressing og
samfélag á eftir.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudaga-
skóli í Brekkuskógum 1 kl 11. Umsjón
með stundinni hafa Helga Björk og
Jón Örn.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11 í umsjá Stein-
unnar Leifsdóttur og Steinunnar Þor-
bergsdóttur. Organisti er Örn
Magnússon. Hressing í safnaðarheim-
ili á eftir. Tómasarmessa kl. 20. „Hvar
er Guð“ er yfirskrift messunnar. Fyrir-
bæn og fjölbreytt tónlist. Kaffi í safn-
aðarheimili á eftir.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl.
11. Tónlist og fræðsla. Jónas Þórir við
hljóðfærið. Bára Elíasdóttir og Daníel
Gautason leiða samveruna. Foreldrar
og afar og ömmur hvött til þátttöku.
Guðsþjónusta kl. 14. Félagar úr Kór
Bústaðakirkju leiða sönginn. Organisti
Jónas Þórir. Messuþjónar aðstoða.
Heitt á könnunni eftir messu. Prestur
María Ágústsdóttir.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur Magnús Björn Björnsson. Org-
anisti og söngstjóri Bjartur Logi
Guðnason. Söngvinir, kór eldri borg-
ara í Kópavogi, syngja. Sunnudaga-
skóli.
Dómkirkja Krists konungs,
Landakoti | Messa kl. 10.30, kl. 13
á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga
kl. 18, og má., mi. og fö. kl. 8, lau. kl.
16 á spænsku og kl. 18 er sunnu-
dagsmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Séra
Hjálmar Jónsson prédikar og séra
Sveinn Valgeirsson þjónar. Barn verð-
ur borið til skírnar. Dómkórinn syngur
undir stjórn Kára Þormar dómorgan-
ista. Vetrarstarfi sunnudagaskólans
lýkur. Aðalfundur safnaðarins er hald-
inn að lokinni messu í Safnaðarheim-
ilinu, Lækjargötu 14a.
FELLA- og Hólakirkja | Fjölskyldu-
guðsþjónusta og uppskeruhátíð
sunnudagskólans kl. 11. Pétur og
Hreinn sjá um stundina. Litrófið syng-
ur undir stjórn Sólveigar Önnu Aradótt-
ur og Arnar Ýmis Arasonar. Boðið upp
á pylsur í lokin. Prestur Svavar Stef-
ánsson, kirkjuvörður Jóhanna Freyja
Björnsdóttir.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Kór og
hljómsveit kirkjunnar leiða sönginn.
FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudaga-
skóli kl. 11 með góðri dagskrá, mikl-
um söng, brúðuleikriti o.fl. Létt hress-
ing í lok stundar.
Orð dagsins: Ég
mun sjá yður aftur.
(Jóh. 16)
✝ Sólveig (Ollý)Ásgeirsdóttir
fæddist í Hafn-
arfirði 27. júní
1933. Hún lést á
Hrafnistu í Hafn-
arfirði 3. apríl
2015.
Foreldrar Sól-
veigar voru Ásgeir
Guðlaugur Stef-
ánsson trésmiður,
framkvæmdastjóri
og útgerðarmaður í Hafnarfirði,
f. 28.3. 1890, d. 22.6. 1965, og
Sólveig Björnsdóttir húsfreyja í
Hafnarfirði, f. 18.7. 1905, d.
17.3. 1998. Börn þeirra voru auk
Sólveigar: 1) Hrafnkell, hrl., f.
4.4. 1939, d. 10.7. 2012, kvæntist
Oddnýju Margréti Ragn-
arsdóttur hjúkrunarfræðingi, f.
16.3. 1941; 2) Ragnhildur, f.
11.10. 1944, sjúkraliði, giftist
Einari Óskarssyni, f. 14.12.
1941, framkvæmdastjóra, þau
skildu.
Eftirlifandi eiginmaður Sól-
Áslaug, f. 9.2. 1950, hjúkr-
unarfræðingur, giftist Þorvaldi
Ásgeirssyni, tæknifræðingi, f.
1.1. 1948, d. 2.10. 2009, þau
skildu, núverandi maki Egill B.
Hreinsson, f. 30.6. 1947, verk-
fræðingur. Börn Áslaugar eru
a) Rakel, b) Sturla, c) Tinna og
d) Hrafn.
Sólveig stundaði nám bæði
við Kvennaskólann í Reykjavík,
við Skógaskóla og Húsmæðra-
kennaraskóla Íslands, þaðan
sem hún útskrifaðist árið 1954.
Hún starfaði sem húsmæðra-
kennari við Húsmæðraskólann á
Ísafirði árið 1955 og eftir það
vann hún á skrifstofu Versl-
unarmannafélags Reykjavíkur
þar til hún fylgdi eiginmanni
sínum í framhaldsnám til Sví-
þjóðar þar sem hún var heima-
vinnandi húsmóðir. Sólveig og
Jósef eignuðust fyrstu tvö börn-
in í Svíþjóð og þriðja barnið
skömmu eftir heimkomuna til
Íslands haustið 1964. Þegar Sól-
veig fór aftur út á vinnumark-
aðinn vann hún fyrst sem hús-
mæðrakennari við
Þinghólsskóla í Kópavogi og síð-
ar við ýmsa skóla, lengst af við
Flataskóla í Garðabæ.
Útför Sólveigar fór fram í
kyrrþey 13. apríl 2015.
veigar er Jósef
Ólafsson læknir, f.
24.8. 1929. Sólveig
og Jósef eignuðust
þrjú börn. Þau eru
1) Sólveig Birna, f.
23.9. 1959, hjúkr-
unarfræðingur,
maki Sigurður Ein-
arsson, f. 11.4.
1957, arkitekt,
börn þeirra eru a)
Jósef, b) Kári, c)
Andri, d) Magni og e) Diljá; 2)
Ólafur Mar, f. 18.3. 1963, raf-
magnsverkfræðingur, maki
Ásta Margrét Karlsson, f. 21.5.
1966, verkfræðingur, börn
þeirra eru a) Ásdís Lilja, b) Hel-
ena Lind og c) Sunna Rós; 3)
Snorri, f. 8.10. 1964, fisk-
sjúkdómafræðingur, maki Halla
Jónsdóttir, f. 16.10. 1965, fisk-
sjúkdómafræðingur, börn
þeirra eru a) Jón Sölvi, b) Arna
Rós og c) Arnar Snær. Fyrir átti
Sólveig Áslaugu sem var ætt-
leidd af foreldrum Sólveigar.
Nú er komið að kveðjustund.
Föstudaginn 3. apríl kvaddi
elsku mamma okkur eftir erfið
og langvinn veikindi. Mamma
naut mjög heilbrigðs lífs þar til
hún veiktist af Alzheimers-sjúk-
dómi fyrir 15 árum. Hún tókst á
við þennan erfiða sjúkdóm af
miklu æðruleysi og lét veikindin
ekki aftra sér eins lengi og
henni var unnt.
Á kveðjustundinni koma ótelj-
andi minningar upp í huga okk-
ar. Fyrsta verk mömmu á hverj-
um morgni var að gera
líkamsæfingar heima við. Hún
stundaði einnig sund af kappi í
sundlaugum bæði nær og fjær,
fór í líkamsrækt í Hress og naut
hverskyns útivistar. Hún og
pabbi klifu fjöll, stunduðu skíða-
íþróttina, ferðuðust um landið
þvert og endilangt, oft með allan
farangurinn á bakinu, og óðu
læki og óbrúaðar ár. Mamma
vildi vera á Íslandi yfir hásum-
arið og njóta íslenskrar náttúru
en þau pabbi voru einnig dugleg
að ferðast út fyrir landsteinana.
Þau fóru bæði í sólarlandaferðir
og um langt skeið árlega á skíði
erlendis, aðallega í Alpana og
nokkrum sinnum í Klettafjöllin.
Þau voru í góðu sambandi við
vinahópinn og voru þátttakend-
ur í skemmtilegu skíðafélagi
sem hafði lengi aðsetur í Eld-
borgargili í Bláfjöllum, með eig-
in traktorknúnar kaðallyftur.
Mamma lét kulda og vosbúð í
útivist og ferðalögum aldrei á
sig fá, en hún kunni þó sér-
staklega vel við sig í sól og hita
og naut þess að liggja í sólríku
skoti í garðinum í Kvíholtinu,
lesandi blöð, borðandi ávexti og
t.d. kex með kotasælu og peru-
sneiðum, hlustandi á útvarp.
Mamma naut þess einnig
mjög að útbúa og borða góðan
og hollan mat. Mamma var við
stjórnvölinn á heimilinu og sá til
þess að þar var allt hreint og
snyrtilegt, og allt ávallt í röð og
reglu jafnt innan sem utan dyra.
Hún var hagsýn í innkaupum og
var greinilegt að hún nýtti hús-
mæðramenntunina til fulls. Hún
var mjög dugleg og rösk til
verka og gat sinnt mörgu í einu
og stundum svo að okkur börn-
unum fannst meira en nóg um.
Við höfum mömmu margt að
þakka. Hún innrætti okkur,
bæði með orðum og gerðum,
mikilvægi heilbrigðs lífernis, lík-
amsræktar, hverskyns útivistar
og fjölbreytileika og hollustu
viðvíkjandi næringu og matar-
gerð . Hún var einnig dugleg að
fara með okkur á listviðburði.
Mamma innrætti okkur að
hugsa ávallt til framtíðar og
greyptist það viðhorf mjög
sterkt í huga sumra okkar. Þeg-
ar litið er yfir lífshlaup mömmu
sést að hún kunni einnig vel að
njóta líðandi stundar.
Elsku mamma, hvíldu í friði
og hafðu þökk fyrir allt sem þú
gafst okkur.
Þín
Birna, Ólafur (Óli)
og Snorri.
Sólveig (Ollý) Ásgeirsdóttir
tengdamóðir mín og amma
barna okkar Snorra var einstak-
lega kraftmikil kona. Hún var
dugleg húsmóðir og dugleg að
rækta líkama sinn ásamt því að
verja tíma með vinum sínum.
Sólveig elskaði íslenska nátt-
úru og vildi hvergi annars stað-
ar vera að sumri til. Hún var
sérlega dugleg við að fara í
göngur og á skíði og fátt vissi
hún betra en sund og heitan
pott.
Sólveig var mér fyrirmynd í
tengslum við hvers kyns útivist,
þar á meðal skíði, og hún var
einnig fyrirmynd mín í fjármál-
um. Hún ræddi töluvert um
fjárfestingar og hlutabréf, sem
var óvenjulegt fyrir konur á
þessum tíma, og varð þannig
mín fyrirmynd í slíkum málum.
Þegar ég hugsa um Ollý verð-
ur mér hugsað til útivistar og
náttúru og svo matar en hún
hafði mikinn áhuga á mat, mat-
argerð og hollustu. Einkum og
sér í lagi verður mér hugsað til
ríkulegs morgunverðar um helg-
ar og er það siður sem við fjöl-
skyldan höfum tekið upp frá
henni.
Ég vil þakka Ollý fyrir stuðn-
ing hennar og þeirra hjóna við
okkur þegar við fjölskyldan
fengum stórt verkefni fyrr á ár-
um.
Með kærri þökk fyrir sam-
fylgdina elsku Ollý.
Þín tengdadóttir,
Halla Jónsdóttir.
Sólveig
Ásgeirsdóttir
Þá er vorið að
koma, heyrðist fólk
segja hvert við ann-
að, við vorum líka
vongóð.
En skyndilega var eins og
þessi von væri kæfð í fæðingu,
og okkur leið eins og það hefði
komið tilkynning frá æðri mátt-
arvöldum: „vorinu er aflýst um
óákveðinn tíma“ því hún Unnur
okkar fór frá okkur fyrir fullt og
allt aðfaranótt 14. apríl.
Aðeins nokkur orð um kynni
okkar af Unni Ernu, við kynn-
umst henni og Óla 1978, og þá
strax tókst með okkur góð vin-
Unnur Erna
Hauksdóttir
✝ Unnur ErnaHauksdóttir
fæddist 31. janúar
1955. Hún andaðist
14. apríl 2015.
Útför hennar var
gerð 24. apríl 2015.
átta, ásamt Huldu
systur hennar sem
bjó í sama húsi og
við. Við fórum í
margar útilegur
næstu sumur, en
svo leið oft langur
tími milli þess að
við komum saman,
en hin síðari ár
tengdumst við æ
betur gegnum golf-
ið, og áttum margar
ánægjustundir á golfvellinum og
utan hans.
En það er vafalaust að bera í
bakkafullan lækinn að tíunda
kostina hennar Unnar, því þá
þekkja allir sem kynntust henni.
Það var aðdáunarvert að fylgjast
með samskiptum þeirra hjóna,
því ávallt skein í gegn ást og
gagnkvæm umhyggja þeirra
hvors fyrir öðru í öllum þeirra
samskiptum.
Elsku Óli, Begga, Valdi, Sunn-
eva og aðrir ástvinir, við eigum
ekki nógu sterk orð til að lýsa
söknuði okkar og sorg yfir að
hafa misst þessa yndislegu konu
og vin, í blóma lífsins, hláturinn
hennar, kímni og orðheppni mun
fylgja okkur öllum sem kynntust
henni, um ókomin ár.
Hún skildi eftir ljós í lífi okkar
allra sem mun ekki slokkna með-
an við lifum.
Sjöfn Sóley og Rögnvaldur.
„Hættu ekki að hugsa um
morgundaginn“ er þýðing á titli
á vinsælu lagi frá árinu 1977.
Mér datt þessi laglína í hug nú
þegar ég minnist vinkonu minn-
ar, Unnar Ernu Hauksdóttur.
Leiðir okkar Unnar lágu sam-
an heima í Smáíbúðahverfinu
þar sem við lifðum okkar æskuár
og þann tíma sem mótaði okkur
til framtíðar. Hún kom úr
stórum hópi systkina sem óneit-
anlega setti sinn svip á þetta
barnmarga hverfi á árunum
1960-1980.
Unnur var kröftug og kjörk-
uð, lífsglöð og létt í lund og hafði
meðfæddan sjarma og húmor
sem smitaði út frá sér. Ferðir
okkar á skemmtistaði borgarinn-
ar – Klúbbinn, Sigtún og Broad-
way, í góðra vina hópi eru
ógleymanlegar og bjartar í
minningunni.
Í öllum sínum athöfnum var
Unnur drífandi, atorkusöm og
ráðagóð. Hún tengdist á ung-
lingsárum lífsförunaut sínum,
Ólafi Erni Valdimarssyni, bönd-
um sem héldust til hinsta dags.
Þau urðu bráðung foreldrar og
öxluðu þannig snemma þá
ábyrgð sem fjölskyldulífi fylgir.
Fjölskyldan stækkaði og börnin
döfnuðu og urðu að nýtum þegn-
um og samheldnin og gagnkvæm
umhyggja er þeim og þeirra
börnum í blóð borin.
Í störfum sínum og á vinnu-
stöðum var Unnur vel liðin enda
með frábæra athyglisgáfu, verk-
fús og vinnusöm.
Við Unnur áttum mjög vel
skap saman og vináttan varð enn
traustari eftir því sem árin liðu.
Saman gátum við hlegið út í eitt
á góðum stundum og af ýmsu til-
efni og þurfti ekki mikið til. Það
var stutt í smástelpuna hjá okk-
ur. Sameiginlegar ferðir í ýms-
um tilgangi innan lands og utan
hnýttu böndin enn fastar. Sam-
rekstur og uppbygging í félagi
við aðra á Skálmardal vestra í
áratugi var allur á ljúfasta máta í
eindrægni og vináttu. Og loks
verð ég að minnast á hina ynd-
islegu íþrótt golfið sem Unnur
kynnti mig fyrir og við nutum í
botn. En golf felur í sér keppni,
spennu, líkamsrækt, félagsskap
og útiveru og færir iðkendum sí-
fellt nýjar víddir í tilveruna. Í
golfinu naut orkuboltinn Unnur
sín allt til síðustu stunda.
Í veikindum sínum og allri
meðferð við þeim sýndi Unnur
hvað í henni bjó og þar var svo
sannarlega hugsað um morgun-
daginn og framtíðina: Dagurinn
á morgun yrði betri en dagurinn
í dag og heimurinn brosir. Þann-
ig var Unnur: bjartsýn og já-
kvæð og alltaf með trúna á bat-
ann á næsta leiti og hugann við
verkefni morgundagsins.
Unnur var frábær félagi og
sannur vinur sem forréttindi
voru að eiga að. Ég sakna henn-
ar.
Við Gústi erum með hugann
hjá Óla og börnunum og þeirra
fjölskyldum og vottum þeim alla
okkar samúð á erfiðri stund.
Blessuð sé minning Unnar
Ernu Hauksdóttur.
Margrét (Gréta).
ÚTFARARÞJÓNUSTA
Vönduð og persónuleg
þjónusta
Sími: 551 7080 & 691 0919
ATHÖFNÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is
Inger Steinsson
IngerRósÓlafsdóttir