Morgunblaðið - 25.04.2015, Síða 98
98 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
Söfn • Setur • Sýningar
Barnamenningarhátíð í Þjóðminjasafninu:
sýningar á verkum barna Ingunnarskóla og Landakotsskóla
og skemmtilegur sumarratleikur
List án landamæra: málverkasýning Ísaks Óla
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
Á veglausu hafi í Bogasal
Hvar, hver, hvað? í Myndasal
Húsin í bænum á Veggnum
Fjölbreyttir ratleikir fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð og kaffihús
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið frá 11-17 alla daga nema mánudaga.
Listasafn Reykjanesbæjar
• Til sjávar og sveita,
Gunnlaugur Scheving
• Sjálfsagðir hlutir, hönnunarsaga.
• 15/15 – Konur og myndlist,
úr safneigninni.
24. janúar – 26. apríl
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Bátasafn Gríms Karlssonar
Listasafn Erlings Jónssonar
Opið virka daga 12-17, helgar 13-17.
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
LISTASAFN ÍSLANDS
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is
Opið daglega kl. 11-17, lokað mánudaga.
KONUR STÍGA FRAM - SVIPMYNDIR 30 KVENNA Í ÍSLENSKRI MYNDLIST
13.2.-10.5.2015
A KASSEN CARNEGIE ART AWARD 2014 13.2. - 10.5. 2015
BARNAMENNINGARHÁTÍÐ 21.-26. apríl í söfnunum þremur, sjá www.listasafn.is
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur • KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar.
IN THE CRACK OF THE LAND - Una Lorenzen
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
SAMSPIL Sigurjón Ólafsson og Finn Juhl
Hugarflug milli höggmyndar og hönnunar 25. apríl - 30. ágúst
BARNAMENNINGARHÁTÍÐ - Leiðsögn sunnudag kl. 13
fyrir sjónskert börn og fjölskyldur þeirra.
Opið laugardaga og sunnudag kl. 14-17.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Í BIRTU DAGANNA Málverk og teikningar Ásgríms Jónssonar, 1.2.-15.9. 2015
BARNAMENNINGARHÁTÍÐ - Ásgrímssmiðja á sunnudag kl. 15-16
Opið sunnudaga kl. 14-17.
MENN
Curver Thoroddsen,
Finnur Arnar Arnarson,
Hlynur Hallsson,
Kristinn G. Harðarson
Vörður
Jónína Guðnadóttir
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is, sími 585 5790
Aðgangur ókeypis Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
Teikningar og skissur
Helgu Björnsson tískuhönnuðar
ÁMUNDI:
Grafísk
hönnun
Leiðsögn með Ámunda sun. kl.14
Sýningin Sjónarhorn er ferðalag
um íslenskan myndheim fyrr og nú
Fræðslurými og fræðsluefni
fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð og veitingastofan Kapers
Sýningin í Safnahúsinu er samstarfsverkefni
Þjóðminjasafns Íslands, Listasafns Íslands,
Náttúruminjasafns Íslands,
Stofnunar Árna Magnússonar
í íslenskum fræðum,
Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns
og Þjóðskjalasafns Íslands.
Safnahúsið, Hverfisgata 15, s. 530 2210
Opið frá 10-17 alla daga nema mánudaga
www.safnahusid.is. Safnahúsið er
hluti af Þjóðminjasafni Íslands.
Safnahúsið
við Hverfisgötu
„Húrra!“ nefnast söngtónleikar sem
haldnir verða í samkomusal
Varmárskóla á morgun kl. 16. Á
þeim munu Karlakórinn Mosfells-
bræður, sönghópurinn Boudoir og
Skólakór Varmárskóla syngja sam-
an inn vorið. Kórarnir eiga það
sameiginlegt að hafa fengið
mjög góða dóma fyrir söng sinn,
eins og segir í tilkynningu.
Stjórnendur eru Julian Hewlett
og Guðmundur Ómar Óskarsson.
Húrra! í Varmárskóla
Söngbræður Karlakórinn Mosfellsbræður á æfingu.
Brynja B Halldórsdóttir
brynja@mbl.is
Tónlistarmennirnir Kristján Kristjánsson, betur þekkt-
ur sem KK og Björn Thoroddsen, munu næstkomandi
mánudagskvöld snúa bökum saman á tónleikum sem
hefjast kl. 21 á Café Rósenberg við Klapparstíg. KK
segir tónleikana í raun hafa komið til fyrir skemmtilega
tilviljun. Hann og Björn hafi lengi vitað hvor af öðrum
og verið málkunnugir en aldrei spilað saman áður.
„Samstarfið kom til með þeim hætti að haft var sam-
band við okkur, hvorn í sínu lagi við beðnir um að spila í
Wales núna í maí á tónlistarstað þar í landi. Sú sem
hafði samband við okkur stakk upp á því að við mynd-
um spila aðeins saman eftir að hafa eytt kvöldinu saman
á tónleikastaðnum. Við tókum vel í það þannig að við
hittumst í kjölfarið til að æfa einhver lög. Svo datt okk-
ur í hug að halda eina heimatónleika á Íslandi áður en
við færum út til Wales. Við erum þar af leiðandi búnir
að vera að hittast nokkuð að undanförnu og spila sam-
an.“
Hann lætur vel af samstarfinu við Björn. „Við erum
vissulega ólíkir en það er eftirsóknarvert fyrir okkur
báða að prófa eitthvað nýtt. Það er afskaplega gaman
fyrir mig að fá að spila með svona gítargoðsögn eins og
Bjössi er. Hann hefur jú spilað með þessum toppn-
öfnum sem hafa komið til Íslands, eins og Tommy
Emmanuel og Robin Nolan.“
KK og Björn munu spila á tónleikastaðnum Caffe
Vista í Tenby í Wales, sem er smábær við suðurströnd
Wales, um 85 kílómetra frá Swansea. KK segir nokkra
þekkta tónlistamenn hafa spilað þar, þ.á m. Robin Nol-
an. „Við förum út fimmtudaginn 14. maí og spilum svo
föstudags- og laugardagskvöld.“
Aðspurður hvort tónleikarnir á mánudaginn séu í
raun upphitun fyrir tónleikana í Wales, svarar KK: „Já,
það má segja það. Þetta er allavega frumraun okkar og
við erum mjög spenntir fyrir því.“
Útilokar ekki frekara samstarf
Hann vill ekki útiloka frekara samstarf við Björn síð-
ar meir. „Maður veit aldrei. Tíminn verður að skera úr
um það.“
Tónleikarnir á mánudaginn munu ganga þannig fyrir
sig að Björn spilar í tuttugu mínútur einn, KK í jafn-
langan tíma og svo munu þeir spila saman út tón-
leikana.
KK mun spila á ryþmagítar að mestu. ,,Nema þegar
Bjössi pínir mig til að taka sóló!“ segir hann og bætir
við að hann muni leika einhver af sínum lögum, blúslög
og djasslög. Hann nefnir „Lucky One“, „Sweet Home
Chicago“, „All of Me“ og „It don’t mean a Thing“ sem
dæmi um lög sem verða leikin á tónleikunum. „Ég þarf
að hafa mig allan við til að æfa mig. Ég ligg bara yfir
gítarnum núna,“ segir KK en hann mun leika mun fleiri
hljóma á tónleikunum en hann er vanur. Hann er þó
spenntur fyrir tónleikunum. „Við ætlum að hafa
skemmtilegt kvöld.“
Morgunblaðið/Eggert
Gott samstarf KK og Björn hafa hist oft að undanförnu til að æfa sig fyrir tónleikana á Café Rósenberg í Reykja-
vík og Caffe Vista í Tenby í Wales. „Ég þarf að hafa mig allan við til að æfa mig,“ segir KK.
Goðsagnir mætast
KK og Björn Thoroddsen halda tónleika saman á
Café Rósenberg og fara í tónleikaferð til Wales í maí
Kristinn Már Pálmason opnar í
dag sýningu sína Eyefume í Gall-
eríi Bakaríi á Skólavörðustíg 40.
Sýningin stendur til 11. maí. Á
sýningunni eru ný málverk á
striga unnin í akríl og blek með
blandaðri tækni.
Kristinn Már hefur undanfarin
ár unnið að þróun táknfræðilegs
myndmáls sem einkennist af of-
gnótt hlutverulegra sem abstrakt
ímynda, annarlegum hliðstæðum,
erkitýpum og dulhyggju, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Árátta, afbygging og afbygging
áráttunnar eru áberandi þættir í
ferlinu, vinnuferlið sem slíkt og
sálarástand listamannsins við
sköpunina.
„Ég er orðinn meðvitaðri um
dagbókargildi verkanna, þ.e.a.s.
hvernig mismunandi nálgun við
verkið dag frá degi skilar sér í
ólíkum aðferðum. Formin eða
hvað það er sem ég geri einn dag-
inn verður persónulegt tákn fyrir
ákveðið skapferli. Þessi þáttur
myndmálsins er stígandi og vísir
að einskonar listrænni sjálfs-
sálgreiningu,“ segir Kristinn Már
um sýninguna.
Kristinn Már er fæddur í Kefla-
vík 1967. Hann stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla Íslands
1990 - 94 og The Slade School of
Fine Art, University College Lond-
on 1996 – 98 (MFA). Kristinn Már
á að baki fjölda einkasýninga auk
þátttöku í samsýningum og sam-
vinnuverkefnum hér heima og er-
lendis. Hann hefur komið að ýmis
konar menningarstarfsemi og er
t.a.m. annar stofnenda og sýn-
ingastjóri Anima gallerís í Reykja-
vík og einn af stofnendum og
stjórnarmeðlimum Kling & Bang
gallerís. brynja@mbl.is
Eyefume í Galleríi Bakaríi
Eitt verkanna Hluti af einu verka Kristins Más, sem verður á sýningunni.