Morgunblaðið - 25.04.2015, Page 100
100 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
Kynslóðabilið verður brúað á vor-
tónleikum Karlakórs Reykjavíkur,
Hraustir menn, sem fram fara 27.
28. og 29. apríl kl. 20 og 2. maí kl.
15 í Langholtskirkju, því sérstakur
gestur á þeim verður kór eldri fé-
laga Karlakórs Reykjavíkur og
yngsti einsöngvarinn 12 ára.
Í ár er liðin hálf öld frá því Sig-
urður Þórðarson, stofnandi og
fyrsti stjórnandi
kórsins, stofnaði
kór eldri félaga
sem kjósa að fara
sér hægar í söng-
starfi án þess að
hætta því alveg
og munu þeir
bæði syngja einir
á tónleikunum og
með aðalkórnum
í nokkrum lög-
um. Auk eldri félaga munu ungir
tónlistarmenn koma fram á tónleik-
unum og ber þar fyrst að nefna
drengjasópraninn Benedikt Gylfa-
son sem syngur einsöng. Benedikt
er 12 ára og hefur áður komið fram
á tónleikum með kórnum við mik-
inn fögnuð gesta. Þá verður einnig
flutt lag eftir yngsta meðlim kórs-
ins, Hrafn B. S. Haraldsson, sem
er nýorðinn 18 ára. Hann útsetti
lagið einnig og mun stjórna flutn-
ingi þess. Texti lagsins er einnig
eftir ungan mann, Jökul Sindra
Gunnarsson sem er 17 ára.
„Brúarsmiður kynslóðabilsins“
Aðrir einsöngvarar á tónleik-
unum verða kórfélagarnir Björn
Friðrik Einisson, Guðmundur
Bjarnason, Guðmundur Jónsson,
Karl Jóhann Jónsson, Ríkharður
Hjartarson og Þorleifur Kristinn
Alfonsson. Anna Guðný Guðmunds-
dóttir leikur á flygilinn sem fyrr og
segir í tilkynningu frá kórnum að
erfitt sé að ímynda sér vortónleika
Karlakórs Reykjavíkur án hennar.
Stjórnandi Karlakórs Reykjavík-
ur er Friðrik S. Kristinsson og hef-
ur hann gegnt því starfi í yfir ald-
arfjórðung. Friðrik stjórnar einnig
kór eldri félaga kórsins og
Drengjakór Reykjavíkur. Benedikt
og Hrafn fyrrnefndir hafa báðir
notið handleiðslu Friðriks hjá
drengjakórnum auk Guðmundar
Gauta Eysteinssonar, 19 ára, sem
syngur í ár sína fyrsta vortónleika
með Karlakór Reykjavíkur.
„Þegar litið er til þess að á
þessum tónleikum verða söngvarar
frá 12 ára til höfðingja á níræð-
isaldri, má segja að Friðrik S.
Kristinsson sé sannkallaður brúar-
smiður kynslóðabilsins,“ segir í til-
kynningu.
Norræn og íslensk lög
Í samtali við Morgunblaðið segir
Friðrik að þeir kórfélagar sem
syngja muni einsöng á tónleik-
unum eigi það sameiginlegt að
hafa sótt söngtíma hjá honum auk
þess að syngja í kórnum. „Kór-
félagar hafa komið fram með kórn-
um oft áður og það setur alltaf
góðan svip á efnisskrána sem
verður mjög fjölbreytt,“ segir
Friðrik. „Við leggjum áherslu á
norræn karlakórslög í byrjun tón-
leikanna í bland við íslenskar kór-
perlur,“ segir hann um efnis-
skrána. Eldri félagar kórsins muni
m.a. flytja lög eftir Sigvalda S.
Kaldalóns og Jón Ásgeirsson og í
lok tónleikanna muni kórarnir
syngja saman þrjú lög eins og
hraustum mönnum sé einum lagið.
helgisnaer@mbl.is
„Frá 12 ára til höfðingja á níræðisaldri“
Morgunblaðið/Golli
Englarödd Karlakór Reykjavíkur á aðventutónleikum í Hallgrímskirkju í fyrra. Benedikt Gylfason drengjasópran söng einsöng með sinni englaröddu.
Karlakór Reykjavíkur heldur árlega vortónleika sína í Langholtskirkju Kórinn flytur lag eftir
yngsta meðliminn sem er 18 ára Kór eldri félaga Karlakórs Reykjavíkur verður sérstakur gestur
Friðrik S.
Kristinsson
Söngdeild Tónlistarskóla Kópa-
vogs stendur fyrir tveimur sýn-
ingum á Töfraflautunni eftir W.A.
Mozart um helgina. Um er að ræða
óperu í leikstjórn Önnu Júlíönu
Sveinsdóttur, söngkennara við
skólann.
Töfraflautan, sem er 24. óperan
sem sýnd hefur verið í Kópavogi
undir stjórn Önnu, verður frum-
sýnd í dag, laugardaginn 25. apríl,
kl. 17.00 í Salnum. Önnur sýning
verður svo haldin á morgun,
sunnudaginn 26. apríl kl. 20.00.
Sögumaðurinn Papageno, sem
leikinn er af Jóni Pétri Friðriks-
syni, mun rekja söguþráðinn á milli
söngatriða til að auðvelda börnum
að átta sig á ævintýrinu um
egypska prinsinn Tamino sem er
villtur í ókunnu landi og verður
ástfanginn af Paminu, dóttur næt-
urdrottningarinnar. Papageno þarf
einnig að leggja ýmislegt á sig en
hreppir loks sína eigin Papagenu.
Selma Guðmundsdóttir leikur á
píanó og Sólveig Magnúsdóttir á
flautu.
Töfraflautan er í íslenskri þýð-
ingu og aðgangur er ókeypis. Er
því um tilvalda fjölskylduskemmt-
un að ræða. brynja@mbl.is
Leikarar Tveir af leikurunum sem leika í Töfraflautunni um helgina.
Töfraflautan sýnd í
Kópavogi um helgina
Smiðjuvegi 7
200 Kópavogi
Sími: 54 54 300
ispan@ispan.is
ispan.is
Allt í gleri
ÚTI OG INNI
M
ynd:Josefine
Unterhauser