Morgunblaðið - 25.04.2015, Síða 104
104 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383
Hjarta úr hvítagulli
25 punkta demantur
99.000,-
Gullhálsmen
Handsmíðað 14K, 2 iscon
26.000,-
Demantssnúra
30 punkta demantur, 14K
157.000,-
Demantssnúra
9 punkta demantur, 14K
57.000,-
Gullhringur
Handsmíðaður 14K, 2 iscon
45.700,-
Morgungjafir í miklu úrvali
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Rokkararnir í Pink Street Boys,
Bleikstrætisdrengir, sendu frá sér
fyrstu breiðskífuna laugardaginn sl.,
18. apríl, á alþjóðlegum degi plötu-
verslana og ber hún titilinn Hits #1.
Hljómsveitin leikur kraftmikið og
pönkað bílskúrs-
rokk og segist
vera háværasta
hljómsveit lands-
ins. Þeir sem sótt
hafa tónleika
sveitarinnar, of-
anritaður þ. á m.,
geta staðfest að hljómsveitin er
verulega hávær. Hits #1 hefur að
geyma tíu rokklög og kemur ein-
göngu út á vínilplötu í takmörkuðu
upplagi sem hefur einnig að geyma
kóða fyrir niðurhal. Tónlistar- og
myndlistarmaðurinn Curver sá um
að mastera plötuna sem gefin er út
af 12 tónum.
Pink Street Boys var tilnefnd til
Norrænu tónlistarverðlaunanna í ár
fyrir plötuna Trash From The Boys
en því er þó haldið fram í tilkynn-
ingu að Hits #1 sé fyrsta breiðskífa
sveitarinnar. Hvernig stendur á því?
Jónbjörn Birgisson, gítar- og bassa-
leikari sveitarinnar og einn söngv-
ara, er beðinn um að svara því og
segir hann Trash From The Boys
samansafn af demo-lögum. „Við er-
um í rauninni ekkert að spila á tón-
leikum lögin sem voru á fyrstu plöt-
unni þannig að þetta er í rauninni
fyrsta alvöru platan,“ segir hann.
– En þið voruð þó tilnefndir til
verðlauna fyrir þá plötu?
„Það kom okkur einmitt mjög
mikið á óvart. Í rauninni er þessi
plata svona „second debut“,“ svarar
Jónbjörn kíminn.
Smellir og högg
– Þetta er hógvær titill, Hits #1.
Eru þetta allt væntanlegir smellir
eða eru lögin nú þegar orðin smell-
ir?
„Já, svo getur þetta líka verið
fyrsta höggið,,“ bendir Jónbjörn á.
– Hvað var platan lengi í vinnslu?
„Við vorum eitt kvöld að taka
hana upp og svona ár að mixa hana
af því við ákváðum að gera það sjálf-
ir. Við kunnum það ekki þannig að
við lærðum að mixa á þessu,“ segir
Jónbjörn og hlær.
– Hvað texta varðar þá heyrist
kannski ekki mikið hvað þið eruð að
syngja um, er það nokkuð?
„Nei, enda hefur texti aldrei verið
neitt stórmál hjá okkur, hann hefur
alltaf verið gerður síðast. Það er
ekki fyrr en nýlega að við byrjuðum
að pæla í honum. Við tökum upp
demó og semjum texta á sama
tíma.“
– Er jafnmikil reiði í textunum og
tónlistinni?
„Já, svona biturð út í stelpur og
svona.“
– Þetta er bitur hljómsveit?
„Svolítið,“ segir Jónbjörn og hlær.
Auk Jónbjörns skipa Pink Street
Boys þeir Axel Björnsson sem leik-
ur á gítar og syngur, Víðir Alexand-
er Jónsson sem leikur á gítar, bassa
og syngur, Einar Björn Þórarinsson
sem leikur á trommur og Alfreð
Óskarsson sem leikur á tambúrínu
og stuð. Spurður út í uppruna
hljómsveitarinnar segir Jónbjörn að
í henni séu strákar sem hafi verið
saman í Foldaskóla í Grafarvogi.
„Við vorum í sitthvorri rokk-
hljómsveitinni þar og það endaði
með því að við sameinuðumst. Við
höfum verið að spila saman í átta
ár,“ segir Jónbjörn. Hljómsveitin
heitir eftir götu í Smiðjuhverfinu í
Kópavogi, Bleikri götu, þar sem hún
er með æfingaaðstöðu. – Í ljósi þess
hversu vel síðustu plötu var tekið,
hún tilnefnd til Norrænu tónlist-
arverðlaunanna m.a., á þessi þá ekki
eftir að njóta enn meiri hylli?
„Ég vona það. Curver sagði að
þetta yrði rokkplata ársins. Það var
reyndar í fyrra þannig að við verð-
um að sjá hverja við keppum við á
þessu ári,“ segir Jónbjörn.
Pink Street Boys halda tónleika í
kvöld kl. 22 í kjallara Bar 11 með
norsku hljómsveitinni The Wed-
nesdays Knights. Þýski plötusnúð-
urinn Matti Hafenmeister mun þar
að auki þeyta skífum.
Morgunblaðið/Eggert
Sú háværasta? Pink Street Boys á Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni í fyrra. Eyrnatappar komu sér þá vel.
Alvöru plata
Hávaðasveitin Pink Street Boys
sendir frá sér breiðskífuna Hits #1
Norski verðlaunahöfund-urinn Jørn Lier Horst erfrekar öflugur og glæpa-saga
hans Hellisbúinn
eða Hulemannen,
eins og hún nefn-
ist á frummálinu,
er ein mest
spennandi bókin
sem kom út í ís-
lenskri þýðingu
fyrir þessa
páskana.
Sagan fjallar
fyrst og fremst um tvo menn, sem
finnast nokkrum mánuðum eftir
andlát sitt, rannsókn á dauðsföll-
unum og athugun blaðamanns á lífi
annars þeirra með einmanaleika í
huga. Á yfirborðinu skömmu fyrir
jól virðist flest vera slétt og fellt, eða
sem næst því, en undir niðri leynast
ekki aðeins óhuggulegir hlutir, sem
þola illa dagsljósið, heldur ógn, sem
enginn virðist geta stöðvað.
Glæpamenn leynast víða og erfitt
getur reynst að eiga við vitskerrta
menn. Hjá Jørn Lier Horst er það
hlutskipti Williams Wistings og
teymis hans í Stavern í Noregi að
leysa sakamálin um þessar mundir
en Line, dóttir hans, lifir sig inn í
heim blaðamannsins og vinnur við
það að setja saman áhugaverða jóla-
sögu fyrir norska dagblaðið VG.
Sagan er vel uppbyggð, teygir
anga sína víða, meðal annars um
Noregs og til Danmerkur og Sví-
þjóðar, og tengingin við Vesturheim
virkar eðlileg. Spennan eykst eftir
því sem líður á söguna og nær há-
marki í lokin. Sumt er samt fyr-
irsjáanlegt en það hefur ekki áhrif á
gang mála.
Þessi glæpasaga rennur vel, erfitt
er að hætta og hún er fljótlesin. Víða
er komið við og leitað fanga. Heimar
lögreglu og fjölmiðla skarast og er
brugðið ljósi á samskiptin af kunn-
áttu. Það eykur trúverðugleikann og
gerir það auðveldara að líta framhjá
því að Minneapolis er ekki við landa-
mæri Kanada og venjan er að tala
um ríki í Bandaríkjunum en fylki í
Kanada.
Morgunblaðið/Ómar
Öflugur Norski verðlaunahöfundurinn Jørn Lier Horst.
Ógn og spenna
í Noregi
Spennusaga
Hellisbúinn bbbbn
Eftir Jørn Lier Horst. Þýðandi: Örn Þ.
Þorvarðarson. Kilja. 344 bls. Draumsýn
bókaforlag 2015.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR