Morgunblaðið - 25.04.2015, Blaðsíða 116
LAUGARDAGUR 25. APRÍL 115. DAGUR ÁRSINS 2015
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 790 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Heiða gat lesið í fyrsta skipti
2. Barnastjarna framdi sjálfsvíg
3. Andlát: Páll Skúlason
4. Fallegra en mig hefði órað fyrir
Nýjasta kvikmynd Dags Kára Pét-
urssonar, Fúsi, vann til þrennra verð-
launa á Tribeca-kvikmyndahátíðinni í
New York í fyrradag. Myndin var valin
besta myndin í keppnisflokknum
„World Narrative“ og er verðlaunafé
25 þúsund Bandaríkjadalir, um 3,4
milljónir króna. Aðstandendur mynd-
arinnar hlutu einnig verðlaunagrip til
eignar og afhentu hann leikarinn Ro-
bert De Niro, einn af stofnendum há-
tíðarinnar, og framleiðandinn Jane
Rosenthal. Dagur Kári hlaut verðlaun
fyrir besta handritið í fyrrnefndum
keppnisflokki og Gunnar Jónsson
verðlaun sem besti leikarinn í flokkn-
um Narrative Feature Film. Í umsögn
dómnefndar segir að myndin snerti
hjarta áhorfenda og taki á ýmsum
málum, m.a. einmanaleika og geð-
rænum vandamálum og sé einnig
fyndin. Gunnar hlaut mikið hrós hjá
dómnefnd Narrative Feature Film fyr-
ir leik sinn. Fúsi hlaut nýverið áhorf-
endaverðlaun dagblaðsins Politiken á
CPH:PIX-kvikmyndahátíðinni í Kaup-
mannahöfn.
Fúsi hlaut þrenn
verðlaun á Tribeca
Cycle-listahátíðin verður haldin í
fyrsta skipti 13.-16. ágúst nk. í
Kópavogi og á henni einblínt á flutn-
ing samtímatónlistar í samvinnu við
önnur listform. Meðal þeirra sem
fram munu koma á henni er verð-
launahafi Tónlistarverðlauna
Norðurlandaráðs 2014,
tónskáldið Simon
Steen-Andersen,
hljóðlistakonan
Christina Kubisch og
myndlistarmaðurinn
Sigurður Guðjónsson,
sem sést á
myndinni.
Ný listahátíð, Cycle,
haldin í Kópavogi
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg átt, 5-13 m/s, hvassast austantil. Snjókoma eða él um
landið norðan- og austanvert en bjartviðri sunnan jökla, þó líkur á lítilsháttar éljum syðst
í kvöld. Frost 1 til 8 stig en hiti 0 til 5 stig sunnanlands yfir daginn.
Á sunnudag, mánudag og þriðjudag Norðan 8-15 m/s. Snjókoma eða éljagangur um
norðan- og austanvert landið en bjartviðri sunnan- og suðvestantil. Kalt í veðri, frost víða
0 til 8 stig, en frostlaust við suðurströndina yfir daginn.
Loft verður væntanlega lævi blandið í
íþróttahúsinu á Varmá í Mosfellsbæ á
morgun þegar flautað verður til leiks
í oddaviðureign Aftureldingar og ÍR í
undanúrslitum Olís-deildar karla í
handknattleik. Leikið verður til þraut-
ar á Varmá og sigurliðið mætir Hauk-
um í úrslitarimmu um Íslandsmeist-
aratitilinn. Flautað verður til leiks
klukkan 16. »4
Afturelding eða ÍR í
úrslitaeinvígið?
Morgunblaðið tók púlsinn á
vallarstjórum þeirra liða sem
eiga heimaleik í fyrstu um-
ferð Pepsi-deildarinnar í
knattspyrnu. Hljóðið var
ágætt í þeim flestum þrátt
fyrir kuldakast næstu daga
en eins og undanfarin ár er
Fylkisvöllurinn í Árbæ
mesta spurningarmerkið
og meiri líkur en minni á að
ekki verði leikið á honum í
fyrstu umferðinni. »2-3
Flestir geta
byrjað á grasinu
Elsa Sæný Valgeirsdóttir, þjálfari Ís-
landsmeistara HK í blaki, á eftir að
taka ákvörðun um framhaldið hjá sér
í þjálfuninni. Elsa tjáði Morgun-
blaðinu að viðræður væru ekki hafnar
á milli hennar og HK en hún gaf í
skyn að hún hefði áhuga á því að
koma áfram að liðinu
með einhverjum hætti.
Elsa hefur gert HK að
meisturum þrjú
ár í röð en
starfar einnig
sem sjúkra-
þjálfari. »1
Þjálfari meistaranna
með lausan samning
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hilmar Sigvaldason á Akranesi hef-
ur lagt til að almenningur safnist
saman í eða við vita landsins og
standi fyrir einhvers konar menn-
ingarviðburðum skömmu fyrir mið-
nætti laugardaginn 20. júní næst-
komandi undir heitinu Menningar-
vitar á Jónsmessu.
Síðan Hilmar stóð fyrir opnun á
Akranesvita fyrir almenning fyrir
rúmum þremur árum hafa rúmlega
20.000 manns heimsótt vitann.
Margir listamenn hafa verið þar
með sýningar og 9. maí verður á
tveimur neðstu hæðum vitans opnuð
sýning með málverkum og teikn-
ingum eftir bandarísku listakonuna
Danielle DeRoberts. Sýningin
stendur til 30. júní og auk þess verð-
ur boðið upp á aðra sýningu á Jóns-
messunni. Jafnvel líka tónleika.
Ekki hlegið lengur
Í umsjá Vegagerðarinnar eru lið-
lega 100 ljósvitar. Hilmar rifjar upp
að fyrir nokkrum árum hafi hann
vakið athygli á lélegu ástandi á
gamla vitanum á Akranesi, hratt
hafi verið brugðist við, vitinn verið
tekinn í gegn og verið valinn þriðji
fallegasti viti í heimi 2013 á erlendri
vefsíðu. Þegar Akraneskaupstaður
hafi auglýst eftir hugmyndum til
þess að auka ferðamannastrauminn
á Akranesi hafi hann bent á að opna
stóra vitann fyrir almenningi og sýn-
ingum. „Það var eiginlega hlegið að
mér í byrjun en þeim fer fækkandi
sem hlæja að þessu mikla aðdráttar-
afli,“ segir hann. „Á þremur árum
höfum við fyllt 12 gestabækur með
yfir 20.000 nöfnum.“
Hilmar segir að listamenn hafi
kunnað mjög vel við sýningaraðstöð-
una í Akranesvita og meðal annars
hafi Fjallabræður fyllt vitann á ein-
um tónleikum. Með það í huga hafi
hann reynt að standa fyrir tón-
leikum í öllum vitum landsins í fyrra.
Áætlunin hafi ekki gengið eftir nema
í nokkrum vitum og nú vilji hann
ganga lengra með því að fá almenn-
ing í lið með sér.
Hugmyndin er að dagskrá í hverj-
um vita hefjist fimm mínútur í mið-
nætti 20. júní. Hilmar segir að fólk
geti gert það sem það vill; sýnt lista-
verk, tekið nokkur lög, lesið upp úr
bókum, verið með sögustund og svo
framvegis. „Aðalatriðið er að menn-
ingartengt efni verði á boðstólum í
þeim tilgangi að vekja athygli fólks á
þessum byggingum,“ segir hann og
bætir við að hugmyndinni hafi verið
mjög vel tekið þar sem hann hafi
kynnt hana. „Hugmyndin er að þetta
verði árlegur viðburður laugardag-
inn fyrir Jónsmessuna og dragi fólk
að vitum landsins.“
Menningarvitar á Jónsmessu
Hvetur almenn-
ing til að efna til
viðburða í vitum
Ljósmynd/Björn Lúðvíksson
Hugsjónamaður Hilmar Sigvaldason stóð fyrir opnun Akranesvita fyrir almenning fyrir rúmum þremur árum.
Akranesviti Starfsmannahópur frá Verkfræðistofunni Eflu í heimsókn.