Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Blaðsíða 4
Föstudagur 28. nóvember 20084 Fréttir
Sandkorn
n Einhvern tíma hefði þótt saga
til næsta bæjar að Heimdell-
ingar færu að álykta gegn Davíð
Oddssyni. Sú var reyndin í gær
þegar stjórn félagsins álykt-
aði að stjórn Seðlabankans og
yfirstjórn
Fjármálaeft-
irlitsins ættu
að víkja.
Ekki nóg
með það
heldur kalla
Heimdell-
ingar eftir
breytingum
á mannavali í ríkisstjórninni svo
ríkisstjórnin endurheimti traust.
Ungu sjálfstæðismennirnir í
Reykjavík eru því ósammála
ungum sjálfstæðismönnum á
Akranesi, þeir ályktuðu Davíð
til stuðnings eftir að eldri sjálf-
stæðismenn á Akranesi höfðu
sagt að hann þyrfti að víkja.
n Og talandi um Davíð. Uppá-
stunga Össurar Skarphéð-
inssonar iðnaðaráðherra við
Smára Garðarsson á borgara-
fundinum í Háskólabíói um að
þeir skyldu fara saman í Seðla-
bankann og hitta Davíð hefur
vakið mikla athygli. DV ræddi
við Smára
í vikunni
og er ljóst
að hann
vill óður og
uppvægur
fara með
Össuri í
Svörtuloft
og spyrja
Davíð út í hvaða ástæður liggja
að baki því að Bretar beittu
hryðjuverkalögum gegn Ís-
lendingum. Egill Helgason tók
þetta upp á vef sínum og telur
sérstaklega mikilvægt að af
þessum fundi verði núna fyrst
Davíð mætti ekki á fund við-
skiptanefndar Alþingis.
n Karamellufundir er heitið
sem föstudagsblaðamanna-
fundir ríkisstjórnarinnar hafa
fengið. Fyr-
ir tveimur
vikum voru
kynntar að-
gerðir til að
bæta stöðu
heimilanna,
daginn fyrir
mótmæli
á Austur-
velli. Fyrir viku kynntu Geir H.
Haarde og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir svo frumvarp um
breytingar á eftirlaunalögun-
um umdeildu sem þingheim-
ur samþykkti á jólaaðventunni
árið 2003. Einhver töf virðist
þó verða á því að það frumvarp
verði lagt fram á Alþingi því um
kvöldmatarleytið á fimmtudag
hafði hvorki sést tangur né tet-
ur af því í þingsal.
Skáldið Skrifar
Fokking fokk ...
kristján hreinsson skáld skrifar. „En einsog fyrri daginn, látum við gíruga fanta stjórna hugsunum okkar.“
Allt frá árinu 1262 höfum við Íslend-ingar barist með hendur í vösum. Gamli sáttmáli gerði okkur mögu-legt að skríða inn í skelina og okkur
hefur svo sannarlega tekist að vera hin undir-
gefna íslenska þjóð í bráðum 750 ár. Og jafn-
vel þótt veraldarsagan hafi kennt okkur að
friðsamleg og þögul mótmæli hafi, nær án
undantekninga, verið árangurslaus erum við
áfram með hendur í vösum og bíðum þess
bljúg og þæg að stjórnarherrarnir róti yfir hið
skítlega eðli og dusti kuskið af hvítflibban-
um.
Hinn vel klæddi framsóknarmaður, Bjarni
Harðarson, heldur því réttilega fram að þeirri
slóttugu klíku, sem Framsóknarflokkurinn er,
sé stýrt af mönnum sem utan við stjórnmálin
standa. Og við getum þakkað sérstaklega fyrir
það að Valgerður forystusauður neitar að tjá
sig um þær aðdróttanir sem Bjarni vill að al-
þjóð heyri.
Þeim mun lengur sem Valgerður þegir þeim
mun betur líður okkur hinum.
Það sem er hér á ferð er rauður þráður í ís-
lensku dægurþrasi: Samfélaginu er stýrt af
hagsmunaklíkum og okkur er kennt að hafta-
stefna, vinavæðing, skömmtun, valdníðsla og
fleiri fylgifiskar hrokafullra frekjudalla séu
nauðsynleg stjórntæki til að halda lífi í lýðn-
um. En einsog fyrri daginn, látum við gíruga
fanta stjórna hugsunum okkar og við erum
svo hlýðin að við förum að boðum ráðamanna
og bjóðum þeim friðsamleg mótmæli þegar
þeim hefur tekist að særa samfélagið svo full-
komlega að mannlífið er í molum.
Friðsamleg mótmæli lifðu góðu lífi í Frakk-
landi allt þar til lýðurinn greip til sinna ráða
árið 1789 og tók völdin í sínar hendur.
Þessa dagana eru menn í Taílandi að mót-
mæla yfirgangi og glæpsamlegum tilburðum
stjórnvalda. Auðvitað hafa þeir áttað sig á því
að barinn þræll lofar herra sinn með því að
mótmæla í þögulli einsemd. Og þeir vita að
eftir er tekið ef menn láta kné fylgja kviði.
Friðsamleg mótmæli eru mér varla að skapi.
Ekki ætla þó að hvetja til ófriðar, en um leið
og ég hvet fólk til kröftugra mótmæla, vil ég
geta þess að einn af svörtu sauðunum í ís-
lenskri pólitík virðist hafa sýnt þá greind að
játa á sig mistök. Þar er á ferð hinn vel greiddi
Guðni Ágústsson.
Framsókn geymir heimskan her
í haugnum rétt við fjósið
þegar Guðni orðinn er
eina gáfnaljósið.
„Viðskiptaráðherra hefur verið send
ósk um sviptingu réttinda níu fast-
eignasala, þannig að málið er inni á
borði ráðherra núna. Ég á von á því
að þessi svipting komi til í lok þessar-
ar viku,“ segir Grétar Jónasson, fram-
kvæmdastjóri Félags fasteignasala.
Níu fasteigna-, fyrirtækja- og skipa-
salar voru sviptir starfsleyfi í lok okt-
óber. Það má rekja til þess að þeir
hafa ekki skilað inn til eftirlitsnefnd-
ar Félags fasteignasala fjárvörsluyf-
irlýsingu áritaðri af endurskoðanda.
„Fasteignasalar eru með fjárvörslu-
reikninga sem þeir geyma peninga
viðskiptavina sinna á. Það skiptir máli
að það sé í lagi og því þurfa fasteigna-
salar, einu sinni á ári, að senda til eft-
irlitsnefndar Félags fasteignasala árit-
un endurskoðanda um að allt sé í lagi
með reikninginn. En þessir níu urðu
ekki við því,“ segir Grétar. Hann segir
að viðkomandi séu fyrst sviptir rétt-
indum sínum tímabundið en ef þeir
bæti ekki úr skilunum verði þeir svipt-
ir leyfi að fullu. Eftirlitsnefndin hef-
ur nú skilað listanum inn til ráðherra
og það skýrist í vikulok hvort viðkom-
andi fasteignasalar verði sviptir rétt-
indum sínum.
Þarf að taka af allan vafa
„Endurskoðandi fer yfir færslur á
fjárvörslureikningunum og hvort allt
stemmi ekki með réttum hætti gagn-
vart viðskiptavinum fasteignasölunn-
ar,“ segir Grétar sem þó vill ekki setja
samasemmerki við vanskil þessara
níu einstaklinga og gruns sem gæti
vaknað um fjármálaóreiðu. „Nei.
Á þessu eru ákveðnar skýringar, oft
kæruleysi, en það er enginn grunur
um að þessir aðilar hafi með nein-
um hætti verið með svindl. Hins veg-
ar er það mjög óheppilegt ef þeir skila
ekki inn fjárvörslureikningum.“ segir
Grétar og bendir á að þeim sé nú einu
sinni skilað inn til að taka af allan vafa
um að allt sé á hreinu. „Það er enginn
grunur um misferli, en maður veit
aldrei á meðan menn skila þessu ekki
inn,“ segir Grétar Jónasson.
Óljóst með innistæður fjár-
vörslureikninga
Alls voru níu fasteignasalar sviptir
starfsleyfi sínu í ár, þrefalt fleiri en í
fyrra þegar þrír voru sviptir réttindun-
um. Aðspurður hvort viðskiptavinir
viðkomandi fasteignasala sem keypt
hafa húsnæði af þeim þyrftu að hafa
einhverjar áhyggjur eða jafnvel skoða
réttarstöðu sína, segir Grétar ýmislegt
óljóst varðandi fjárvörslureikning-
ana. „Málið er að fasteignasalar eiga
að vera með vörslufjárreikning til að
tryggja fjármuni viðskiptavina sinna.
Þegar þeir leggja inn réttindin er óljóst
hvað verður um reikningana og hvort
það sé einhver peningur inni á þeim.
Það er allt óljóst,“ segir Grétar.
Framtíð fasteignasölu
ræðst um áramótin
Ákaflega erfitt ástand er hjá fasteigna-
sölum þessa dagana og mikið hefur
verið um uppsagnir. „Það er í raun
hræðilegt ástand og maður heyrir af
því að margir ætli sér að taka stöð-
una í byrjun nýs árs. Hreinlega hvort
grundvöllur sé fyrir að halda áfram
starfsemi,“ segir Grétar. Hann segist
óttast að margar stofur muni leggja
upp laupana ef ástandið lagast ekki í
byrjun næsta árs og í kjölfarið myndu
enn fleiri starfsmenn missa vinnuna.
Sigurður Mikael jÓnSSon
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
fasteiGnasalar
sViPtir leYfi
Níu fasteigna-, fyrirtækja- og skipasalar voru tímabundið sviptir starfsleyfi sínu á dög-
unum. Þeir höfðu ekki staðið í skilum við eftirlitsnefnd Félags fasteignasala varðandi
fjárvörslureikninga sína. Mál þeirra eru nú komin inn á borð hjá viðskiptaráðherra.
Ekki er hægt að útliloka fjármálamisferli, segir grétar jónasson, framkvæmdastjóri
Félags fasteignasala.
enginn grunur um óreiðu grétar Jónasson segir
ástæður þess að níu fasteignasalar hafi verið sviptir
tímabundið starfsleyfi sínu séu að þeir hafi ekki skil-
að endurskoðuðu yfirliti fjárvörslureikninga sinna.
Mynd Sigtryggur ari jÓhannSSon
„Það er enginn
grunur um misferli,
en maður veit aldrei
á meðan menn skila
þessu ekki inn.“
Tilboð á
barnamyndatökum
Góð mynd er falleg jólagjöf!
Mynd - ljósmyndastofa í 25 ár.
MYND
Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði
S: 565 4207 www.ljosmynd.is