Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Blaðsíða 18
Föstudagur 28. nóvember 200818 Helgarblað
Réttarhöldum vegna máls frá 2006
er rétt nýlokið í Bandaríkjunum.
Sakborningur var kona sem ákærð
var fyrir að hafa spunnið upp per-
sónu á MySpace með það fyrir aug-
um að níðast á þrettán ára stúlku,
sem var nágranni konunnar. Stúlk-
an framdi sjálfsmorð í kjölfarið.
Sakborningurinn, Lori Drew,
fjörutíu og níu ára, var sýknuð af
alvarlegustu ákærunni, sem var að
hafa í heimildarleysi nýtt sér tölvu
með það fyrir augum að skaða sál-
arlíf annarrar manneskju. Drew var
hins vegar sakfelld fyrir þrjá lítil-
væga glæpi sem sneru að því að
nýtt sér tölvu í heimildarleysi. Hún
á yfir höfði sér allt að eins árs fang-
elsi og 100.000 bandaríkjadala sekt
fyrir hvert brot, samtals 300.000 dali
sem samsvara um fjörutíu og einni
milljón íslenskra króna.
Evans var uppspuni einn
Sem fyrr segir má rekja forsögu
málsins til ársins 2006 og er það
sennilega hið fyrsta þar sem ákært
er fyrir netþjösnaskap í Bandaríkj-
unum. Í miðju málsins var Meg-
an Meier sem hengdi sig á heimili
sínu í Dardenne Prairie, úthverfi St
Louis. Megan ákvað að binda enda
á eigið líf eftir að hún fékk rafrænan
póst frá dreng, Josh Evans, sem hún
hafði vingast við á netinu.
En Evans var uppspuni einn,
skálduð persóna sem Lori Drew,
Sara dóttir Lori, og Ashley Grills
sem var starfsmaður Lori.
Orðsendingin sem hratt at-
burðarásinni af stað var frá Meg-
an til Grills. Í henni viðraði Megan
þá skoðun sína að Sara væri ljót og
lesbísk í þokkabót.
Þessi skoðun Megan barst Lori
til eyrna og hún reiddist Megan fyr-
ir að hafa „borið út róg“ um dóttur
hennar, og varð umhugað að gera
Megan „berskjaldaða“.
Hugmynd að hefnd fæðist
Lori fékk Söru dóttur sína, sem
einnig var bekkjarfélagi Megan, og
Ashley Grills til skrafs og ráðagerða
og í sameiningu upphugsuðu þær
leið til að niðurlægja Megan, kenna
henni lexíuna og komast í leiðinni
að því hvað hún hefði að segja um
fólk.
Þeim datt í hug „Josh Evans“,
sextán ára dreng sem væri nýfluttur
í hverfið. Til að fullkomna blekking-
una stofnuðu þær MySpace-síðu í
nafni hins skáldaða drengs og settu
meira að segja inn mynd af „Josh“
með úfið hár og ber að ofan.
Megan Meier var ung og áhrifa-
gjörn stúlka og glímdi við þung-
lyndi og þurfti ekki meira þegar
„Josh“ sýndi henni áhuga og festist
í blekkingarvef mæðgnanna og vin-
konu þeirra.
Óknyttir breytast í illkvittni
Megan og „Josh“ hófu að skipt-
ast á orðsendingum, og hún varð
sem leiksoppur í höndum Lori
Drew og stúlknanna. Eitt sinn, að
sögn Grills, stakk Lori upp á því að
þær kæmu á stefnumóti Megan og
„Josh“ í nálægri verslunarmiðstöð.
Síðn myndu þær birtast óvænt og
gera gys að Megan.
Áður en langt um leið tóku
óknyttirnir á sig dekkri, illkvittn-
ari mynd. Kornið sem fyllti mæl-
inn hjá Megan var orðsending sem
Ashley sendi í nafni „Josh“ 12. okt-
óber 2006. Í henni var Megan sagt
að „heimurinn yrði betri staður án
hennar“ og hún var hvött til „að
halda áfram að lífa sínu [ömurlega]
lífi“.
Svar Megan við orðsendingunni
dró dám af skilaboðunum: „Þú ert
drengur af því tagi sem fær stúlkur
til að fremja sjálfsvíg.“ Skömmu síð-
ar hengdi Megan sig.
Tók ekki í gikkinn
Málflutningur ákæruvaldsins
byggðist á því að Lori Drew hefði
verið heilinn á bak við blekkinguna
og sagði að henni hefði verið full-
kunnugt um sálarástand Megan, en
engu að síður viðhaldið blekking-
arleiknum. „Hann breyttist úr ein-
földum hrekk í þann ásetning að
ánetja hana [Megan] þessum unga
manni svo hún yrði eyðilögð þeg-
ar hún kæmist að því að hann væri
ekki til,“ sagði Mark Krause, sækj-
andi í málinu.
Krause staðhæfði að Lori hefði
stært sig af athæfinu og hefði ítrek-
að fjölyrt um sinn þátt í því, jafnvel
eftir dauða Megan. Hann vitnaði í
vitnisburð Dawn Chu hárgreiðslu-
konu sem sagði fyrir dómi að Lori
hefði komið á hárgreiðslustofuna
sama dag og líkvaka Megan fór
fram. Chu var hissa á að Lori hygð-
ist mæta í athöfnina, en Lori sagði:
„Það er ekki eins og ég hafi tekið í
gikkinn.“
Ekki morðmál
Thomas O‘Brien, einn sækjenda,
fór að reyna að sýna kviðdómend-
um fram á skeytingarleysi Loru
Drew gagnvart Megan. „Þetta er
„Josh Evans“ þarna, gott fólk. Lori
Drew tók þá ákvörðun að niður-
lægja barn. Eina leiðin sem henni
var fær til þess var að nota tölvu,“
sagði O‘Brien í lokaræðu sinni.
Verjandi Lori sagði að ef kvið-
dómendur hefðu ekki heyrt ákæru-
atriðin gætu þeir freistast til að halda
að um morðmál væri að ræða. „Og
þetta er ekki morðmál, Þetta, döm-
ur mínar og herrar, er tölvumál og
það er það sem þið þurfið að leggja
til grundvallar,“ sagði verjandinn.
Lori Drew var ákærð á grund-
velli laga sem lúta að tölvunotkun
og svindli. Þeim lögum er allajafna
beitt í málum sem varða hakkara og
stuld á vörumerkjum. Ákæruvald-
ið tók þá ákvörðun að ákæra Lori á
þeim grundvelli að hún hefði brot-
ið skilmála MySpace, sem banna
notkun falskra nafna, ofsóknir í
garð annarra og að leita persónu-
legra upplýsinga frá ólögráða ein-
staklingum.
Megan Meier, þrettán ára stúlka, batt enda á eigið líf í kjölfar þess að hafa sætt illkvittnislegum tölvuhrekk.
Hrekkurinn átti að vera hefnd fyrir ummæli sem Megan hafði látið frá sér fara. Hrekkurinn fór illilega úr
böndunum og varð Megan um megn. Í vikunni féll dómur í máli Lori Drew sem, ásamt dóttur sinni og starfs-
manni, stóð að baki blekkingarvef sem kostaði unga stúlku lífið.
NetþjösNi dæmdur
Til að fullkomna blekkinguna stofnuðu
þær MySpace-síðu í nafni hins skáldaða
drengs og settu meira að segja inn mynd
af „Josh“ með úfið hár og ber að ofan.
Megan Meier
Kiknaði undan netþjösnaskap
og framdi sjálfsvíg.
Tina Meier
móðir megan barðist ötullega
fyrir því að Lori drew yrði
dregin til ábyrgðar.
Lori Drew og dóttir hennar
„Það er ekki eins og ég hafi
tekið í gikkinn,“ sagði Lori drew.
Nýr kostur í DV eru
þjónustuauglýsingar.
Það borgar sig að
auglýsa í DV!
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR
Hringdu í síma 515 5550
og byrjaðu strax í dag!
Samfellan
sem formar
líkamann
Ný sending
Laugavegi 80 - Sími 561 1330
www.sigurboginn.is