Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Blaðsíða 6
Föstudagur 28. nóvember 20086 Fréttir
Sandkorn
n Vandræði Björgólfs Guð-
mundssonar virðast enn auk-
ast ef marka má skrif breska
dagblaðsins Daily Mail. Þar
segir að
honum
hafi verið
ráðlagt að
selja West
Ham áður
en til þess
kemur að
félagið
kunni að
þurfa að greiða Sheffield Un-
ited þrjátíu milljónir punda í
skaðabætur. Slíkt er sagt geta
ráðið úrslitum um að Björ-
gólfur verði gjaldþrota í ljósi
alls þess sem hefur gengið á
hjá honum til þessa. Forráða-
menn og leikmenn Sheffield
United hafa kært West Ham
vegna þátttöku Carlosar Te-
vez í leikjum liðsins, þegar
hann var lánaður til félagsins
með ólöglegum hætti. Enn
er deilt um hvort West Ham
þurfi að reiða fram þessar
greiðslur.
n Siv Friðleifsdóttir, þing-
maður Framsóknarflokks-
ins, kom algjörlega af fjöllum
þegar blaðamaður DV hafði
samband við hana í fyrradag
og spurði
hana út í
trúnaðar-
pósta Jóns
Sigurðsson-
ar, fyrr-
verandi
formanns
flokksins.
Siv er ein
þeirra sem ekki fá trúnaðar-
pósta frá Jóni og er því úti í
kuldanum þegar kemur að
umræðum um forystu flokks-
ins. Ef skipta á flokknum í
lið eru Siv, Guðni og Bjarni
Harðar öðrum megin en Val-
gerður og Jón hinum megin.
n Jón Gnarr og Sigurjón
Kjartansson fara mikinn í
myndbandi sem tekur á sig
nýja merkingu í því ástandi
sem Íslendingar finna sig
stadda í núna. Spillingardans
heitir atriðið, nokkurra ára
gamalt skemmtiatriði úr sjón-
varpi þar
sem Jón
er í gervi
vinstri-
sinnaðrar
söngkonu
og Sigur-
jón leik-
ur undir
á gítar.
Þar fárast persónurnar yfir
spillingu og auðvaldi og þar
fá „kapítalistar andskotans“
á baukinn. Þetta ágæta atriði
var þó sennilega tekið upp á
þeim tíma áður en þeir Sig-
urjón og Jón urðu kannski
þekktari fyrir skemmtilegar
auglýsingar en hefðbundið
skemmtilegt grín.
n Stormur og ofankoma settu
strik í reikninginn hjá mörg-
um landsmönnum á fimmtu-
dag. Fólk sem ætlaði sér að
fljúga milli landshluta komst
hvergi og
aðrir máttu
hafa sig
alla við til
að halda
sig á veg-
um. Meðal
þeirra sem
máttu glíma
við Frosta
frænda var Lára Ómarsdótt-
ir sem byrjuð er að messa
sparnaðarráð sín yfir lands-
byggðarfólki. Lára ætlaði að
keyra að norðan heim í Mos-
fellsbæinn aðfaranótt föstu-
dags en mátti horfast í augu
við blindbyl og bandbrjálað
veður.
Starfsmenn Skattstjórans í Reykjavík fóru á árshátíð í Berlín:
skattstjóri borgar súpu og salat
Á föstudag í síðustu viku fóru starfs-
menn Skattstjórans í Reykjavík til
Berlínar á árshátíð. Ferðin var að
hluta til fræðsluferð en starfsfólkið
heimsótti þýska fjármálaráðuneytið
og sat þar fyrirlestur. Gestur Stein-
þórsson, skattstjóri í Reykjavík, seg-
ir að starfsmenn hafi sjálfir borgað
ferðakostnað.
„Skattstjóri borgar ekkert af ferða-
kostnaði, það eina sem borgað var af
hálfu embættisins er túlkþjónusta
og súpa og salat á fyrirlestrinum í
þýska fjármálaráðuneytinu.“ Gestur
segir að þrjátíu starfsmenn hafi farið
og átta makar hafi verið með í för. Á
fyrirlestrinum var fólkið upplýst um
skattamál og mál tengd Evrópusam-
bandinu. „Þetta hefur áður verið gert
enda er það mjög algengt að farið sé
þarna til Berlínar í svona ferðir. Við
styrkjum náttúrlega starfsmannafé-
lagið bara almennt eins og gengur og
gerist en ekkert sérstaklega í þessa
tilteknu ferð.“
Hann segir að kostnaðurinn við
súpuna og salatið auk túlksins sé í
kringum fimmtíu til sjötíu þúsund
krónur.
Gestur benti blaðamanni á að
tala við Hlyn Ingason, formann
starfsmannafélagsins, þegar blaða-
maður hafði samband við Hlyn
vildi hann ekki tjá sig um mál-
ið. „Ég ætla ekki að segja neitt um
þetta,“ sagði Hlynur. Starfsmaður
hjá skattinum hafði hins vegar aðra
sögu að segja en Gestur. Hann seg-
ir að kaffi og vatn hafi verið í boði í
ráðuneytinu, en ekki súpa og salat.
„Hann (skattstjórinn) bauð okkur í
eina máltíð.“ Aðspurður hvort það
hafi verið á veitingastað. „Það var
á veitingastað, hvar heldurðu að
maður borði annars staðar? Hann
sendi okkur ekki með pott og prím-
us,“ segir starfsmaðurinn og seg-
ir að hann hafi borgað í kringum
hundrað þúsund krónur fyrir sig og
konu sína.
Til Berlínar starfsmenn
skattstjórans fóru til berlínar á
árshátíð og í fræðsluferð.
„Það kom mér mjög á óvart að fá
þessa tilkynningu um að Grund ætl-
aði að áfrýja til ríkissaksóknara. Ég
taldi þessu máli lokið þegar lögregl-
an gaf það út að það væri ekki tilefni
til að rannsaka það frekar, ég hefði
ekki brotið lögin. Enda tel ég það afar
langsótt að kæra mig fyrir húsbrot,
þar sem ég starfaði á þessum vinnu-
stað og skrifaði grein um þá reynslu,“
segir Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir,
ritstjóri Nýs lífs. Hún er nú í fæðing-
arorlofi og eyðir dögunum með rúm-
lega vikugömlum syni sínum.
Lá bjargarlaus á gólfinu
Ingibjörg Dögg réð sig til starfa á
Grund árið 2006 og vann þar um hríð.
Hún skrifaði síðan greinar í tímarit-
ið Ísafold um upplifun sína á staðn-
um og aðbúnað eldri borgara sem
þar dvelja. Grund kærði Ingibjörgu til
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í
kjölfarið fyrir húsbrot.
Ingibjörgu var ekki gert að skrifa
undir trúnaðarsamning við stofn-
unina. Greinarnar báru yfirskrift-
ina „Endastöðin“ og voru þar meðal
annars birtar frásagnir starfsmanna
af eldri konu sem féll úr rúmi sínu í
gólfið með þeim afleiðingum að hún
beinbrotnaði. Konan lá bjargarlaus á
gólfinu við rúmið klukutímum saman
án þess að neinn kæmi henni til hjálp-
ar, að því er kemur fram í greininni.
Enginn fótur fyrir sakargiftum
Grund kærði Ingibjörgu Dögg fyr-
ir húsbrot á grundvelli 231. greinar
hegningarlaga. Þar segir í fyrstu máls-
grein: „Ef maður ryðst heimildar-
laust inn í hús eða niður í skip annars
manns, eða annan honum óheimilan
stað, eða synjar að fara þaðan, þegar
skorað er á hann að gera það, varð-
ar það sektum eða fangelsi allt að 6
mánuðum.“
Í bréfi dagsettu 7. október var
stjórn Grundar og Ingibjörgu Dögg
tilkynnt að lögreglan myndi ekki að-
hafast frekar í málinu þar sem ekki
væru nægar líkur á því að það myndi
leiða til sakfellingar.
Gunnar Ingi Jóhannsson, verjandi
Ingibjargar Daggar, segir niðurstöðu
lögreglustjórans á höfuðborgarsvæð-
inu ekki koma á óvart. „Þetta er eina
skynsamlega niðurstaðan í málinu.
Það var aldrei neinn fótur fyrir þess-
um sakargiftum. Ég er sannfærð-
ur um að sú ákvörðun að fella niður
málið verður staðfest,“ segir hann.
Grund unir þeirri niðurstöðu hins
vegar ekki og hefur kært úrskurðinn
um að láta málið falla niður til ríkis-
saksóknara.
Tvö ár í rannsókn
Ingibjörg er undrandi yfir ákvörðun
Grundar. „Ég er þess fullviss að ég
hef ekki brotið lögin og hlakka til að
þessi máli ljúki, sem nú hefur verið í
rannsókn undanfarin tvö ár. Reynd-
ar tel ég að á þeim tíma hefði það átt
að vera löngu ljóst ef ég hefði brotið á
rétti einhvers. En að sjálfsögðu mun
ég mæta því sem fyrir mig er lagt og
svara fyrir þessa grein,“ segir hún.
Niðurstöðu ríkissaksóknara er nú
beðið um hvort ákvörðun lögregl-
unnar um að fella málið niður verð-
ur staðfest eða hvort það verður tekið
upp að nýju. Gunnar Ingi segist hins
vegar ekki hafa nokkra trú á að það
verði gert.
Þegar DV leitaði viðbragða hjá
Grund fengust þau svör að hvorki
forsvarsmenn né lögmaður myndi
tjá sig um málið á meðan það væri
enn í höndum lögreglu eða saksókn-
ara.
Tekið skal fram að Nýtt líf og
DV heyra bæði undir útgáfusam-
steypuna Birtíng. Ísafold gerði það
sömuleiðis.
ErLa HLynsdóTTir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Enginn trúnaðarsamningur Ingibjörg dögg
Kjartansdóttir á fullt í fangi með að annast ungan
son sinn þessa dagana. grund krefst þess að hún
verði dregin til saka fyrir að skrifa um upplifun sína
af heimilinu þegar hún starfaði þar.
Mynd: VEra PÁLsdóTTir
Dvalar- og hjúkrunarheimilið Grund
hefur kært til ríkissaksóknara ákvörð-
un lögreglustjórans á höfuðborgar-
svæðinu að fella niður kæru á
hendur blaðakonunni ingibjörgu
dögg Kjartansdóttur. Ingi-
björg réð sig í vinnu á
Grund og skrifaði grein-
ar um upplifun sína þar í
tímaritið Ísafold. Ákvörð-
un Grundar kemur henni
mjög á óvart og tel-
ur Ingibjörg
sig engin lög
hafa brot-
ið.
ELLIHEIMILIÐ
FER Í HART „Ég er þess full-viss að ég hef ekki brotið lögin og hlakka til að þessu máli ljúki.“