Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Blaðsíða 23
Föstudagur 28. nóvember 2008 23Umræða
Hver er maðurinn? „Kristinn
Jakobsson.“
Hvað drífur þig áfram? „Ánægj-
an.“
Hvar ólstu upp? „Í Kópavogi.“
Áttu stóra fjölskyldu? „Ég er giftur
og á tvö frábær börn, þau Jakob og
Karen.“
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn? „nautasteik.“
Hvaða bók er á náttborðinu
þínu? „ódáðahraun eftir stefán
mána.“
Hver eru þín áhugamál?
„Knattspyrna, líkamsrækt og önnur
hreyfing, einnig hef ég mikinn áhuga
á ferðalögum.“
Hvenær dæmdirðu þinn fyrsta
leik? „Árið 1990.“
Hvernig var tilfinningin að vera
fyrsti íslenski dómarinn til að
dæma í að margra mati sterk-
ustu keppni heims? „tilfinningin
var hreint ólýsanleg.“
Varstu stressaður fyrir leikinn?
„nei, alls ekki, bara fullur tilhlökkun-
ar.“
Hvernig gekk dómgæslan? „Þetta
gekk allt saman vonum framar.“
Eru fleiri stórleikir fram undan?
„Það á eftir að raða komandi
verkefnum niður, menn hafa því
ekkert í höndunum eins og staðan er
núna.“
Draumurinn? „að taka næsta skref.“
Hvaða stjórnmálaflokkur stendur sig best í þessu mikla ölduróti?
„enginn.“
Björn róBErt
29 Ára nÁmsmaður
„sjálfstæðisflokkurinn stendur sig
ágætlega og geir H. Haarde hefur hald-
ið haus í þessu ölduróti.“
Hinrik MattHíasson
62 Ára starFar Í tryggingum
„enginn hægriflokkur og ég er búinn
að missa allt álit á samfylkingunni. Það
væru þá frjálslyndir eða vinstri-grænir.“
kristfinnur GunnlauGsson
29 Ára atvinnulaus
„Ég hef alltaf verið hægrisinnuð en er
orðin vinstrisinnuð núna. Ég ætla að
kjósa þá sem taka upp evruna.“
GErður BEnEDiktsDóttir
63 Ára grasalæKnir
Dómstóll götunnar
kristinn jakoBsson
Kristinn Jakobsson knattspyrnudóm-
ari varð fyrstur Íslendinga til að
dæma í meistaradeild evrópu er hann
dæmdi í leik liðanna shakhtar
donetsk og basel.
Ólýsanleg
tilfinning
„enginn.“
karl a. karlsson
42 Ára lagerstJóri
maður Dagsins
Einhvernveginn finnst mér einsog
bók Svövu Jakobsdóttur Leigjand-
inn hafi öðlast glænýja merkingu
og enn eina víddina síðustu vikurn-
ar. Þannig er það líka með góðar
bækur, þær standa af sér tímann og
koma endalaust á óvart.
Leigjandinn kom fyrst út 1969 og
er því rétt að verða fertugur. Menn
deildu strax um innihaldið. Marg-
ir þóttust sjá að Svava beindi spjót-
um sínum að veru ameríska hersins
á Íslandi og samskiptum Íslendinga
við hann – og sú pólitík fór mjög
fyrir brjóstið á öryggislausum her-
námssinnum. Öðrum fannst að
þarna væri á ferðinni saga um stöðu
konunnar í samfélagi sem er and-
snúið frelsi hennar og notar hvert
tækifæri til að snúa hana niður – og
sú skoðun átti ekki vini í þeim sem
vildu ekki þjóðfélagsbreytingar.
En hvernig svo sem Leigjand-
inn ögraði voru flestir sammála um
að sagan væri flott smíð, dularfull,
undarleg og mögnuð svo vitnað sé
til nokkurra orða sem um bókina
voru höfð og víst sáu menn að hún
fjallaði almennt um vald og vald-
beitingu og kúgun hins sterka á hin-
um veika.
Leigjandinn segir frá ungum
hjónum sem búa í leiguíbúð á með-
an einbýlishúsið þeirra er í smíð-
um. Einn góðan veðurdag kemur
til þeirra gestur sem gerir sig afar
heimakominn og smám saman
verða hjónakornin ungu svo fjár-
hagslega háð honum að þeim tekst
illa að lifa án hans. Í bókinni segir:
„Aldrei hafði öryggisleysið tekið
jafn skýlaust af henni ráðin og dag-
inn sem leigjandinn kom. Það var
að morgni dags. Hún var að störf-
um í eldhúsinu þegar hún heyrði
óvæntan umgang. Hún leit fram
í forstofu þá stóð hann þar með
ferðatöskuna í hendinni. Hann var
komin inn til þeirra án þess að berja
að dyrum.“
Skrýtinn gestur að tarna sem
færir sig smátt og smátt upp á skaft-
ið. Samband hans við ungu hjónin
verður sífellt nánara og flóknara og
andrúmsloftið stöðugt óhugnan-
legra og svo gerist það að dag einn
taka fætur eiginmannsins og leigj-
andans að styttast og þeir styttast
svo mikið að mennirnir eiga erf-
itt um gang. Loks skeður svo hið
ómögulega – einsog svo oft í sög-
um Svövu – mennirnir tveir skreppa
saman og verða að einum og sama
manninum og hafði sá tvö höfuð,
fjóra handleggi en gekk á tveimur
jafnfljótum.
Ég ætla nú ekki að eyðileggja
söguna með því að þvælast frekar
um í kostulegri atburðarásinni en
ég velti fyrir mér hver leigjandi ungu
hjónanna sé núna – árið 2008. Sum-
ir kynnu að segja að hann feldi sig
í orðum forsætisráðherra sem sagði
að ef hér yrðu kosningar fengjum
við ekki lánið hjá Alþjóðagjaldeyr-
issjóðnum. Aðrir kynnu að finna
honum stað í öðrum bönkum og
valdastofnunum og enn aðrir ann-
arsstaðar.
En það er ljóst að hinn miskunn-
arlausi leigjandi leynist víða þessa
dagana og hefur gert síðustu árin og
árangur hans er allra síst minni en
1969 þegar menn sáu hann í ann-
arri mynd en þeirri sem birtist nú
grímulaus á íslenskum heimilum.
Eitt er að minnsta kosti víst að
Leigjandann eftir Svövu Jakobsdótt-
ur á afar óþægilegt en sterkt erindi
við samtímann. Hún kallar á lesn-
ingu.
Hver er Leigjandinn?
kjallari
mynDin
VonskuVEður lóðsinn frá reykjavíkurhöfn siglir út á sundin í vonskuveðri enda þarf að lóðsa til hafnar hvernig sem viðrar. veður á höfuðborgarsvæðinu í gær var þó
ágætt miðað við annars staðar en víða á norðurlandi var skólahaldi aflýst vegna óveðursins. MynD róBErt rEynisson
ViGDís
GríMsDóttir
rithöfundur skrifar
„Sumir kynnu að segja að hann
feldi sig í orðum Forsætisráð-
herra sem sagði að ef
hér yrðu kosningar
þá fengjum við ekki
lánið hjá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum.“