Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Blaðsíða 82
föstudagur 28. nóvember 200882 Matur & vín
Gefðu braGðGóða Gjöf Heimagert
konfekt í fallegum umbúðum er bragðgóð og
persónuleg gjöf sem höfðar til allra. Það er líka
afar sniðug lausn á krepputímum sem nú því
það kostar ekki mikið. tilvalið er að fjölskyldan
verji tíma saman á aðventunni og búi til konfekt
handa ömmu og afa, frændfólki og vinum. Leyfið
svo börnunum að skreyta umbúðirnar sjálf og
gjöfin verður enn persónulegri
umsjón: koLbrún páLína HeLgadóttir, kolbrun@dv.is
GirnileGt
jólakonfekt
jólin nálgast og húsmæður landsins
eru eflaust farnar að taka sig til og
skoða jólauppskriftirnar. jólakonfekt
er ómissandi og gerir aðventuna
vafalaust hátíðlegri. dv tók saman
nokkrar einfaldar konfektuppskriftir
fyrir þá sem vilja prófa eitthvað nýtt.
Bounty-konfekt
n 4 dl kókosmjöl
n 4 dl flórsykur
n 1 eggjahvíta
n 3 msk. brætt smjör
n 3-4 msk. rjómi
n vanilludropar
n Hvítt súkkulaði til hjúpunar
Aðferð: smjörið er brætt og rjóminn
settur út í. eggjahvítu, kókosmjöli og
flórsykri er blandað rólega við allt
saman. Þetta er svo hnoðað, mótað í
kúlur og kælt. gott er að hafa þær á
bökunarpappír. kúlurnar eru svo
hjúpaðar með bræddu hvítu
súkkulaðinu. Þessu má velta upp úr
kókosmjöli að vild.
Hnetusmjörskonfekt
n 2 ½ dl hnetusmjör
n 2 ½ dl flórsykur
n 2 ½ dl saxaðar döðlur
n 2 ½ dl saxaðar valhnetur eða
pecan-hnetur
n 2 msk. mjúkt smjör
Aðferð: blandið öllu vel saman í
matvinnsluvél. búið til kúlur úr
massanum og kælið á bökunar-
pappír. dýfið kúlunum síðan í brætt
súkkulaði. Þetta konfekt má frysta.
sAltHnetukonfekt
n 200 g marsípan
n 100 g núggat
n 50 g hakkaðar salthnetur
n brætt ljóst/dökkt súkkulaði
Aðferð: rúllið niður marsípan með
kökukefli eftir smekk. gerið það
sama við núggatið og hafið það í
sömu stærð. Leggið núggatið ofan á
marsípanið og sáldrið hökkuðum
salthnetum á annan helminginn.
Þrýstið hnetunum ofan í núggatið
og brjótið svo hinn helminginn yfir.
rúllið yfir með kökukefli í um það bil
5 til 8 mm þykkt og skerið í ferninga.
kælið molana, húðið með súkkulaði
og skreytið að vild.
DAim-konfekt
n 200 g ljóst súkkulaði
n 500 g marsípan
n 3 pk. daim-kúlur
n kókosmjöl
Aðferð: bræðið súkkulaðið yfir
vatnsbaði. skerið marsípanið í tvo
jafnstóra hluta og fletjið þá út.
skerið útflatt marsípanið í þríhyrn-
inga, svo stóra að tvær til fjórar
daimkúlur rúmist á hverjum þeirra.
setjið kókosmjöl á disk. dýfið
þríhyrningunum í bráðið súkkulaðið,
látið umframsúkkulaðið leka af þeim
og leggið þá því næst í kókosmjölið.
setjið tvær til fjórar daimkúlur ofan á
hvern. takið þríhyrningana úr
kókosmjölinu og geymið í kæli.
Kjúklingur og desert
Hermann Hauksson „Þetta geri ég í þau örfáu skipti sem ég elda mat
handa fjölskyldunni.“
kúbverskur kjúklinGur í
hvítlaukssósu
n 4 kjúklingabringur, beinlausar
n 3 msk. ólífuolía
n 8 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
n 150 ml hvítvín, þurrt
n 3 msk. steinselja, söxuð
n 3 msk. kóríanderlauf, söxuð
n 1 laukur, skorinn í sneiðar
aðferð:
olían hituð með helmingnum af
hvítlauknum á stórri pönnu. kjúklingur-
inn settur á pönnuna og brúnaður.
afgangurinn af hvítlauknum settur á
pönnuna ásamt lauknum og látið
krauma við vægan hita í um 5 mínútur,
eða þar til laukurinn er meyr. víninu hellt
út í, steinselju og kóríanderlaufi hrært
saman við og látið malla í 5-10 mínútur,
eða þar til kjúklingurinn er rétt steiktur í
gegn. borið fram með hrísgrjónum og
fersku salati.
oreo-desert
n 1 bolli flórsykur
n 200 g rjómaostur
n 1 bolli mjólk
n 1 pakki valillubúðingur royal
n 1 tsk. vanilludropar
n 1 peli rjómi - þeyttur
n 24 stk. oreokex (2 pakkar) mulið smátt
aðferð:
flórsykrinum og rjómaostinum hrært vel
saman, mjólkinni, vanillubúðingnum og
vanilludropunum einnig hrært saman og
síðan blandað við rjómaostahræruna.
Þeytta rjómanum er síðan blandað
varlega saman við.
sett í skál þannig: búðingur - oreom-
ylsna - búðingur - oreomylsna. kælt í
stutta stund.
Ég ætla að skora á Inga Þór Steinþórsson, þjálfara hjá
köruknattleiksdeild KR, sem er mikill matgæðingur og
býr til besta lasagna í heimi!
Matgæðingurinn
súkkulaði-fondant með chili-sósu
Súkkulaði-fondant er mjög
vinsæl kaka í Frakklandi.
Þetta er hveitilaus kaka,
blaut í sér og með mjúka
miðju. Hún er oftast borin
fram með vanillusósu en
hér löguðum við sterka
chili-sósu sem passar mjög
vel með. Gott er síðan að
kæla sig aðeins niður með
því að hafa líka sýrðan
rjóma með svo ekki kvikni í
þessari munúðarfullu sam-
setningu.
súkkulAði-fonDAnt
með cHili-sósu
uppskriftina að þessari unaðslegu
súkkulaðiköku má finna í glæsilegu
kökublaði gestgjafans. kakan er í þætti
sem gestgjafinn kallar súkkulaði fyrir
nautnaseggi og nammigrísi. ekki skilja
þessa út undan í jólabakstrinum.
uppskrift fyrir 8.
súkkulaði-fondant
n 200 g súkkulaði
n 200 g smjör
n 50 g sykur
n 70 g flórsykur
n 5 stór egg
n 40 g kartöflumjöl
Hitið ofninn í 180°C. fóðrið botninn á
20-22 cm smelluformi með bökunar-
pappír. setjið álpappír utan um formið
til þess að einangra það betur og þétta
það. bræðið súkkulaði og smjör yfir
vatnsbaði en gætið þess vel að blandan
ofhitni ekki. Hrærið báðar sykurtegundir
saman við súkkulaðið og bætið eggjum
saman við, einu í einu, þetta má gera
með handpískara. bætið að síðustu
kartöflumjöli út í og hrærið vel saman.
Hellið deiginu í smelluformið og bakið
kökuna í 20-25 mín. bökunartíminn er
mikið atriði, ef þið viljið hafa kökuna
með mjög blautri miðju eru 20 mín.
hæfilegur tími fyrir 20 cm form en 25
mín. ef þið viljið hafa hana stífari.
Chili-sósa:
n 2 appelsínur
n 150 g sykur
n ½-1 ferskt chili-aldin, kjarnhreinsað og
þunnt sneitt
rífið börk af 1 appelsínu og setjið í pott.
kreistið safann úr báðum appelsínunum
og bætið í pottinn. sjóðið saman ásamt
sykri og chili-sneiðum í 3-4 mín. berið
kökuna fram með chili-sósu og sýrðum
rjóma.
stíListi: gerður Harðardóttir
mynd: karl petersson
uppskrift: sigríður björg
bragadóttir