Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Blaðsíða 90
Föstudagur 28. nóvember 200890 Tækni
iPhone-auglýsing bönnuð
nýjasta auglýsing apple-fyrirtækisins í bretlandi hefur verið bönn-
uð. auglýsingin, sem heldur á lofti kostum iPhone-símans, þótti
innihalda misvísandi og villandi upplýsingar um nettengingargetu
vörunnar. Þar kemur fram að síminn geti tengst netinu og hlaðið
niður efni á mjög skömmum tíma eða „really fast“. samkeppnisyfir-
völd í bretlandi úrskurðuðu eftir fjölmargar kvartanir að auglýsingin
væri villandi og ýkti getu símans verulega.
stalst í Pósthólf
samstarfskonu
Larry mendte, annar af aðalfrétta-
mönnum Cbs í Fíladelfíu í bandaríkj-
unum, hefur verið fundinn sekur um
að brjótast inn í vefpósthólf alyciu
Lane, hins aðalfréttamannsins á
sjónvarpsstöðinni. mendte var
fundinn sekur um að hafa brotist í
um fimm hundruð skipti inn í
pósthólf Lane og lekið þannig
persónulegum málefnum um hana
til slúðurdálka dagblaða og vefsíðna.
mendte var umsvifalaust sagt upp
störfum þegar málið kvisaðist út og
þarf nú að greiða 5.000 dollara sekt
og gegna 150 klukkutíma samfé-
lagsþjónustu.
umsjón: PáLL svansson, palli@dv.is
Ef marka má nýja könnun sem
hið bandaríska Nielsen-fyrirtæki
hefur birt hafa Bandaríkjamenn
aldrei horft jafnmikið á sjónvarp eins
og þeir gera í dag. Könnunin byggð-
ist á því að fylgjast með þeim tíma
sem venjuleg bandarísk fjölskylda
eyðir fyrir framan sjónvarpið, vafr-
ar á netinu og notar farsíma. Sjón-
varpið hafði vinninginn og sú gamla
kenning um að netið myndi ganga
að sjónvarpinu dauðu virðist eiga við
lítil rök að styðjast.
Fram kemur að Bandaríkjamenn
settu ný met í sjónvarpsáhorfi árin
2007-2008, meðalfjölskyldan eyddi
að jafnaði átta klukkustundum og
átján mínútum fyrir framan sjón-
varpið hvern dag og hver einstakl-
ingur um fjórum klukkustundum og
fjörutíu og fimm mínútum.
Þetta gætu virst góðar fréttir fyr-
ir útsendingarrisa eins og CBS eða
NBC en reyndin er hins vegar sú að
aukning á sjónvarpsáhorfi almenn-
ings vestanhafs er aðallega gegnum
áskrift að kapalsjónvarpi. Hin stóru
útsendingarkerfi CBS og NBC sjón-
varpsstöðvanna líða nú fyrir minnk-
andi auglýsingatekjur, bæði vegna
efnahagsástandsins, en fjármagn
fyrirtækja til að auglýsa í sjónvarpi
hefur minnkað, og ásókn almenn-
ings í önnur kerfi en hin hefðbundnu
útsendingarkerfi risanna.
Sjónvarpsstöðvarnar stóru horfa
nú fram á veginn með nokkurn ugg
í brjósti, mestu auglýsingatekjurnar
hafa hingað til komið frá bandarísk-
um bílaframleiðendum sem berjast
í bökkum þessa dagana og hætt við
að auglýsingatekjur dragist verulega
saman á næstunni.
palli@dv.is
meiri ásókn
í kaPalkerfin
Bandaríkjamenn
setja ný met í sjón-
varpsáhorfi en á
sama tíma dragast
tekjur stóru sjón-
varpsstöðvanna
saman.