Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Blaðsíða 96
Föstudagur 28. nóvember 200896 Tónlist
Skakkamanage í andlitið önnur breiðskífa hljómsveit-
arinnar skakkamanage, all Over the Face, er komin út. Platan kem-
ur í kjölfar hinnar margrómuðu Lab of Love sem sveitin sendi frá
sér fyrir tveimur árum. skakkamanage fer um víðan völl á all Over
the Face og inniheldur platan bæði ljúfsárar ballöður og hávaða-
rokk – og allt þar á milli. all Over the Face fæst í öllum betri hljóm-
plötuverslunum landsins auk þess sem hana má nálgast í vefbúð
Kimi records: www.kimi.grapewire.net
umsjón: Krista haLL, krista@dv.is
Addi Introbeats hefur lengi verið viðloðandi íslenska hipphopp-menningu sem plötusnúður og sem meðlimur
hljómsveitarinnar Forgotten Lores. Á næstu dögum kemur út fyrsta sólóplata hans, Tívolí Chillout.
Forgotten Lores-meðlimurinn In-
trobeats, betur þekktur sem DJ Addi
Intro, mun gefa út sína fyrstu sóló-
plötu á næstunni en hún ber heitið
Tívolí Chillout. Platan hefur nú þegar,
áður en hún kemur út, verið tilnefnd til
Kraumsverðlaunanna.
Addi, sem einnig hefur verið þekkt-
ur sem meðlimur hljómsveitarinnar
Forgotten Lores, samdi öll lögin sjálfur.
„Ég mixaði plötuna og masteraði hana
sjálfur. Svo fékk ég í lið með mér marga
þekkta og góða félaga úr hipphopp-
heiminum,“ segir Addi.
Þeir sem koma Adda til hjálpar við
þau fjórtán lög, sem á plötunni eru,
eru meðal annars Bent úr Rottweiler
hundum, Dóri DNA úr Bæjarins bestu,
hljómsveit hans Forgotten Lores,
Stjáni Misskilinn úr Afkvæmi Guð-
anna, 7Berg, MC Rain og Opee, svo
einhverjir séu nefndir. Þess má geta að
Addi er líka einn helsti lagahöfundur
hljómsveitarinnar.
Addi Introbeats er enginn nýgræð-
ingur í tónlist heldur er hann einn af
hæfileikaríkustu plötusnúðum lands-
ins. Hann hefur gott orð á sér, bæði
sem meðlimur einnar bestu hipphopp-
hljómsveitar landsins og sem plötu-
snúður. Með Forgotten Lores hefur
hann gefið út tvær plötur og fékk seinni
platan Frá heimsenda fimm stjörnur
hjá gagnrýnendum Morgunblaðsins.
Hún var að auki tilnefnd til Íslensku
tónlistarverðlaunanna.
Addi var búsettur í Danmörku um
langt skeið en er nýlega sestur að á Ís-
landi. „Við félagarnir fimm höfum núna
síðustu sex árin búið á víð og dreif um
Evrópu, en vorum seinast í Bandaríkj-
unum. Við höfum nýlega sameinast og
hefur heyrst orðrómur um að það sé að
koma ný plata næsta vor,“ segir Addi og
bætir við: „Ef allt gengur upp.“
Platan ókomna var nýlega tilnefnd
til Kraumsverðlaunanna en það eru ný
verðlaun á vegum Tónlistarsjóðs sem
hafa það að markmiði að vekja athygli
á og verðlauna nýja og spennandi tón-
list á Íslandi. Platan er ein af þeim 48
plötum sem koma til greina að hljóta
verðlaunin í ár.
Útgáfutónleikar Adda verða til-
kynntir síðar en í kvöld, föstudags-
kvöld, má sjá hann þeyta skífum á
Prikinu.
asdisbjorg@dv.is
Introbeats Fyrsta
sólóplata kappans kemur í
búðir í byrjun desember.
Slak ð á í tívolí