Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Blaðsíða 86
Föstudagur 28. nóvember 200886 Sakamál
Læknirinn sem aLdrei var Jean-Claude romand var
hæglætismaður, vel til fara, frábær læknir og burðarás í samfélaginu. Hann
hafði unnið að verkefnum fyrir heilbrigðisstofnun sameinuðu þjóðanna
og ku hafa verið á barmi þess að finna lækningu gegn krabbameini.
Það var í það minnsta sú mynd sem eiginkona hans og fjölskylda höfðu af
honum og einnig vinir hans. en romand var ekki læknir, hann var iðjuleys-
ingi sem eyddi tíma sínum í svik og pretti og þegar upp var staðið morð.
Lesið um Jean-Claude romand, lækninn sem aldrei var, í næsta helgarblaði dv.
Insúlín gegn
öldruðum
Hjúkrunarfræðingnum Colin Norris var í nöp við aldrað fólk. Af því hlaust bara ami og honum bauð við
lyktinni af því. Hann lagði því upp í einkaherferð gegn öldruðum en fylltist of miklu sjálfstrausti sem síðar
leiddi til handtöku hans. Hann var ákærður fyrir fjögur morð og eina morðtilraun og sýndi engar tilfinning-
ar þegar hann var dæmdur til lífstíðarfangelsis.
Colin Norris er skoskur hjúkrun-
arfræðingur, en hann gerði ýmis-
legt annað en lina þjáningar þeirra
sjúklinga sem komust undir hend-
ur hans. Reyndar linaði hann þján-
ingarnar, en hann gerði það að
fullu og öllu.
Þegar réttarhöldin yfir honum
hófust 16. október, 2007 í New-
castle á Englandi neitaði hann öll-
um sakargiftum. Hann var ákærð-
ur fyrir að hafa myrt fjórar aldnar
konur og að hafa reynt að myrða
þá fimmtu. Konurnar fjórar, Dor-
is Ludlam, Bridget Bourke, Irene
Crookes og Ethel Hall höfðu all-
ar látist snemma morguns þegar
Norris var á vakt. Reyndar önduð-
ust þær ekki allar á sama sjúkra-
húsi því Norris hafði unnið víða,
en allar höfðu verið á sjúkrastofn-
unum í Leeds og safnast til feðra
sinna árið 2002. Sú sem lifði af var
Vera Wilby.
Líkaði ekki við aldraða
Þegar Norris var við nám sótti hann
fyrirlestra um sykursýki og notkun
insúlíns og hættuna sem gat fylgt
henni. Hann hataði að vinna með
öldruðu fólki og hafði orðið „afar
vonsvikinn“ þegar hann var send-
ur til vinnu á umönnunarheimili
aldraðra í Dundee í Skotlandi.
Síðar hóf hann vinnu á Sjúkra-
húsi Leeds og St. James‘s-sjúkra-
húsinu í Leeds. Grunsemdir um
athæfi Norris vöknuðu þegar hann
sagði í trúnaði við starfsfélaga sinn
að Ethel Hall myndi missa meðvit-
und á hans vakt. Fullyrðing hans
gekk þvert á yfirlýsingar annarra
hjúkrunarfræðinga sem höfðu sagt
að Ethel braggaðist vel.
Norris sagði áðurnefndum
starfsbróður sínum að heilsu Eth-
el myndi hraka þennan morgun,
„það er alltaf í morgunsárið sem
slæmir hlutir gerast, um stundar-
fjórðung yfir fimm“. Þessi spá Norr-
is gekk eftir og klukkan kortér yfir
fimm féll Ethel í dá. Hún dó þrem-
ur vikum síðar.
Insúlín verður morðvopn
Ethel Hall var ekki sykursjúk, en
hafði fengið insúlínskammt sem
var „mun stærri en það sem sykur-
sjúklingur myndi þurfa“. Saksókn-
arar voru ekki í vafa um að Ethel
hefði verið myrt, en ástæður fyr-
ir morðinu lágu ekki ljósar fyrir.
Saksóknarar ýjuðu að því að Norr-
is hafi álitið sem svo að Ethel væri
komin á leiðarenda og ákveðið að
hjálpa henni síðasta spölinn. En sá
möguleiki var einnig fyrir hendi að
Norris hafi fundist ami að öldruðu
konunni og að best væri að enda
ævi hennar.
Talið er að fyrsta fórnarlamb
Norris hafi verið Vera Wilby, níutíu
ára. Hún þjáðist af elliglöpum sem
gerðu hana að erfiðum sjúklingi. Í
maí 2002 gaf Norris henni morfín
til að slæva hana og síðar insúlín.
Vera féll í dá, en lifði af.
Í næsta mánuði gaf Norris ann-
arri konu, Doris Ludlam, morfín
sem hún þarfnaðist ekki, og síðan
insúlín. Ludlam féll í dá og lést síð-
an.
Fórnarlömbunum fjölgar
Í júlí skýrði Colin Norris frá því
að hann hefði komið að Bridget
Bourke í slæmu ástandi þar sem
hún var „í hnipri í rúminu og sýndi
enga svörun“. Bourke komst aldrei
til meðvitundar og dó. Þremur
mánuðum síðar fylgdi Irene Crook-
es í kjölfar Bridget Bourke.
Allar áttu konurnar það sam-
eiginlegt að heilsu þeirra hrakaði
snemma morguns þegar Norr-
is hafði verið á vakt og allar höfðu
fengið banvænan skammt af ins-
úlíni.
Að mati saksóknara hafði Col-
in Norris fyllst sjálfsöryggi eftir að
úrskurðað var að dauða þriggja
kvennanna hefði borið að með
eðlilegum hætti. Norris vissi ekki
að blóðsýni úr Ethel Hall hafði ver-
ið sent í rannsókn og niðurstöð-
urnar úr henni leiddu að lokum til
handtöku Norris.
Við réttarhöldin kom í ljós að við
rannsókn málsins hefði lögreglan
skoðað sjötíu dauðsföll sérstaklega
og komist að þeirri niðurstöðu að
átján þeirra væru grunsamleg. Síð-
ar fækkaði þeim niður í sjö, en þrjú
þeirra voru ekki rannsökuð frek-
ar því líkamsleifarnar höfðu verið
brenndar.
En skyndilegt og óútskýranlegt
bakslag hjá Ethel Hall varð til þess
að blóðsýni úr henni var rann-
sakað, hún hafði fengið tólffaldan
skammt af insúlíni.
Laus við samúð
Vitnisburður við réttarhöldin
renndi stoðum undir fullyrðingar
þess eðlis að Norris væri í nöp við
aldraða. Hann þoldi ekki að þurfa
að sinna hreinlætisþörfum eldri
borgara. „Lyktin, ég get ekki van-
ist lyktinni,“ trúði hann starfsfélaga
sínum fyrir.
Þegar áttatíu og sjö ára krabba-
meinssjúklingur bað Norris að
tæma þvagleggspokann sagði
Norris: „Þú ert með fætur. Gerðu
það sjálfur.“ Tíu mínútum síðar var
komið að sjúklingnum þar sem
hann lá veinandi á gólfinu.
Þegar Norris var spurður hvort
sjúklingarnir ættu ekki skilið meiri
samúð í ljósi aldurs þeirra og
ástands sagði hann: „Samúð hefur
ekkert með þetta að gera.“
Einn sjúklingur, Bridget Tarpey,
bar Norris ekki góða sögu og sagði
hann hafa verið „mjög andstyggi-
legan“ og að „honum hefði ekki
líkað við okkur gömlu konurnar“.
„Ég vona að þú þjáist mikið og
að enginn komi þér til aðstoðar,“
sagði Norris við hana. Einnig sagði
hann við aðra að hann vonaði að
hún rotnaði í helvíti.
Colin Norris fékk lífstíðardóm
3. mars 2008 og verður að afplána
þrjátíu ár hið minnsta.
umsJón: koLbeinn Þorsteinsson, kolbeinn@dv.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
K
V
I
44
05
9
11
/0
8
www.kvikmyndaskoli.is
HAND
RIT /
LEIKS
TJÓR
N
Kvikm
ynda
skóli
Íslan
ds er
skem
mtile
gur
og kr
efjan
di sk
óli se
m me
nntar
fólk
til sk
apan
di sta
rfa.
Viðu
rken
nt tv
eggja
ára n
ám.
100%
láns
hæft
hjá L
ÍN.
SKRÁ
NING
STEN
DUR Y
FIR!
Norris sagði áðurnefndum starfsbróður sínum
að heilsu Ethel myndi hraka þennan morgun,
„það er alltaf í morgunsárið sem slæmir hlutir
gerast, um stundarfjórðung yfir fimm“. Þessi spá
Norris gekk eftir og klukkan kortér yfir fimm féll
Ethel í dá. Hún dó þremur vikum síðar.
Colin Norris
Hefði jafnvel haldið áfram að
myrða gamalt fólk ef hann hefði
ekki verið handtekinn.
Irene Crookes og Ethel Hall
ethel Hall var sennilega fyrsta
fórnarlamb norris og irene
Crookes það síðasta.
Doris Ludlam og Bridget Bourke
Féllu í dá eftir að hafa fengið insúlín
sem þær þörfnuðust ekki.