Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Blaðsíða 62
62 Föstudagur 28. nóvember 2008 Jólablað
Jólavefur Júlla er orðinn tíu ára en yfir tvö hundruð þúsund
manns heimsóttu vefinn á síðasta ári. Júlíus Júlíusson hefur hald-
ið vefnum úti og glatt mörg jólahjörtu. Á vefnum má finna alls
kyns fróðleik um jólin.
tíu ára afmæli
Jólavefjar Júlla
„Það var fyrir tíu árum sem ég byrjaði
að fikta við vefsíðugerð og þá hóf ég
að safna saman ýmsum jólahefðum
á Dalvík,“ segir Dalvíkingurinn Júlí-
us Júlíusson, eða Jólajúlli, en hann
hefur haldið úti jólavef Júlla í tíu ár.
Vefurinn á afmæli í ár en gríðarleg-
an fróðleik má finna á vefsíðunni
hans, sem nýtur sívaxandi vinsælda.
Að sögn Júlla skoðuðu tvö hundr-
uð þúsund manns vefinn á þeim
sex vikum sem hann var uppi á síð-
asta ári. Á hverju ári fær Júlli bréf frá
fjölda manns vegna vefjarins, meðal
annars fékk hann bréf um daginn frá
sautján ára stúlku sem hafði fylgst ár-
lega með vefnum síðan hún var níu
ára.
Fæddist sem jólabarn
„Kannski, sko, ég hef bara alltaf verið
mikið jólabarn,“ segir Júlli aðspurður
hvenær hann hafi hrifist fyrst af jól-
unum. Hann segist ávallt hafa ver-
ið heillaður af þessari helgu hátíð
og þykir hún gríðarlega mikilvægur
þáttur í samfélaginu okkar. Hann var
orðinn nokkuð eldri þegar hann fór
að sanka að sér öllum mögulegum
upplýsingum um jólin, en vitneskj-
una sem finna má á síðunni spann-
ar allt frá fróðleik um jólakerti upp
í myndir af einstakri jólatemningu
á Dalvík. Sjálfur er Júlíus fæddur og
uppalinn á Dalvík og því fer nokk-
uð mikið fyrir fróðlegri jólavitneskju
sem snýr að bæjarfélaginu góða.
200 þúsund á jólaveFinn
„Það hafa margir haft samband við
mig, bæði skólar og aðrir sem vilja
nota það sem er á síðunni,“ segir
Júlíus um þann skemmtilega áhuga
sem hann hefur fundið fyrir á jóla-
vefnum. Hann segir aðsóknina gríð-
arlega góða en á síðasta ári mátti
telja yfir tvö hundruð þúsund flett-
ingar á síðunni samkvæmt heima-
síðunni Modernus.is sem heldur úti
nákvæmri skrá yfir aðsókn á íslenska
vefi. Sjálfur var Júlíus 32 ára þegar
hann byrjaði að halda úti jólavefnum
og síðan þá hefur hann vaxið frá ári
til árs. Og það sem meira er, síðan á
dygga jólaaðdáendur um land allt og
fjöldann allan af Íslendingum sem
búa erlendis.
sautján ára jólaaðdáandi
„Ég fékk um daginn bréf frá sautján
ára stúlku sem hafði fylgst með síð-
unni síðan hún var í fjórða bekk,“
segir Júlíus en stúlkan var þá níu ára
þegar hún byrjaði að fylgjast með
síðunni. Jólaandinn fer ekki á milli
mála á síðunni og er hún jafnvel
orðin árviss hefð hjá fjölmörgum Ís-
lendingum sem vilja koma sér í gott
jólaskap, eða bara finna fróðleik um
jólaköttinn eða jólabaksturinn. Þá
heldur Júlíus einnig úti jóladagatali
á síðunni. Ef forvitinn hyggst svindla
kemur upp gluggi þar sem manni
er sagt að vera þolinmóður, maður
megi ekki svindla.
skreytir hóFlega
Aðspurður hvort hann skreyti mikið
á jólunum segir Júlíus að hann gæti
eflaust gert meira af því.
„Konan mín er svo handlagin að
hún sér um seríurnar í gluggana, en
annars held ég að við skreytum bara
hóflega,“ segir Júlíus en hann er hrif-
inn af hvers kyns skrauti og þá helst
ljósaseríunum sem jólunum fylgja.
Á árum áður fór Júlíus um bæinn á
sparksleða og taldi öll aðventuljós
sem voru í gluggunum. Aðspurður
hversu mörg aðventuljós mátti finna
í bænum þegar hann taldi svaraði
Júlíus: „Það er nú orðið ansi langt
síðan ég taldi, en af fjögur hundruð
heimilum í bænum voru svona 250
með aðventuljós.“
engin kreppujól
Þegar Júlíus er spurður hvort jólin í
ár verði kreppujól tekur hann snögg-
lega fram í fyrir blaðamanni og seg-
ir: „Nei, aldeilis ekki, ég held að jól-
in verði öðruvísi þar sem fólk þjappi
sér frekar saman og fyrir vikið munu
þau eiga betri jól en nokkurn tímann
áður.“
Júlíus segir jólin undanfarin ár
hafi hugsanlega einkennst af hraða í
samfélaginu og fólk hafi átt það til að
gleyma sínum nánustu.
„Maður má ekki bara sækja
ömmu sína og afa rétt fyrir matinn,
það er betra að eyða tíma með þeim
heldur en að gefa konfektkassa og
fara síðan,“ segir Júlíus sem hvetur
fólk til þess að sýna samhug og hlýju
um jólin í stað þess að þeytast um
sveittur og vopnaður ofgnótt gjafa.
jólasveinar vekja kátínu
„Annars er hefðin nokkuð týpísk, við
förum í skötu á Þorláksmessu og síðan
dreifa jólasveinarnir kortum og pökk-
um á aðfangadag,“ segir Júlíus um
undirbúninginn fyrir jólin en sérstak-
ur hápunktur er þegar jólasveinarnir
koma í heimsókn og lemja húsin utan
og vekja mikla kátínu. Daginn áður
fara bæjarbúar með gjafir í grunnskól-
ann á Dalvík og síðan dreifa sveinarn-
ir þeim út um allan bæ. Sú hefð er ríf-
lega sextíu ára og vekur mikla lukku
hjá bæjarbúum Dalvíkurbyggðar. Þá
er einnig ófrávíkjanleg hefð að kíkja
á jólasveinana á svölunum í Kaupfé-
laginu í bænum en sjálfur hefur Júlíus
aðeins einu sinni misst af þeirri hefð
á ævi sinni.
Heimasíða Júlíusar er julli.is/jola-
vefur.htm ef þið viljið koma ykkur í
jólaskap.
„Ég fékk um dag-
inn bréf frá sautj-
án ára stúlku sem
hafði fylgst með síð-
unni síðan hún var í
fjórða bekk.“
Júlíus Júlíusson Jólajúlli er gríðarlegt
jólabarn, þótt hann muni ekki hvenær
hann heillaðist fyrst af jólunum. Hann
telur að hann hafi fæðst sem jólabarn.
Allt efni til innpökkunar
fyrir verslanir og fyrirtæki.
Mikið úrval af körfum
og glervösum
Samasem - Grensásvegi 22 - S: 530 3500
samasem@samasem.is
Velkomin á Jólamarkað
Skógræktarfélags Reykjavíkur
heidmork.is