Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Blaðsíða 13
Föstudagur 28. nóvember 2008 13Helgarblað
FLÓTTINN ÚR FJÁRVANA GIFT
Ekki leika sér með verðmæti
„Það á ekki að láta menn sem telja
sig hafna yfir lög leika sér með verð-
mæti sem þeir eiga ekki,“ segir Sig-
urður ómyrkur í máli og bendir á að
svokaölluð skilanefnd Giftar hefði
átt að vera löngu búinn að skila fé-
laginu og koma verðmætum í hend-
ur þeirra sem raunverulega eiga
þau. Nú er rúmt ár liðið, og pening-
urinn hefur tapast.
Aðspurður hver staða félagsins
sé nú, segir Sigurður að félagið eigi
ekkert nema skuldirnar, því eigi að
taka það til gjaldþrotaskipta. Slíkt sé
gert þegar félög eiga ekki fyrir sínum
skuldum.
Spurður hvaða afleiðingar það
hefði í för með sér, að taka félag-
ið til gjaldþrotaskipta, svarar Sig-
urður: „Þá eru þeir búnir að baka
sér skaðabótaskyldu og hugsanlega
brjóta landslög.“
Skaðabótaskylda myndast
Samkvæmt 249. grein almennra
hegningarlaga segir orðrétt: „Ef
maður, sem fengið hefur aðstöðu
til þess að gera eitthvað, sem ann-
ar maður verður bundinn við, eða
hefur fjárreiður fyrir aðra á hendi,
misnotar þessa aðstöðu sína, þá
varðar það fangelsi allt að 2 árum,
og má þyngja refsinguna, ef mjög
miklar sakir eru, allt að 6 ára fang-
elsi.“
Ekki er ljóst hvort sú grein eigi
við, ef Gift verði tekið til gjaldþrota-
skipta, og almenningur fái ekki þá
fjármuni til baka sem þeir lögðu í
sjóðinn. Hitt er þó ljóst, að skaða-
bótaskylda myndast. Ákvörðunin
um að mynda Gift er á vegum full-
trúaráðsins, sem 24 einstakling-
ar sitja í, meðal annars formaður
Framsóknarflokksins, Valgerður
Sverrisdóttir.
Formaður Framsóknar
í kuldanum
„Ég get bara ekkert sagt um það,“
svarar Valgerður Sverrisdóttir spurð
út í alvarlega stöðu Giftar og þýð-
ingu þess fyrir hana. Hún stað-
festi hins vegar við blaðmann að
hún hefði verið stödd á fundi full-
trúaráðs Samvinnutrygginga þegar
ákvörðunin um Gift var tekin í júní á
síðasta ári. Hún segir að enginn hafi
kallað til fundar vegna ástandsins
núna, síðasti fundur hafi verið hald-
inn í upphafi árs. Þá komst hún ekki
því hún var stödd erlendis á sama
tíma.
Þegar haft var samband við fram-
kvæmdastjóra Giftar, Benedikt Sig-
urðsson, sagðist hann ekki gefa nein
svör, þau yrði hægt að nálgast á vef
Samvinnutrygginga í dag, föstudag.
Hann vildi ekki svara spurningum
um fjárhagsstöðu Giftar.
Stjórnarmenn flýja
Athygli vekur að verulega hefur
kvarnast úr stjórn Giftar. Í ljós kom
að Þórólfur Gíslason, framsóknar-
maður og kaupfélagsstjóri, sagði sig
úr stjórn Giftar í mars síðastliðnum
en þá var hann stjórnarformaður.
Við honum tók Sigurbjörn Rún-
ar Rafnsson, sem hætti einnig sem
stjórnarformaður nú fyrir stuttu.
Þegar blaðamaður náði í Helga S.
Guðmundsson sagðist hann hafa
hætt í stjórn félagsins síðastliðið
vor. Áður hafði hann verið vara-
maður, en datt inn sem stjórnar-
maður eftir að annar stjórnarmað-
ur hætti. Þá er Jafet Ólafsson nýr í
stjórninni. Ekki náðist í stjórnarfor-
mennina tvo.
Framsóknarmenn flýja
Miðað við þá stöðu sem upp er
komin virðast þeir sem tengdust
Framsóknarflokknum vera búnir að
yfirgefa Gift. Þá er átt við þá Helga
S. Guðmundssonar, Þórólf Gíslason
og Finn Ingólfsson, sem sjaldan virt-
ist vera langt undan. Þess má geta
að viðskipti á milli Finns og Sam-
vinnutrygginga hafa verið náin. Til
að mynda keypti Finnur árið 2006
fjórðungshlut í Langflugi ehf., sem
var félag í eigu Samvinnutrygginga
og eignarhaldsfélags Finns, árið
2006. Eina eign þess var 32 prósenta
hlutur í Icelandair Group Holding
hf. Í kjölfarið varð Finnur stjórnar-
formaður Langflugs, sem og Ice-
landair.
Ári síðar gerði Finnur svokallað-
an makaskiptasamning við Lang-
flug um hlutabréf sín í Icelandair. Þá
hagnaðist hann um rétt tæpa fimm
milljarða. Og þess má geta að þá var
Langflug í eigu Giftar.
Fulltrúaráðsfundur boðaður
Ljóst er að málefni Giftar eru alvar-
leg en staða fyrirtækisins er ekki
ljós. Morgunblaðið fjallar um fjár-
festingafyrirtækið í blaði sínu í gær
þar sem fullyrt er að skuldir Giftar
séu þrjátíu milljarðar umfram virði
eigna. Þá segir að eignastaða félags-
ins hafi verið sterk þegar Samvinnu-
tryggingar samþykktu stofnun Giftar,
en þá átti félagið eignir upp á sextíu
milljarða og þrjátíu milljarða eiginfé.
Fyrrverandi stjórnarformaður, Sig-
urbjörn Rúnar Rafnsson, sem er að-
stoðarkaupfélagsstjóri Kaupfélags
Skagafjarðar, staðfesti í viðtali við
Morgunblaðið að Gift ætti í veruleg-
um fjárhagsvandræðum.
Samkvæmt heimildum DV verð-
ur fundur fulltrúaráðs Samvinnu-
trygginga boðaður í dag og vonir
standa til að hann verði haldinn um
miðjan desember. Þá verða gögn
einnig send á fulltrúa ráðsins um
málefni Giftar.
Fálátur Finnur
Lítið hefur farið fyrir Finni undan-
farna mánuði en á síðasta ári festi
hann kaup á Frumherja, sem hann
keypti af Óskari Eyjólfssyni. Þá var
Jafet S. Ólafsson settur sem stjórn-
arformaður í félaginu. Hann situr
einnig í stjórn Giftar. Gera má ráð
fyrir því að Finnur hafi tapað veru-
legum verðmætum á falli bank-
anna en hann á eignarhaldsfélagið
FS7. Síðast heyrðist af honum úti á
landi en hann mun vera hestamað-
ur í dag. Þá má einnig geta þess að
Helgi S. Guðmundsson, náinn sam-
verkamaður Finns, er alveg hættur
störfum.
Ekki náðist í Kristin Hallgríms-
son, formann skilanefndar Giftar.
Finnur Ingólfsson situr í
fulltrúaráði samvinnutrygginga
og hefur stundað nokkuð náin
viðskipti með gift.