Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Blaðsíða 8
Föstudagur 28. nóvember 20088 Fréttir
Stendur við orð Sín
og talar frá hjartanu
„Ég tek þessa gagnrýni ekki alvar-
lega,“ segir Katrín Oddsdóttir, laga-
nemi við Háskólann í Reykjavík,
sem síðasta laugardag flutti mikla
þrumuræðu í mótmælunum við
Austurvöll. Ræðan hefur vakið mikla
athygli og einnig sterk viðbrögð. Þar
á meðal frá samnemendum Katrín-
ar við HR sem krefjast þess að hún
hætti að titla sig sem laganema.
Ummæli sem dæma sig sjálf
Samnemendur Katrínar gagnrýndu
málflutning hennar og túlkun á
landslögunum harðlega í grein sem
birtist í Morgunblaðinu á fimmtudag.
Er þess krafist að HR fjarlægi ræð-
una af vef sínum þar sem orð henn-
ar ættu sér litla stoð í þeirri lögfræði
sem kennd er við skólann. En Katrín
stendur við það sem hún sagði.
„Lögfræðin er nú einu sinni
þannig að hana má túlka á ýmsa
vegu. Hins vegar þykir mér ekki í lagi
það sem sagt er í þessari grein í Morg-
unblaðinu að ég eigi að hætta að kalla
mig laganema. Það eru ummæli sem
dæma sig sjálf. Ég vil ekki fara niður
á sama plan og ég fagna því bara að
fólk tjái sig. Því það er nú einu sinni
þannig að hér ríkir tjáningarfrelsi.
Þetta fólk ætti að athuga hvort það sé
á hálum ís,“ segir Katrín.
Ritskoðun aldrei af hinu góða
Stofnaður hefur verið hópur á vef-
síðunni Facebook þar sem háskól-
inn er hvattur til að fjarlægja færslu
sína um ræðu Katrínar. „Það er ekki
alveg í lagi finnst mér. Að hvetja Há-
skóla Reykjavíkur til að taka út þessa
frétt sem er undir mjög hlutlausum
lið sem heitir HR-ingar í fjölmiðlum.
Ritskoðun er aldrei af hinu góða,“
segir Katrín um síðuna. Hún bendir
á að skólinn hefði þegar gefið frá sér
yfirlýsingu þar sem sá möguleiki er
útilokaður að fréttin verði fjarlægð.
„Þá hefur önnur Facebook-grúppa
verið stofnuð gegn hinni og er sam-
kvæmt mínum upplýsingum þegar
orðin fjölmennari en hin. Þannig
að þessir aðilar mæla nú ekki fyrir
munn allra,“ segir Katrín sem segist
finna fyrir miklum stuðningi bæði
frá starfsmönnum og nemendum
skólans sem og fólki úi í bæ.
Talaði frá hjartanu
„Það má alveg fara að svara þessu
og deila um þessa lögfræði en ég
hef ekki tíma í það. Ég er að fara í
próf. Það sem ég sagði í ræðunni
kom algjörlega frá hjartanu og mér
finnst vera búið að sniðganga okk-
ur í landinu, eins og enginn væri
að hlusta. Og það þyrfti að vekja þá
sem stjórna hér í landinu og minna
á að það er fólkið sem stjórnar hér
í landinu.“
Í greininni í Morgunblaðinu
saka samnemendur Katrínar hana
um að hvetja til ofbeldis og óeirða,
nokkurs sem gæti haft alvarlegar
afleiðingar ef til kæmi. „Ég var ekki
að hvetja til neins ofbeldis, né held-
ur að meina að hér ætti að fremja
valdarán, það er oftúlkun. Ég held
að sú oftúlkun tákni bara hræðslu,
hræðslu þeirra sem hafa einhver
völd sem þeir vilja ekki missa.“
Lögin eru fyrir fólkið
Hún segir að stundum verði fólk
bara að tala út frá hjartanu. „Og
það er gallinn við lögfræðinga
stundum. Það má ekki gleyma að
lögin eru sett fyrir fólkið í landinu
og þau eiga að vera sanngjörn. Ef
þau eru það ekki má vel gagnrýna
þau.“
SigURðUR MikaeL jónSSon
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
katrín oddsdóttir, laganemi við Háskólann í Reykjavík, flutti á dögunum þrumuræðu við mótmælin á Aust-
urvelli. Ræðan hefur vakið athygli og hörð viðbrögð margra samnemenda hennar. Þess er krafist að ræðan
verði fjarlægð af vef skólans. Katrín stendur fast á sínu og segir ummæli samnemendanna dæma sig sjálf.
Talar frá hjartanu Katrín Oddsdóttir lætur
gagnrýnina sem vind um eyru þjóta og
stendur við orð sín. Hún segir mikilvægt að
tala frá hjartanu. Mynd oddUR Ben