Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Blaðsíða 14
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 200814 Helgarblað
„Þetta er í alla staði algjörlega út í
hött, alveg sama hvernig þú lítur á
þetta mál,“ segir Lúðvík Lúðvíksson,
meðlimur í VR, sem er afar ósáttur
við að Gunnar Páll Pálsson, formað-
ur VR, hafi boðið trúnaðarmönnum
í jólahlaðborð á miðvikudagskvöld.
Þar gafst trúnaðarmönnum tækifæri
til að skrifa undir stuðningsyfirlýs-
ingu við formanninn. Til að formað-
ur megi bjóða sig fram þarf hann að
fá fimmtíu stuðningsyfirlýsingar frá
flokksmönnum og finnst Lúðvíki að
verið sé að mismuna fólki sem ætli
að bjóða sig fram.
Þekkir ekki svona kosningu
„Það er náttúrlega fátæklegt af
manninum að haga sér svona í sið-
menntuðu samfélagi sem við teljum
okkur búa í. Að öllu jöfnu fer kosn-
ing þannig fram að kjörkassi er við-
hafður og menn segja já eða nei svo
enginn sjái. Svo er líka til handaupp-
lyfting en ég hef aldrei heyrt um blað
sem menn skrifa nafn og kennitölu
á, það er einkennilegt og jaðrar við
þvingunaráráttu,“ segir Lúðvík og
gagnrýnir Gunnar Pál harðlega. „Að
Gunnar Páll skuli nota fé félagsins og
í rauninni glepja menn með það fyrir
augum að fá þá til jólahlaðborðs og
ýta þessu að mönnum við borðhald-
ið, það er náttúrlega afar ósmekklegt
en þetta lýsir því náttúrlega hvernig
hann hefur haldið á málum og mér
þykir það miður fyrir félagsmenn.“
Listi gekk manna á milli
Lúðvík stóð fyrir mótmælum fyr-
ir utan VR fyrir fáeinum vikum og
krafðist þess að Gunnar Páll segði af
sér og hann er enn á þeirri skoðun að
hann bjóði sig ekki fram í næstkom-
andi kosningum. „Það er nú
þannig að það verður kosið
um formann og stjórn og
ég held náttúrulega að ef
hann hefur einhvern snef-
il af siðferðiskennd ætti
hann ekki að bjóða sig
fram. Trúnaðarmaður er
bilið milli atvinnu-
rekanda og hins
almenna laun-
þega og mér
þykir það afar
einkennilegt
ef trúnaðar-
maðurinn er
orðinn bak-
land for-
mannsins,
þar held ég
að menn
hafi farið
á sveig við
merkingu þess orðs sem trúnaðar-
maður stendur fyrir.“ Trúnaðarmað-
ur sem var á staðnum segir að mörg-
um hafi brugðið þegar listinn gekk
manna á milli og hafi sumum fundist
þeir tilneyddir til að skrifa undir.
Engin pressa að skrifa sig á
listann
Gunnar Páll Pálsson segir að eng-
in pressa hafi verið á fólk að skrifa
undir listann. „Við vorum löngu búin
að ákveða að gefa trúnaðarráði og
trúnaðarmönnum gjöf og ákváðum
að hafa jólahlaðborð í ár. Eftir fé-
lagsfundinn var ákveðið að boða til
trúnaðarráðsfundar og við ákváð-
Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, bauð trúnaðarmönnum og trúnaðarráði í jólahlaðborð á miðvikudags-
kvöld og bauð fólki að skrifa undir stuðningsyfirlýsingu. Lúðvík Lúðvíksson, meðlimur í VR, gagnrýnir Gunn-
ar Pál harðlega fyrir undirskriftarlistann og segir að hann eigi ekki að bjóða sig fram í næstu kosningum.
ATKVÆÐASÖFNUN Í JÓLAHLAÐBORÐI
„Ég harma það ef ein-
hver hefur talið þetta
vera pressu á sig.“
Ósáttur
Lúðvík Lúðvíksson hefur gagnrýnt
formann VR harðlega í mótmælum.
VR
Kosið verður um nýja stjórn
og formann á næsta ári
Boði Logason
blaðamaður skrifar bodi@dv.is
gunnar Páll Pálsson
Leit svo á að ef trúnaðarmenn
styddu hann ekki myndi hann
ekki bjóða sig fram.