Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Blaðsíða 48
48 Föstudagur 28. nóvember 2008 Jólablað
Jólaglögg er fyrir marga ómissandi á aðventunni og lítið mál að
búa það til sjálfur. Þannig skapast sannarleg jólastemning og ang-
an af kanil og negulnöglum um alla íbúð lífgar upp á skammdegið
í kuldanum.
Jólaglögg hefur löngum tilheyrt að-
ventunni hér á landi enda fátt nota-
legra en að sitja í góðra vina hópi,
dreypa á heitu og krydduðu glögginu
með piparkökur í hönd.
Uppruna glöggsins má rekja til
drykkjar sem Þjóðverjar kalla glüh-
wein. Helsti munurinn er að þýska
afbrigðið er bragðbætt með vanillu
og jafnvel nelliku á meðan Íslend-
ingar krydda glöggið helst með kanil
og negul.
Fáir hafa þó haldið frægð glöggs-
ins jafn vel á lofti og Svíar. Gustava
Björklund gaf úr matreiðslubók árið
1880 þar sem hún kynnti lesendur
fyrir eigin uppskrift af glöggi. Hún
notaði eina flösku af rauðvíni, helm-
ingi minna magn af vatni, þrjá mulda
negulnagla, nokkrar kanilstangir og
sykur. Þetta sauð hún allt saman í dá-
góðan tíma áður en gestum var boð-
ið upp á veigarnar.
Glöggið innihélt mun minna
áfengismagn hér áður fyrr. Fljótlega
fundu menn út að brenndur sykur
bætti bragðið. Því var byrjað á því að
leggja sykurinn í mót ofan á drykkn-
um, kveikja í honum og láta þannig
áfengið brenna sykurinn áður en
honum var blandað saman við. Til
að geta kveikt í verður áfengismagn-
ið hins vegar að vera minnst 20 pró-
sent. Við íkveikjuna gufar hins vegar
talsvert af áfenginu upp. Hætt var að
brenna sykurinn á þennan hátt fyrir
löngu en þá hafði þegar skapast sú
hefð að blanda sterku áfengi, eins og
vodka, í drykkinn og hefur hún hald-
ist til dagsins í dag.
Til að auka á bragðið kjósa marg-
ir að nota annars konar áfengi með
rauðvíninu sem er uppistaðan, eins
og púrtvín, koníak eða líkjöra. Víða
erlendis tíðkast að drekka glögg úr
leirbollum en hér á landi er það yfir-
leitt drukkið úr glerglösum.
Fólk er hvatt til að prófa sig áfram
í uppskriftum af glöggi og finna
þannig réttu blönduna fyrir sig.
Nú þegar desember er við það
að hefjast má búast við þó nokkr-
um starfsmannateitum þar sem boð-
ið er upp á jólaglögg og piparkökur í
skammdeginu. Kaffihús bjóða einn-
ig upp á glögg í desembermánuði
en þeim hefur farið sífellt fækkandi
undanfarin ár og virðist jólabjórinn
hafa sótt í sig veðrið á móti. Heitt
og ilmandi jólaglögg gefur þó tón-
inn fyrir sanna jólastemningu og því
um að gera að búa það einfaldlega til
sjálfur.
erla@dv.is
Ilmandi
jólaglögg
KRYDDLEGIN
n 1 l rauðvín
n 15 cl vodki
n 10 kanilstangir
n 5 negulnaglar
n 2 tsk. kardimommur
n 220 gr sykur
Látið malla, ekki sjóða, við
meðalhita í um klukku-
stund. Kælið í hálftíma og
berið fram þegar búið er
að sía kryddið frá.
NIÐURNEGLD
n 1 rauðvínsflaska
n 1 appelsína
n 15 - 20 negulnaglar
n Hálf vanillustöng
n 1 dl sykur
Stingið negulnöglunum í
appelsínuna og setjið
hana í pott með
rauðvíninu. Bætið við
vanillustöng og sykri.
Látið malla, ekki sjóða, í
minnst hálftíma. Leyfið
glögginu að kólna aðeins,
fjarlægið vanillustöng og
appelsínu, og berið fram.
ÖKUVÆN
n 50 g möndlur
n 1 l vatn
n 2 dl Ribena-saft
n 2 dl rúsínur
n 1 kanelstöng
n 1 appelsína
n 1 sítróna
Skerið hýðislausar
möndlurnar langsum,
setjið rúsínurnar, 2 dl af
vatni og kanelstöngina í
pott, látið suðuna koma
upp. Slökkvið undir og
hrærið í pottinum. Setjið
því næst lokið á pottinn
og látið standa í 10 mín.
Bætið því næst Ribena-
þykkninu og afganginum
af vatninu út í. Látið
suðuna koma upp. Setjið
safann úr appelsínunni og
sítrónunni út í.
Krakkar geta tekið þátt í
að búa þetta glögg til og
oftar en ekki þykir þeim
það mikill nammidrykkur.
Ilmurinn úr eldhúsinu...
Þegar jólaglöggið er soðið fer ilmurinn
af kanil og negul um allt húsið sem þá
ilmar sannarlega af jólum.
Mynd: Photos.coM
Skólavörðustígur 18
Veljum íslenskt
STEBBI RUN
Óskar Þór Karlsson
HÓLAR
Annasamir dagar og ögu
rstundir
Æviminningar Stefáns R
unólfssonar frá
Vestmannaeyjum
Hér eru sögurnar óteljandi.
Sagt er frá athafnamönnum
og farandverkafólki,
knattspyrnuköppum
og stjórnmálamönnum
og síðast en ekki síst
baráttunni um framtíð
byggðar í Vestmannaeyjum.
holar@simnet.is
STEBBI RUN
FÁNAPRENTUN
AFGREIÐUM FÁNA SAMDÆGURS
EIGUM ÍSLENSKA FÁNAN Á LAGER!
SILKIPRENT
HAFNAFIRÐI
S: 544 2025
Frábær jólagjöf
fyrir verðandi móður
Mjög þægilegir meðgöngubolir.