Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Blaðsíða 10
Sykurmagn í
100 grömmum
n Lucky Charms 40,7
n Cocoa Puffs 40,5
n Guldkorn 35,0
n Coco Pops 34,0
n Honey Nut Cherrios 33,9
n Weetos 23,5
n Hrísmjólk m. kanilsósu 23,3
n Special K 17,0
n All-Bran 17,0
n Engjaþykkni jarðarb. 13,9
n Weetaflakes 12,5
n Skyr.is m. perum 11,6
n Léttjógúrt m. vanillu 10,7
n KEA skyr m. bananasp. 10,2
n Rice Krispies 10,0
n Húsavíkur jógúrt bláb. 9,6
n SMS smáskyr 8,4
n Þykkmjólk jarðarb. 8,2
n Corn Flakes 8,0
n Skólajógúrt m. súkk. & jarð.b. 7,5
n Óska jógúrt blönd.áv. 7,4
n Skyr.is jarðarb. 6,8
n MS skyr bláb. 6,2
n KS súrmjólk m. karam. 6
n Krakkaskyr banana 4,5
n Cherrios 4,5
n Weetabix 4,4
n Solgryn 1,0
n Krakkaskyr hreint 0
n Dagmál m. hindb. og van. 0
n Kea skyr hrært 0
n Súrmjólk 0
n AB mjólk hrein 0
Sykurinnihald í mjólkurvörum miðast við
upplýsingar frá Mjólkursamsölunni.
Sykurinnihald í morgunkorni miðast við
upplýsingar úr Neytendablaðinu.
FöStuDAGuR 28. NÓvEMBER 200810 Helgarblað
Setjir þú pakka af Lucky Charms
eða Cocoa Puffs morgunkorni á
morgunverðarborð barna þinna
ertu að bjóða þeim sætasta morg-
unverð sem völ er á. Sykurinnihald
í þeim er yfir 40 prósent að því er
Neytendablaðið greinir frá.
Þar segir að fjölþjóðleg rann-
sókn sýni að flestar gerðir af morg-
unkorni, sem ætlaðar eru börn-
um, innihaldi alltof mikinn sykur,
oft meira en er í kexi eða kökum.
Á meðal þess morgunkorns sem
mestan sykur inniheldur er einn-
ig Guldkorn, Coco Pops og Honey
Nut Cheerios en þessar tegundir
innihalda 34 til 35 grömm af sykri í
hverjum 100 grömmum.
Sykurmagn ekki gefið upp
Sú mjólkurvara sem efst skip-
ar sér á lista vegna sykurinnihalds
er hrísmjólk. Samkvæmt upplýs-
ingum af heimasíðu Mjólkursam-
sölunnar reiknast sykurinnihald-
ið í hrísmjólk með kanilsósu 23,3
grömm. Á heimasíðunni er ekki
hægt að sjá hversu mikinn syk-
ur mjólkurafurðirnar fyrirtækis-
ins innihalda. Í samtali við Björn
Gunnarsson, vöruþróunarstjóra
MS, er þumalputtareglan sú að syk-
urinnihald í mjólkurvörum megi
finna út með því að draga 4 grömm
(eða 4 prósent) af 100 grömmum
af uppgefnu magni af kolvetnum í
vörunni. Kolvetni í 100 grömmum
af hrísmjólk eru 27,3 grömm. Nátt-
úrulegur mjólkursykur er í öllum
mjólkurafurðum um 4 prósent. Ef
hann er dreginn frá kolvetnamagn-
inu fæst sykurinnihaldið út, 23,3
grömm. Það jafngildir tæplega 12
venjulegum sykurmolum, sem hver
er 2 grömm á þyngd.
Hreint Krakkaskyr er sykur-
laust
Fleiri mjólkurafurðir innihalda
mikið magn sykurs. Nægir þar að
nefna engjaþykkni en í 100 grömm-
um eru 13,9 grömm af sykri. Í skyr.is
með perum eru um 11,6 grömm af
sykri í hverjum 100 grömmum og í
léttjógúrti með vanillu er sykur 10,7
prósent.
Þær mjólkurvörur sem lítinn eða
engan sykur innihalda eru súrmjólk,
hrein ab-mjólk, hreint Krakkaskyr
og dagmál með hindberja og van-
illubragði svo dæmi séu tekin. Af
sykurlitlu morgunkorni má nefna
Cheerios og Weetabix en hvor teg-
und um sig inniheldur á milli 4 og
5 prósent af sykri. Kornflex inni-
heldur 8 prósent sykur en Solgryn
haframjöl aðeins 1 gramm í hverj-
um 100.
Einstaklingsbundnar þarfir
Ólafur Gunnar Sæmundsson
er næringarfræðingur og meðal
annars höfundur bókarinnar Lífs-
þróttur, næringarfræði fróðleiks-
fúsra. Hann segir að orkuþörf fólks
sé afar mismunandi og ráðist af því
hvað fólk aðhafist yfir daginn. Þeir
sem séu of þungir og hreyfi sig lít-
ið eigi vitaskuld að neyta sykur- og
fitusnauðra matvæla. „En fyrir ung-
lingspilt í mikilli hreyfingu eða
átökum er ekkert óeðlilegt við
það að hann neyti orku-
ríkra, jafnvel sykurmik-
illa afurða. Það sem
skiptir máli er
hvernig dagur-
inn kemur út,
ekki endi-
lega ein-
stök mál-
tíð. Það
getur vel
verið að
sá sem
borð-
ar feitt
bjúga í
hádegis-
mat hafi
borðað
mjög skyn-
samlega þeg-
ar dagurinn
er á enda runn-
inn,“ segir Ólafur og
bendir á að orka fáist
meðal annars úr sykri
og fitu.
Getur ýtt undir
átröskun
Ólafur segir að Mjólk-
ursamsalan hafi verið
dugleg að framleiða og
koma með á markað syk-
ursnauðar mjólkurafurð-
ir. Hann varar við því að
matvæli séu ýmist flokkuð
sem holl eða óholl. „Um-
ræðan hefur að miklu leyti
snúist um megrun. Ég hef
lengi verið á þeirri skoðun að sí-
fellt tal um hollan eða óhollan mat
ýti undir átröskunartilhneigingu,
bæði hjá börnum og unglingum.
Börnum sem fylgja þessum skila-
boðum hættir til að borða of lítið,“
segir hann. Ólafur á þrjú börn sjálf-
ur. Hann segir að honum detti ekki
til hugar að eltast við orkusnauð-
ar afurðir handa börnum sínum.
„En fólk sem á í vandræðum með
holdafarið á að sjálfsögðu að gæta
hófs í orkumiklum matvælum,“ seg-
ir hann.
Jafn mikill sykur og í nammi
Sumir hafa haldið því fram að
neysla á sykurríku morgunkorni
jafngildi því að borða hreinlega
nammi. Ólafur segir aðspurður að
mjög sykruð morgunkorn og mjólk-
urvörur geti flokkast undir sælgæti.
Hann bendir þó á að meira að segja
í Cocoa Puffs sé að finna mikilvæg
prótein og vítamín. Og þó að engja-
þykkni innihaldi mikinn sykur þá
sé afurðin sneisafull af
kalki og próteinum.
„Öll fæða gefur
eitthvað sem
við þurf-
um á
að
halda. Smjör er ekki flokkað sem
hollustuvara en gefur okkur þó orku
í formi fitu og bæði a og b vítamín.
Ólafur telur að mataræði ung-
menna sé mun betra nú en það
var fyrir tíu, tuttugu og jafnvel
þrjátíu árum. „Þegar ég var ungur
var manni gefið mjög sykrað skyr.
Þegar maður þurfi nesti með sér
þá innihélt það jafnvel djúpsteikt-
ar kótelettur. Neysla grænmetis og
ávaxta í dag er mun meiri en áður
hefur verið, að því er ég best þekki,“
segir hann.
Sykurmagni leynt?
Sykurmagn mjólkurafurða er
sjaldnast gefið upp á umbúðun-
um. Björn segir ástæðuna þá að lög
kveði ekki á um slíkt. Ef þær upplýs-
ingar væru gefnar þyrfti einnig að
birta nánari sundurliðun á næring-
arinnihaldi en sjaldnast væri pláss
fyrir slíkt á litlum umbúðum. Syk-
urmagn er heldur ekki gefið upp á
heimasíðu MS, nema í einstökum
tilvikum. Björn segir að þetta hafi
verið rætt í fyrirtækinu en að fram-
taksleysi sé ástæða þess að því hafi
ekki verið hrint í framkvæmd. Ól-
afur segir aðspurður að hann vilji
sjá bragarbót á þessu. Upplýsingar
um sykurmagn ættu að hans viti að
liggja fyrir.
Sykurmagn í morgunkorni og einstaka mjólkurafurð getur jafngilt sykurmagni í kexi og jafnvel sælgæti.
DV tók saman hve mikinn sykur morgunkorn og mjólkurafurðir innihalda, en vörurnar eru algengar á
morgunverðarborðum landsmanna. Næringarfræðingur varar við að matvæli séu flokkuð sem holl og
óholl, meira að segja Cocoa Puffs innihaldi prótein og vítamín.
Nammi í morguNmat?
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
„Ég hef lengi verið á
þeirri skoðun að
sífellt tal um hollan
eða óhollan mat
ýti undir átröskunar-
tilhneigingu.“
2045
3
8½
4
10½ 7
Sykurmagn í molum talið við hverja vöru má
sjá hversu hversu mikill sykur er í 100 grömmum.
Sykurmolar vega um 2 grömm og er sykurinni-
haldið námundað að heilum og hálfum mola.