Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Blaðsíða 25
Föstudagur 28. nóvember 2008 25Fókus
Hvað er að
GERAST?
föstudagur
n Stuð á Dillon
blúsrokkhljómsveitin Johnny and the rest
ætlar að halda tónleika á dillon. Þessir
tónleikar eru þeir fyrstu eftir útgáfutón-
leika sveitarinnar fyrir tveimur vikum en þá
leit fyrsta breiðskífa hennar dagsins ljós.
tónleikarnir hefjast klukkan 21 og er frítt
inn.
n Trúbador á Rósenberg
trúbadortónleikar verða á rósenberg þar
sem bandið hans Hlyns ben mun stíga á
svið. Hlynur ætlar að flytja lög af
nýútkominni plötu sem heitir telling tales.
tónleikarnir hefjast klukkan 21 og kostar
500 krónur inn.
n Bermuda á Broadway
Hljómsveitin bermuda verður með
stanslaust stuð og gleði að lokinni
madonnu-sýningunni á broadway.
bermuda hefur ekki verið þekkt fyrir neitt
annað en að skemmta sínum gestum vel
og má búast við fjöri. Húsið er opið öllum
og mun gleðin standa til klukkan 3.
n Jeff Who á NASA
Jeff Who ætlar að trylla lýðinn á nasa á
föstudagskvöld. Hljómsveitin var að enda
við að gefa út nýja plötu og ætlar að halda
útgáfutónleika í tilefni af því. tónleikarnir
hefjast klukkan 23 og kostar 500 krónur
inn. aldurstakmark er 20 ár.
n Stuð á Hressó
Það verður mikið um dýrðir á Hressó en í
kvöld mun dalton spila fyrir dansi og
klukkan 3 mun plötusnúðurinn dJ stjáni
taka við. dalton, sem hefur getið sér gott
orð fyrir góða skemmtun, mun hefja
herlegheitin klukkan 22 og er ókeypis inn.
laugardagur
n Vicky-útgáfupartí á Prikinu
sveitin vikcy áður vicky Pollard mun efna
til utágáfuteiti á Prikinu í kvöld. veislan
hefst klukkan 21 og spilar sveiting frá
klukkan 22. dj danni deluxxx tekur síðan
við á miðnætti.
n Sálin á NASA
vinsælasta sveit Íslands, sálin hans Jóns
míns, fagnar 20 ára starfsafmæli á þessu ári
og í tilefni af því var gefinn út veglegur
safndiskur. sveitin efnir til útgáfutónleika í
kvöld og kostar miðinn 2.000 krónur. Húsið
opnað klukkan 23.
n Árni Sveins á Kaffibarnum
afmælisgleði vinsælasta bars Íslands
heldur áfram með miklum látum. Í kvöld er
það enginn annar en dj Árni sveins sem
hressir, bætir og kætir. Árni hefur verið
fastur liður á Kaffibarnum síðastliðin ár og
svíkur væntanlega engan. Fjörið hefst á
miðnætti.
n Sixties á Kringlukránni
Það verður svo sannarlega dansað á
Kringlukránni í kvöld er ballsveitin sixties
stígur á svið. um að gera að skella sér í
þægilegu skóna því nú verður sko dansað.
Fjörið hefst klukkan 23.
n Mr. Gorilla Funk á Vegamótum
mr gorilla Funk er mættur á svæðið og
nú verður sko tekið á því. Á miðnætti tekur
staðurinn stakkaskiptum og breyttist í
trylltan skemmtistað. munið bara engin
apalæti. ballið byrjar á miðnætti.
n Casanova á Cultura
dj Casanova þeytir skífunum á Cultura í
kvöld. Þetta litla aðlþjóðlega kaffihús hefur
verið breytt í heljarinnar dans-elektróstað
um helgar. ef þú vilt dansa til að gleyma er
um að gera að mæta á Cultura í kvöld.
FAllouT 3
Tölvuleikur
Hér er eitthvað
massíft á ferðinni,
sublime-upplifun.
m
æ
li
r
m
eð
...
GilliGill TóNleiKAR
í Salnum á sunnudögum
Frábær
fjölskyldu-
skemmtun
sem óhætt er
að mæla með.
HVeRT oRð eR ATViK
eftir Þorstein frá Hamri
Þorsteinn frá Hamri
er einfaldlega í allra,
allra fremstu röð
íslenskra ljóðskálda,
lífs og liðinna.
AuðNiN
eftir Yrsu Sigurðardóttur
Þóra fer að verða
jafnómissandi gestur
í skammdeginu og
sjálfur erlendur.
ir í næstu bók en hann fer í Af mér er
það helst að frétta...
Aðspurður viðurkennir Gunnar
fúslega að sér þyki vænt um Marg-
eir eftir öll þessi ár. „Mér þykir að-
allega vænt um hann vegna þess að
fólk er alltaf að spyrja mig um hann.
Sjálfur þekki ég hann ekki svo mik-
ið. Þetta er einhver sem ég rakst á
fyrir löngu,“ segir Gunnar um Marg-
eir sem álpaðist í lögguna með hálf-
um huga löngu áður en Erlendur
Sveinsson fór að láta til sín taka á
þeim bænum.
Margeir var býsna ólíkleg
manngerð til þess að leggja fyr-
ir sig löggæslu en var þó úrræða-
góður og yfirvegaður. „Hann var
svona kennaratýpa minnir mig
og frekar óreyndur sem er alveg
fatalt fyrir lögreglumenn. Lög-
reglumenn eru eins og frétta-
menn og þurfa að vita allt og hafa
augun hjá sér.“
Þegar Gunnar er spurður hvort
honum finnist hann hafa verið of
snemma á ferðinni með bækur
sínar um Margeir og hvort hann
telji að Arnaldur og fleiri hafi
stolið frá honum glæpnum segir
hann það af og frá. „Nei, nei. Ég
pæli ekkert í því. Það er svo margt
eftir ógert. Þetta er hinn óendan-
legi akur og rétt eins og í lífinu
sjálfu er hægt að halda endalaust
áfram.“
Mynd af ástandinu
Gunnar lauk kennaraprófi frá KÍ árið
1968 og í ljósi þess að í Af mér er það
helst að frétta... segir af hremming-
um fréttamanns er kennaratenging
höfundarins við Margeir ef til vill ekki
alveg úr lausu lofti gripin. Gunnar
vill þó ekki meina að Af mér er þetta
helst að frétta... sé nein naflaskoðun
og hann hafi nú ekki beinlínis verið
að leita að morðingjanum innra með
sjálfum sér.
„Kannski má segja að ég sé samt
að velta fyrir mér hvernig maður
myndi bregðast við ef maður kæmi
sér í svona klandur eins og margir
hafa gert í dag. Á maður alltaf að beita
einhverjum krafti eða getur maður
sest niður og látið þann sem maður
sjálfur bjó til hrynja yfir sig?“
Burtséð frá vangaveltum um að
aðalpersóna Gunnars sé starfsbróð-
ir höfundarins segir Gunnar frétta-
mennskuna vera ákaflega gefandi
fyrir glæpasagnahöfund. Sú tilhneig-
ing glæpasagnahöfunda að ávarpa
samtíma sinn og flétta samfélagsrýni
og gagnrýni saman við sögur sínar er
alþjóðleg og í þeim efnum er Gunnar
á heimavelli. „Hvað mig snertir sé ég
engan tilgang með þessu annan en
að fjalla um samfélag mitt án þess að
ég sé með neinar predikanir í þessari
nýju sögu. Ég er bara að bregða upp
mynd af ástandinu eins og það er. Eft-
ir á að hyggja, þegar ég fletti bókinni,
sýnist mér þessi þráður eða tónn sem
ég valdi ekki hafa verið sá auðveld-
asti.“
Gunnar segir hvern fréttadag í
raun vera endalausa uppsprettu hug-
mynda og að honum finnist hann
vera í kjöraðstöðu á Speglinum. „Ég er
á besta stað sem hægt er að hugsa sér.
Það tekur að vísu úr manni allt þrek
að vinna við fréttaskýringaþátt en á
móti kemur að það er mjög jákvætt að
upplifa að maður hafi unnið gott starf
þótt ekki verði mikill tími til að semja
þessar dýpri fréttaskýringar.“ toti@dv.is
Útvarpsleikhúsið frumflytur leik-
ritið Spor eftir nýtt, ungt leikskáld,
Starra Hauksson, á Rás 1 á sunnu-
daginn klukkan 14. Í verkinu segir
frá Andra sem er að verða þrítugur
og býr einn. Í dag er afmælisdagur
móður hans. Andri kemst ekki í af-
mælið því hann er upptekinn, eða
kannski er hann upptekinn af því að
vilja ekki mæta.
Fyrir ári, á þessum degi, gerð-
ist nokkuð sem olli straumhvörfum
í lífi hans, fjölskyldunnar og vina-
hópsins. En örlögin grípa í taumana
og Andri fær ekki lengur umflúið
að horfast í augu við atburðinn – og
sjálfan sig um leið. Með aðalhlut-
verk fara Sveinn Ólafur Gunnarsson
og Björn Thors en leikstjóri er Guð-
mundur Ingi Þorvaldsson.
Spor er frumraun Starra í Út-
varpsleikhúsinu. Hann er uppalinn
í Garði Mývatnssveit og er barna-
barn hinnar kunnu skáldkonu Jak-
obínu Sigurðardóttur. Starri fluttist
til Reykjavíkur á menntaskólaaldri
og heillaðist þar af leikhúsinu. Hann
tók þátt í uppsetningum leikrita og
skrifaði löngu gleymd mennta-
skólaleikrit á þeim tíma sem hann
sótti Ármúlaskóla. Seinna skrif-
aði Starri einleikinn Önnu fyrir Lif-
andi Leikhús Þorleifs Arnar Arnars-
sonar sem var hluti af verkefninu
Pentagon sem sett var upp í Iðnó á
Menningarnótt 2003. Árið eftir setti
hann upp, í samvinnu við Guðmund
Inga og Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur
Bachmann, leikritið Ójólaleikritið.
Starri vinnur nú að nýju verki sem
hugsanlega klárast einhvern tíma á
komandi vori.
Leikritið Spor verður frumflutt í Útvarpsleikhúsinu á sunnudaginn:
skrópar í afmæli mömmu
W.
Kvikmynd
spennandi
mynd um
okkar tíma.
SAGA MANNSiNS
mikill og
góður
fengur að
þessari
glæsilegu
bók.
Björn Thors Leikur
annað aðalhlutverkanna
í útvarpsleikritinu spor.
MYND GuNNAR GuNNARSSoN
„Mér fannst ekkert erf-
itt að skrifa sögurnar
um Margeir en þá var
kannski samfélagið
ekki alveg móttækilegt
fyrir svona frásögnum
af afbrotum. Almenn
hversdagsleg afbrot
voru kannski aðallega
einhver fyllirísvitleysa
en eins og við vitum
nú eru miklu alvarlegri
glæpir framdir. “
Samtímaspegill
glæpasögunnar