Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Blaðsíða 56
56 Föstudagur 28. nóvember 2008 Jólablað
H R A U N B Æ 1 0 2 · S Í M I 5 8 7 9 3 1 0 · G R E I F Y N J A N . I S
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra afhenti Kærleikskúluna í sjötta sinn við hátíðlega athöfn í Listasafni Reykja-
víkur í vikunni. Að þessu sinni hlaut Halaleikhópurinn kúluna, en meðal fyrri handhafa hennar eru Ólafur
Ragnar Grímsson og Freyja Haraldsdóttir. Kærleikskúlan fer í sölu í næstu viku og rennur allur ágóði af
henni til styrktar lömuðum og fötluðum ungmennum.
Halaleikhópurinn
hlaut Kærleikskúluna
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra af-
henti Kærleikskúluna í sjötta sinn við
hátíðlega athöfn í Listasafni Reykja-
víkur í hádeginu á miðvikudaginn.
Magnús Geir Þórðarson, leikhús-
stjóri Borgarleikhússins, veitti verð-
launin fyrir hönd Styrktarfélagsins.
Að þessu sinni var það Halaleikhóp-
urinn sem hlaut kúluna, en hann
skipa bæði fatlaðir og ófatlaðir ein-
staklingar og hefur hópurinn hlot-
ið mikið lof að undanförnu.Hópur-
inn vann meðal annars til verðlauna
fyrir athyglisverðustu áhugaleiksýn-
ingu síðasta leikárs, en það er Þjóð-
leikhúsið sem veitti þá viðurkenn-
ingu. „Þar sem þau hafa á engan hátt
látið fötlun sína hindra sig í listsköp-
un sinni teljum við hjá Styrktarfélagi
lamaðra og fatlaðra þau vera sannar
fyrirmyndir og eru þau því vel að því
komin að hljóta Kærleikskúlu ársins
2008,“ segir í tilkynningu Styrktarfé-
lagsins til fjölmiðla.
Allt sem AndAnn dregur
Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands,
blessaði kúluna við athöfnina og flutti
stutta ræðu af þessu tilefni. Kærleiks-
kúlan fer í almenna sölu föstudaginn
5. desember á völdum stöðum á höf-
uðborgarsvæðinu og á Akureyri. Til-
gangur með sölu kúlunnar er að auðga
líf fatlaðra barna og ungmenna með
því að efla starfsemi Reykjadals, sum-
ar- og helgardvalarbúða barna og ung-
menna.
Að þessu sinni er það listahópur-
inn Gjörningaklúbburinn sem hann-
ar Kærleikskúluna, undir yfirskriftinni
„allt sem andann dregur“. Eins og sjá
má á myndinni prýða þrjú rauð kossa-
för kúluna, eitt eftir hvern meðlim
Gjörningaklúbbsins. Kossaförin eiga
vel við, Gjörningaklúbburinn kallar sig
Icelandic Love Corporation á ensku.
til styrktAr góðu málefni
Halaleikhópurinn er sem fyrr seg-
ir sjötti í röðinni til þess að hljóta
þessa eftirsóttu viðurkenningu.
Meðal þeirra sem áður hafa hlotið
Kærleikskúluna eru Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, og Freyja
Haraldsdóttir.
Mikið er lagt upp úr því að eng-
in tvö eintök af Kærleikskúlunni séu
nákvæmlega eins. Kúlurnar í ár voru
munnblásnar í litlum bæ í Þýska-
landi og er hver kúla þess vegna sér-
stök.
Umbúðir og bæklingar kúlunnar
eru hins vegar framleidd hér á landi
af starfsfólki á Vinnustofunni Ási
sem er verndaður vinnustaður. Allir
þeir sem koma að sölu Kærleikskúl-
unnar í ár gefa vinnu sína og rennur
allur ágóði til starfs í þágu fatlaðra
barna og ungmenna. valgeir@dv.is
Allt sem andann dregur Það er
Gjörningaklúbburinn sem á heiðurinn af
hönnun Kærleikskúlunnar í ár.
Kærleikskúlan Fjöldi gesta
var samankominn í Listasafni
Reykjavíkur á föstudaginn.