Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Blaðsíða 104
n Ásdís Rán Gunnarsdóttir, sem
slegið hefur rækilega í gegn í
Búlgaríu að undanförnu, ætlar
að gefa sér tíma til að heimsækja
heimalandið rétt fyrir jólin. Þar
sem Ásdís og eiginmaður hennar
eru afar upptekið fólk hafa þau
gripið til þess ráðs að bjóða vin-
um og vandamönnum til jóla-
boðs á skemmtistað í Reykjavík
þar sem þau telja sig ekki hafa
tíma til að hitta alla. Það verður
eflaust múgur og margmenni
sem lætur sjá sig í jóla-
boði skötuhjúanna
sem hafa lifað sann-
kölluðu stjörnulífi
í Búlgaríu síðustu
vikur en Ásdís hef-
ur meðal ann-
ars setið fyrir í
tímaritinu Max,
komið fram í
sjónvarpsþátt-
um og margt
fleira.
Er í lagi að opna
jóladagatalið?
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
„Davíð Oddsson forfallaðist. Enn er
mikilvægum upplýsingum haldið
leyndum fyrir þjóðinni og ekkert hefur
heyrst um það hvernig eigi að greiða
upp þau lán sem nú er verið að taka án
samþykkis þjóðarinnar. 1. desember
fögnum við sjálfstæði okkar sem þjóð-
ar, sjálfstæði sem nú er í bráðri hættu.“
Svona hefst yfirlýsing á Facebook-hóp
sem ber nafnið „1. des – alhliða að-
gerðir.“
Eva Hauksdóttir stofnaði hópinn. Hún
segist ekki ætla að sætta sig við ástand-
ið í þjóðfélaginu og sitja aðgerðalaus á
meðan engin svör fáist.
„Ég hvet fólk til að borga ekki af
neinum lánum við ríki eða banka
1. des. Ég skora einnig á þá sem ekki
þora að ganga alla leið að sýna alla-
vega samstöðu þennan eina dag og
borga svo 2. des,“ segir Eva og leggur
til að fólk leggi niður vinnu á fullveld-
isdaginn. Hópurinn mun svo fara að
Seðlabankanum og biðja Davíð Odds-
son kurteislega um að segja af sér. „Ef
við fáum ekki viðunandi svör verður
hann borinn út öðrum til viðvörunar,“
segir Eva.
Aðspurð hvort hún hræðist aðgerð-
ir lögreglunnar segir Eva það ekki vera
svo. „Við erum búin að sjá það að lög-
reglan er tilbúin til að beita ofbeldi án
viðvörunar. En ég hef ekki áhyggjur af
því,“ segir Eva og bætir því við að lyg-
arnar séu verri en piparúðinn.
Heldur jóla-
boð á Íslandi
Klikkaður
í Cocoa Puffs!
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
N
A
T
34
27
9
09
/2
00
6
Hópur fólks segist munu bera Davíð Oddsson út úr Seðlabankanum á fullveldisdaginn:
Ætla að bera davÍð út
n Guðni Ágústsson er staddur
á Kanarí þessa daga eins og DV
hefur greint frá. Síðasta laugar-
dag hélt hann ræðu á Klörubar
eins og hann hefur gjarnan gert
þegar hann er staddur á Kanarí.
Á fundinum talaði Guðni um
Framsóknarflokkinn en vildi ekki
svara spurningum um ástæður
þess að hann yfirgaf stjórnmál-
in. „Ég ætlaði ekki að spyrja þig
að þessu, en af hverju hættirðu?“
spurði eldri kona Guðna sem
vísaði í yfirlýsingu sem hann
sendi fjölmiðlum. Gamlir
framsóknarmenn og
andstæðingar úr pólítík
skömmuðu Guðna fyrir
að hætta í stjórnmál-
um en hátt í 300 manns
voru á fundinum. Guðni
drakk kaffi á meðan
á fundinum stóð og
virtist að sögn við-
staddra standa sig
ágætlega.
Guðni skammaður
á kanarÍ
n Nokkrir vel þekktir rokkar-
ar úr tónlistarbransanum hafa
ákveðið að endurvekja hljóm-
sveitina Rolling Stones á Play-
ers um helgina og reyna að ná
þeim svo vel að ekki verði hægt
að greina á milli. Það eru þeir
Bjössi og Bjarni úr Mínus, Kalli
úr Lights on the Highway, Frosti
úr Esju og Birgir Ísleifur úr Mot-
ion Boys sem skipa liðið. Bjössi,
sem þekktur er fyrir einstak-
an trommuleik, kemur fram og
syngur í fyrsta skipti en honum
hefur ósjaldan verið líkt við sjálf-
an Mick Jagger í útliti. Það verður
því ekki annars að vænta en að
honum muni takast vel upp.
upplyftinG Í
kreppunni
Búin undir allt eva krefst aðgerða.