Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Blaðsíða 70
70 Föstudagur 28. nóvember 2008 Jólablað
Jólagjöfin í ár er
íslensk hönnun
Rannsóknasetur verslunarinnar
kynnti í síðustu viku spá um jóla-
verslunina og þá var einnig tilkynnt
hver jólagjöfin í ár verði. Könnun á
jólainnkaupum landsmanna leið-
ir í ljós að þeir ætla að verja minna
til jólainnkaupa í ár en þeir gerðu
í fyrra, byrja jólainnkaupin fyrr og
kaupa minna í útlöndum en áður. Þá
má ætla að meiri hagkvæmni muni
ráða för í jólainnkaupum í ár en oft
áður.
Jólagjöfin í ár er íslensk hönnun.
Sérskipuð dómnefnd komst að þess-
ari niðurstöðu og rökstyður það með
því að íslensk hönnun njóti vaxandi
vinsælda og sé mjög í takt við tíðar-
andann.
DómnefnD skipuð
hæfileikafólki
Emil B. Karlsson, forstöðumaður
Rannsóknarseturs verslunarinnar
við Háskólann á Bifröst, segir dóm-
nefndina hafa verið skipaða hæfi-
leika- og smekkfólki. Þau hafi svo
metið það sem svo út frá nokkrum
forsendum að íslensk hönnun væri
jólagjöfin í ár. Hún falli vel að tíðar-
andanum og seljist sífellt betur. Sér-
verslanir með íslenska hönnun eru
vinsælar og listasýningar líka. „Ís-
lensk hönnun hentar fjárhag allra.
Menn eru kröfuharðir og íslensk-
ir hönnuðir hafa getið sér gott orð,“
segir Emil. Hann segir áhugavert að
sjá þróunina á því í þeim jólagjöf-
um sem rannsóknarsetrið hefur val-
ið undanfarin ár. í fyrra var það GPS-
tæki, árið þar á undan safapressa og
2005 var það lófatölva. Nú snúi fólk
sér aftur að því sem er nær þeim.
margbreytileg
Íslensk hönnun er margbreytileg.
Allt frá nytjahlutum ýmiss konar
sem fólk notar í eldhús jafnt sem ull-
arvörur, skartgripir og kertastjakar.
„Allt sem hugurinn nær yfir í raun-
inni,“ segir Emil en bætir því við að
ullarvörurnar séu ávallt vinsælar.
Rannsóknarsetrið hefur árlega gert
könnun á jólagjafakaupum á meðal
landsmanna. Emil segir niðurstöð-
una oftast hafa verið nokkuð áreið-
anlega. Í ár sé þrennt sem standi upp
úr. Fólk segist ætla að verja minna til
jólagjafakaupa núna. Það fer minna
til útlanda og í þriðja lagi byrjar fólk
fyrr en áður að kaupa gjafirnar. Fólk
er hagsýnna en síðustu ár vegna
efnahagsástandsins.
Jólin eru birtan
Ellý Steinsdóttir starfsmaður versl-
unarinnar Kraums sem selur ís-
lenska hönnun segir ofboðslega
breiðan hóp kaupa íslenska hönn-
un. „Það hefur aldrei verið eins víður
hópur verslað hjá okkur. Það er mik-
ið fatnaðurinn sem fer út og alls kon-
ar fallegir munir. Eitthvað svona sem
hlýjar hjartað,“ segir hún. Ellý seg-
ir kertastjakana hjá þeim vera mjög
vinsæla. „Jólin eru birtan og þá vill
fólk að sjálfsögðu kaupa kertastjak-
ana okkar.“
Í versluninni Kirsuberjatrénu
verður sama verðið og í fyrra. Að
sögn Láru Gunnarsdóttur sem vinn-
ur vörur úr íslensku birki fyrir versl-
unina er hún orðinn full af nýjum
vörum.
Hún segir jólakúlurnar án efa
verða vinsælar, tréenglana og spila-
dósirnar. Einnig sérhannaða bolla og
kertastjaka úr leðri. Í Kirsuberjatrénu
má einnig finna töskur úr fiskroði og
skartgripi í miklu úrvali. Fyrir karl-
mennina eru skyrtur, bindi og trefl-
ar, allt handprjónað og handsaumað
og hannað af einum listamanninum
fyrir verslunina. Svo eru skálarnar úr
grænmeti sífellt að verða vinsælli.
100 prósent íslensk hönnun
Í 66°Norður gengur salan vel. Versl-
unin hefur lengi verið vinsæl á með-
al erlendra gesta sem sækja landið
heim. „Fólk vill bæði kaupa íslenskt
og það vill eitthvað nytsamlegt í
jólagjöf,“ sagði starfsmaður við DV.
Barnalínan hjá 66°Norður hefur notið
mikilla vinsælda hjá öfum og ömm-
um sem koma og versla í búðinni.
Svo er vörulínan Kaldi einnig afar
vinsæl í versluninni. „Parka-úlpan
okkar er mjög vinsæl og hefur verið.
Við erum með 100 prósent íslenska
hönnun og við finnum meðbyr með
því hjá Íslendingum.“ Starfsmenn
verslunarinnar segja jólaverlsunina
hafna en búist sé við mikilli aukn-
ingu í byrjun desember.
jonbjarki@dv.is
Góðar gjafir
Handprjónasambandið
Skólavörðustíg 19 • Iðu, Lækjargötu 2A.
Góðar gjafirGóðar gjafir
Handprjónasambandið
Skólavörðustíg 19 • Iðu, Lækjargötu 2A.
s. 552 1890 • www.handknit.is
Góðar gjafir
Handprjónasambandið
Skólavörðustíg 19 • Iðu, Lækjargötu 2A.
s. 552 1890 • www.handknit.is
Ha dprjónasambandið
Skólavörðustíg 19 • Iðu, Lækjargötu 2A.
s. 552 1890 • www.handknit.is
Dómnefnd Rannsóknaseturs verslunarinnar við Háskólann á Bifröst hefur komist að þeirri
niðurstöðu að jólagjöfin í ár verði íslensk hönnun. Emil B. Karlsson, forstöðumaður Rann-
sóknaseturs verslunarinnar, segir íslenska hönnun henta fjárhag allra. DV hafði samband við
þrjár verslanir sem selja íslenska hönnun. 66°Norður, Kraum og Kirsuberjatréð. Ljóst er að
það er úr ýmsu að velja og allir geta fengið eitthvað við sitt hæfi.
Íslensk hönnun Í Kirsuberjatrénu má
kaupa þetta armband ásamt fjölmörgu
öðru sem hannað er og búið til á Íslandi.
Ljós í myrkrinu Þessi hvíti lampi er
kallaður Broddar, hann er ofinn úr pappír
og tágum.
Vetrarúlpan Í 66°Norður seljast
vetrarfötin vel þessa dagana og búist er
við því að í desember muni salan
stóraukast.