Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Blaðsíða 16
Afskipti Davíðs Oddssonar, þáver-
andi forsætisráðherra, af hjúskap-
armálum Ólafs Ragnars Grímsson-
ar og Dorritar Moussaieff vorið og
sumarið 2003 hefur vakið athygli, en
frá þeim afskiptum er greint í nýút-
kominni bók Guðjóns Friðrikssonar
„Saga af forseta“. Þykja þau bera vott
um óvenjulega drottnunargirni en
jafnframt þungan hug forsætisráð-
herrans þáverandi til Ólafs Ragnars.
Svo sem frá er greint í bók Guð-
jóns náðu afskipin af ráðahag Ólafs
Ragnars og Dorritar hámarki með
bréfi sem Davíð sendi forsetanum
31. júlí 2003. Þar telur hann óhjá-
kvæmilegt að gera athugasemdir við
framkvæmd hjónavígslunnar, sem
fram fór 14. maí á Bessastöðum sama
ár, en þau lutu að skilnaðarvottorði
Dorritar frá fyrra hjónabandi. Í bréf-
inu segir: „Er óskiljanlegt og óverj-
andi með öllu að að ekki hafi verið
bætt úr þeim ágöllum sem á vígsl-
unni voru og því sem að öðru leyti á
vantar til að ganga megi frá færslum
Þjóðskrár með ágallalausum hætti.
Verður að krefjast þess að úr öllum
þeim ágöllum verði bætt án tafar,
enda er þetta mál allt hið vandræða-
legasta og óheppilegt hvernig til þess
var stofnað.“ Undir bréfið ritar Davíð
Oddsson.
Í forsetabókinni segir að auðveld-
lega megi túlka bréf forsætisráðherra
sem aðför að forsetahjónunum og
ekki síst að heiðri forsetafrúarinnar.
„Ómerkilegur kjaftaskur“
Enginn þarf að velkjast í vafa um að
Davíð ber þungan hug til Ólafs Ragn-
ars og margvísleg atvik eru tilgreind
í bókinni sem vísa í þá átt. Ljóst er
að Davíð kunni því til að mynda afar
illa að Ólafur Ragnar, sem eitt sinn
hafði talað um „skítlegt eðli“ Davíðs
úr ræðustóli á Alþingi, skyldi ná kjöri
sem forseti Íslands árið 1996.
Dagbækur Matthíasar Jo-
hannessen, fyrrver-
andi ritstjóra Morg-
unblaðsins, á
netinu hafa vakið
umtalsverða at-
hygli. Laugardag-
inn 15. ágúst 1998
hitti hann Davíð
Oddsson forsæt-
isráðherra í ráð-
herrabústaðnum
við Tjarnargötu
ásamt Styrmi
Gunnarssyni, með-
ritstjóra sínum
á Morgun-
blað-
inu.
Matthías lýsir fundinum í færslum
sínum og talar um langt og gott sam-
tal: „Þegar við minntumst á forseta-
embættið og vörn hans fyrir Ólaf
Ragnar nú ekki alls fyrir löngu, sagði
hann, að það væri ekki sitt hlutverk,
að efna til óvinafagnaðar í þjóðfélag-
inu. Hann segir það skipti sig engu
hvort forsetinn hafi verið formaður
Alþýðubandalagsins eða gamall sós-
íalisti, en bætti því við að hann væri
mér sammála um, að það væri erfitt
að láta sér lynda, að jafnósvífinn og
ómerkilegur pólitískur kjaftaskur um
tuttugu ára skeið skuli taka við þessu
embætti.“
Heimildirnar tala
Þegar Matthías birti dagbækur sín-
ar frá 1997 og 1998 á netinu í ágúst
síðastliðnum vakti athygli frásögn
hans af boði þar sem Styrmir og Dav-
íð höfðu hist. Matthías skráir eftirfar-
andi í dagbók sína 3. júlí 1998:
„Davíð hafði aftur á móti
verulegar áhyggur af öðru
máli. Hann sagði að það
hefði komið 15 milljóna
króna reikningur í skrif-
stofu sendiherra Ís-
lands í Wash-
ington sem
fyrsta
greiðsla
fyrir
læknis-
meðferð
for-
setafrúarinnar í Seattle. Enginn hefði
minnzt á þetta einu orði og þeir Hall-
dór Ásgrímsson vissu ekki hvern-
ig með skyldi fara. Ef neitað yrði að
greiða yrðu þeir úthrópaðir sem ill-
menni og yrðu að segja af sér, en ef
greitt væri kæmi að sjálfsögðu að
því að slíkar greiðslur þyrfti einnig
að inna af hendi fyrir þá sjúklinga
aðra, sem minna mega sín. Hann
ætlar víst að láta Tryggingastofnun-
ina kanna þetta mál til hlítar og ræða
það síðan við forystumenn stjórnar-
andstöðunnar svo að hann sitji ekki
uppi með hneykslismál að lokum.“
Guðjón Friðriksson minnist ekki
á þessar tilvitnanir í forsetabókinni
nýju og yfirhöfuð ekkert á Matthí-
as Johannessen. Guðjón segir við
blaðamann DV að ritun bókarinn-
ar hafi að mestu lokið löngu áður
en Matthías birti umræddar
dagbókarfærslur.
Sjö mínútna
kast
Samflokksmenn,
vinir og aðrir,
kannast við reiði-
köst Dav-
íðs.
Frá einu slíku segir Matthías í dag-
bókum sínum. 12. júní 1998 voru
ritstjórar Morgunblaðsins í boði
hjá Sverri Sigfússsyni, þá forstjóra
Heklu, ásamt Davíð Oddssyni, Ól-
afi Skúlasyni, þáverandi biskupi, og
fleirum. „En að borðhaldinu loknu
og þegar við höfðum sezt inn í stofu
og vorum að tala um eitthvað hund-
ómerkilegt, hóf hann skyndilega
harða gagnrýni á mig út af Sverris-
málinu... Gagnrýni Davíðs átti ræt-
ur að rekja til þess, að við skyldum
hafa birt úr bréfi hans til Sverr-
is Hermannssonar og mynd af því.
Við værum því brotlegir og þátttak-
endur í árás á hann. Þetta hafi ver-
ið einkabréf eins og allir hafi séð
og vitað, og birtingin til þess eins
að koma höggi á hann... Einhvern
tíma í þessu samtali sagðist Davíð
ekki skilja af hverju Sverrir
væri að ráðast á sig og
var harla viðkvæmur
fyrir því.“
Matthías seg-
ir einnig frá lykt-
um málsins í
umræddu boði.
„Þegar við höfð-
um afgreitt
ávirðingar mín-
ar og Morgun-
blaðsins (því aldrei var minnzt á
Styrmi) sagðist Davíð hafa tekið
sjö mínútna kast, en nú væri því
lokið.“
Hótanir
Sigurður Einarsson, fyrrverandi
stjórnarformaður Kaupþings, hef-
ur lýst einu svona kasti. 20. októ-
ber í fyrra sótti fjöldi Íslendinga að-
alfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í
Washington. Að honum loknum var
haldin veisla á vegum Seðlabanka
Íslands. Í veislunni veittist Davíð að
Sigurði, meðal annars vegna kröfu
stjórnenda Kaupþings um að fá að
færa bókhald og rekstur bankans
í evrum en ekki íslenskum krón-
um. Gegn þessu hafði Davíð lagst af
þunga. Sigurður hefur sagt það eitt
að Davíð hafi látið stór orð falla og
haft í hótunum að knésetja Kaup-
þing á skömmum tíma.
Vitað er um nokkur vitni að orða-
skaki Sigurðar og Davíðs. Þeirra
á meðal eru Lilja Alfreðsdóttir og
Sturla Pálsson, sem bæði gegna
stjórnendastöðum í Seðlabankan-
um. Hvorugt þeirra hefur viljað tjá
sig um atvikið þótt DV hafi gengið
eftir því. Þá varð einnig eiginkona
Sigurðar vitni að orðaskakinu.
Tangarhald á fjölmiðlunum
Gríðarlegur tími fór í fjölmiðlalögin
svonefndu árið 2004. Í fyrsta skipti
í lýðveldissögunni beitti forseti Ís-
lands stjórnarskrárbundnum mál-
skotsrétti þegar hann synjaði þeim
lögum staðfestingar 2. júní það ár.
Fljótlega varð ljóst að Framsókn-
arflokkurinn gæti ekki og vildi ekki
standa að því að samþykkja ný og
áþekk lög að vilja Davíðs. Boðað var
til sumarþings til að greiða úr mál-
inu. Niðurstaðan varð að óundirrit-
uðu lögin voru afnumin án þess að
ný kæmu í staðinn.
Þingflokksfundur Sjálfstæðis-
flokksins var haldinn skömmu fyr-
ir lok sumarþingsins 20. júlí það ár.
Heimildir eru fyrir því að Gunnar I.
Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi og
þáverandi þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, hafi kvartað sáran yfir því
hversu mikill tími hefði farið í fjöl-
miðlamálið á sama tíma og undir-
búningur fjárlaga sæti á hakanum.
Við þessu brást Davíð ókvæða og
kallaði Gunnar öllum illum nöfnum.
Heimildir herma að Gunnar hafi illa
sætt sig við vanstillinguna og gengið
á dyr áður en fundi var slitið.
Þá eru heimildir fyrir því að Dav-
íð hafi reiðst því ákaflega
þegar Guðni Ágústs-
son tilkynnti hon-
um að lengra yrði
ekki gengið í fjöl-
miðlamálinu af
hálfu Framsókn-
arflokksins, enda
líkur á að forset-
inn synjaði slík-
um lögum stað-
festingar á ný. „Ég
sagði við Davíð að
hann þyrfti ekkert að
vera að skamma mig.
Þetta snerist líka um
framtíð hans sjálfs,“
sagði Guðni í endur-
minningabók sinni um
þetta atvik.
Agavald og umbun
Hanna Arendt ritaði um
vald á síðustu öld og
taldi að það yrði ein-
vörðungu rakið til
hóps. „Valdið er því
aðeins raunveru-
legt að hópurinn
loði saman. Þeg-
ar við segjum að
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 200816 Helgarblað
Agavald Davíðs Oddssonar yfir Sjálfstæðisflokknum dugði honum til 13 ára setu á valdastóli sem forsætisráð-
herra. Þjóðin varð nær gjaldþrota í tíð hans sem seðlabankastjóri og atvinnuleysi er nú þegar orðið meira en þekkst
hefur í áratugi. Jóhann Hauksson rýnir í agavald Davíðs yfir þjóðlífinu og valdaflokki íslenskra stjórnmála.
SKÓSVEINAR OG DROTTNANDI AGAVALD
JÓHAnn HAukSSOn
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Sigurður Einarsson
Davíð sneri niður
Kaupþingsmenn með
hótunum um að
knésetja bankann.
Guðni Ágústsson
Heldur tryggð við vin sinn
í Seðlabankanum en
hefur mátt þola blóðugar
skammir frá honum.
Árni Mathiesen Árni var skipaður
dómsmálaráðherra í skamma stund til
þess einvörðungu að skipa Þorstein,
son Davíðs og aðstoðarmann Björns
Bjarnasonar, í dómaraembætti.
Gunnar I. Birgisson Davíð
hundskammaði Gunnar á
þingflokksfundi fyrir að vilja
snúa sér að gerð fjárlaga
frekar en að tala um fjölmiðla.
Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff
„Er óskiljanlegt og óverjandi með öllu að að ekki
hafi verið bætt úr þeim ágöllum sem á vígslunni
voru...“ segir í bréfi Davíðs.