Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Blaðsíða 54
„Við viljum meina að þetta sé hinn
sanni jólaandi að leggja svolitla
vinnu í jólagjafirnar og þær þurfa
ekki að kosta mikið,“ segir Páll Guð-
brandsson, markaðs- og kynningar-
fulltrúi Skólavefjarins, en þar á bæ
hafa menn ákveðið að létta undir
með þjóðinni á erfiðleikatímum fyrir
jólin. Á Skólavefnum hefur Jólagjafa-
smiðjan verið sett á laggirnar þar sem
fólk getur nálgast jólagjafir sem það
sækir án þess að greiða fyrir. Er þar
um að ræða meðal annar útprentað-
ar bækur, hljóðdiska og dagatöl.
Leggja sitt af mörkum
„Við vorum að hugsa um hvað við
gætum gert til að leggja okkar af
mörkum. Þetta er okkar hvatning til
þess að fjölskyldan komi saman. For-
eldrar geti hjálpað börnum sínum að
útbúa jólagjafir þeim að kostnað-
arlausu,“ segir Páll, og bendir á að
á Jólasmiðjusíðunni sé einnig hægt
að finna efni fyrir fullorðna. „Það er
bæði barna- og fullorðnisefni þannig
að börnin geta gefið fullorðnum,
fullorðnir geta gefið börnum og allt
þar á milli. Leikskólarnir hafa verið
hrifnir af þessu og við höfum feng-
ið mjög jákvæð viðbrögð við þessu
framtaki. Fólk er yfir sig ánægt með
þetta og við erum ánægðir með að
fólk sýni þessu áhuga,“ segir Páll.
gjafir sem þarf að vinna
Á síðunni er ekki að finna hefð-
bundnar jólagjafir eins og keyptar
eru út í búð. Heldur eru þetta gjafir
sem þarf að vinna og útbúa. Nokkuð
sem öll fjölskyldan getur komið sam-
an og gert í sameiningu. Bækurnar
þarf að prenta út, myndskreyta og
setja saman. Hljóðdiskana má hlaða
niður, brenna á geisladisk og dunda
sér síðan við að hanna utan um þá
umbúðir. Þannig að úr verður nokk-
urs konar heimilisiðnaður fjölskyld-
unnar.
„Þetta getur verið mjög eigulegt
og flott ef fólk leggur smá aukalega
á sig og kostar fólk ekki neitt nema
smá vinnu,“ segir Páll um hina frum-
legu Jólagjafasmiðju.
veL þegin tiLbreyting
Meðal þeirra hljóðdiska með sög-
um á sem hægt er að hala niður á
síðu Jólagjafasmiðjunnar eru Bú-
kolla og fleiri ævintýri, Ást og auður
eftir Jóhann Gunnar Sigurðsson og
Gunnlaugs saga ormstungu. Bækur
sem má ná í og prenta út er til dæm-
is Gullbrá og birnirnir þrír, Björninn
sem aldrei varð reiður og kanínurn-
ar í kálgarðinum. Þetta er aðeins lítið
dæmi um þær innilegu gjafir sem út-
búa má með lítilli fyrirhöfn og engum
tilkostnaði fyrir ástvini og fjölskyldu.
Nokkuð sem er vel þegin tilbreyting í
dag á tímum efnahagsþrenginga.
Allar upplýsingar má finna á vef-
síðunni skolavefurinn.is en þar má
finna Jólagjafasmiðjuna. Leggjum
nú krítarkortunum um þessi jólin og
útbúum gjafir í góðu yfirlæti fyrir ást-
vini. DV mælir með Jólagjafasmiðj-
unni fyrir jólin.
mikael@dv.is
54 Föstudagur 28. nóvember 2008 Jólablað
www.ultratone.is
Ultratone fyrir dömur og herra frá 18 ára
Andlitsmeðferð burt með:
Baugana
Hrukkurnar
Undirhökuna
Þreytta og slappa húðÞÚ VELUR UPPHÆÐINA OG SENDIR OKKUR
VIÐEIGANDI UPPLÝSINGAR Á
ultratone@simnet.is
OG FÆRÐ SENT EÐA SÆKIR
GLÆSILEGT GJAFABRÉF Í JÓLAPAKKANN
Líkamsmeðferð
Grenning á öllum stigum
Vöðvauppbygging
Nudd og spennulosun
Burt með bjúg og þreytta fætur
Húðstyrking t.d. eftir barnsburð eðamikla grenningu
869 7090
GEFÐU HEILSU Í JÓLAGJÖF
Aðstandendur Skólavefjarins hafa fangað hinn sanna anda jólanna með nýjung á síðu sinni sem heitir Jóla-
gjafasmiðjan. Þar geta börn og fullorðnir nálgast bækur, hljóðdiska og dagatöl sem hægt er að útbúa á skemmti-
legan hátt. Að því ógleymdu að þetta getur fólk nálgast sér að kostnaðarlausu. Jólagjafasmiðjan er hvatning til
að þjappa fjölskyldunni saman fyrir jólin.
Þar sem hugurinn
skiptir mestu máli
„við vorum að
hugsa um hvað
við gætum gert til
að leggja okkar af
mörkum. Þetta er
okkar hvatning til
þess að fjölskyldan
komi saman. For-
eldrar geti hjálp-
að börnum sínum
að útbúa jólagjafir
þeim að kostnaðar-
lausu.“
Endurvekja jólaandann Páll
Guðbrandsson og félagar hjá
Skólavefnum hafa sett Jólagjafa-
smiðjuna á laggirnar þar sem börn
og fullorðnir geta nálgast ókeypis
efni til að útbúa jólagjafir handa
ástvinum sínum. Mynd dV