Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2008 15Helgarblað
ATKVÆÐASÖFNUN Í JÓLAHLAÐBORÐI
um að slá þessu bara saman og erum
að fara auglýsa framboð núna um
helgina og ég stillti því þannig upp
að ég væri að hugsa um að gefa kost
á mér en væri svo sem ekkert búinn
að ákveða það en ætlaði að leggja
það í dóm trúnaðarmanna og trún-
aðarráðs ef þau myndu vilja lýsa yfir
stuðningi við mig væru listar við and-
dyrið,“ segir Gunnar Páll og bendir á
að einhver hafi sett listana á borð-
in en ekki að hans frumkvæði. Að-
spurður hvort honum finnist hann fá
forskot á aðra sem ætla að bjóða sig
fram segir Gunnar Páll: „Ég leit svo á
ef þessi hópur vildi mig ekki, ætlaði
ég ekki að bjóða mig fram.“ Gunnar
fékk ríflega hundrað undirskriftir og
mættu í kringum 120 manns á jóla-
hlaðborðið. „Ég harma það ef ein-
hver hefur talið þetta vera pressu á
sig,“ segir Gunnar að lokum.
Fyrrverandi bankastarfsmaður, Margrét Traustadóttir, opnar markað, Norðurport, á
Akureyri. Hún missti vinnuna eftir 27 ára starf þegar ríkið yfirtók bankann. Í stað þess
að gefast upp ákvað Margrét að venda kvæði sínu í kross og nýta sköpunarkraftinn.
Bankakona opnar
markað norðursins
Margrét Traustadóttir, fyrrverandi
starfsmaður Landsbankans á Akur-
eyri, hefur vent kvæði sínu í kross
og hyggst núna opna markaðinn
Norðurport í höfuðstað norðurs-
ins. Margrét hafði unnið hjá Lands-
bankanum í 27 ár þegar ríkið tók
yfir bankann. Í kjölfarið missti hún
vinnuna eins og svo margir aðrir.
„Ég var náttúrulega sár og svekkt
og allt það og ég fór að hugsa hvað
ég gæti gert,“ segir Margrét og bætir
því við að með hverri vikunni sem
leið hafi örlað æ meir á gömlum
sköpunarkrafti sem bjó í henni.
Margrét var búin að ganga með
hugmyndina í nokkurn tíma en
ákvað svo að fara á fund bæjar-
stjórnar sem tók vel í hugmyndina
um eins konar Kolaport norðurs-
ins. Hún segir bæjaryfirvöld hafa
verið velviljuð og aðstoðað hana
við að finna húsnæði.
Menning og verslun
Húsnæði Norðurports verður opn-
að laugardaginn 6. desember í
1.100 fermetra húsnæði á Dals-
braut 1 á Akureyri. Það býður upp
á marga möguleika að sögn Mar-
grétar. Hún vill sjá leiklistarhópa,
tónlistarmenn og aðra listamenn
nýta sér aðstöðu í húsinu og skapa
andrúmsloft sem er þægilegt fyrir
alla. Fólk mun eiga möguleika á því
að selja vörur sínar þar, hvort sem
það eru handgerðir munir, gamlir
hlutir eða eitthvað matarkyns eins
og harðfiskur, laufabrauð og fleira.
Margrét segir símann ekki hafa
stoppað eftir að hún auglýsti mark-
aðinn. Markaðurinn verður ætlað-
ur fyrir Norðurlandið allt. „Svo er
hugmyndin sú að hafa þemadaga
fyrir viss svæði. Frá Fjallabyggð
til Svarfdæla, Þingeyinga og fleira
til þess að laða fólk í bæinn,“ segir
Margrét.
Létta andrúmsloftið
Margrét segist hafa hugsað um
það hvað hún gæti gert eftir að
hún missti vinnuna, og hvernig
hún gæti hjálpað öðrum í leiðinni.
Hún segir marga listamenn vera
með handverk sín í bílskúrum vítt
og breitt um bæinn. Með Norður-
porti sé möguleiki á því að sameina
fólkið á einu svæði. „Mér hefur alls
staðar verið geysilega vel tekið og
allir eru rosalega glaðir með þetta,“
segir hún. Margrét segir það í raun
nauðsynlegt á þessum tímum að
finna leiðir til þess að létta and-
rúmsloftið hjá fólki. Í Norðurporti
vonast hún til þess að fólk alls stað-
ar að geti hist og notið fjölbreytn-
innar. Hún er sannfærð um að þessi
markaður norðursins muni koma
með meira líf inn í bæinn.
Jón bJarki Magnússon
blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is
„Mér hefur alls staðar
verið geysilega vel tek-
ið og allir eru rosalega
glaðir með þetta.“
Tækifærin í kreppunni
Margrét Traustadóttir hefur fulla trú á
því að Norðurport muni hafa góð áhrif
á bæjarlífið á Akureyri og laða
nærsveitunga á markaðinn.