Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Blaðsíða 68
FYRIR HANA:
Skartgripahengi
Í Saltfélaginu má
finna þetta
skemmtilega
skartgripahengi
eftir Hrafn
Gunnarsson. Allar
konur eiga
einhverja skartgripi
og þurfa góðan
stað til að geyma þá. Þetta hengi er því
ekki eingöngu nytsamlegt heldur einnig
mjög smart. Skartgripahengið fæst í
svörtu plasti sem og viði. Ef þú vilt vera
flottur á því læturðu einn fallegan
skartgrip fylgja með í pakkanum.
Ómótsæðileg hönnun
Þessi einstaklega
fallega taska sem
er eftir hönnuðinn
Hrafnhildi
Guðrúnardóttur
myndi sóma sér vel
á öxl hverrar konu.
Taskan er
íburðarmikil og
áberandi og
gengur því vel með einföldum fatnaði.
Töskuna má fá í nokkrum litum og fæst í
versluninni Trílógíu.
Smart kragi
Þennan glæsilega
kraga eftir fata-
hönnuðinn Birtu
Björnsdóttur má
nota við einfaldar
flíkur sem og spari-
dressin, kragarnir
fást einnig í fleiri
stærðum og
gerðum. Gleður án efa konur sem kunna
að meta flotta íslenska hönnun.
Dagbók
Allar konur þurfa
að eiga dagbók,
þessi fallega bleika
dagbók ber heitið
Konur eiga orðið
allan ársins hring.
Bókin er fallega
myndskreytt og
uppfull af
spakmælum íslenskra kvenna á öllum
aldri. Algjör skyldueign hverrar konu og
tilvalin jólagjöf.
Hárspöng
Hárspangir í öllum
stærðum og
gerðum hafa
sjaldan verið
jafnvinsælar og nú.
Gefðu konunni
fallega hárspöng
sem hún getur
notað við fín tilefni.
Einnig er gaman að eiga minni spangir
til að krydda upp á útlitið virka daga.
Förðunarburstar
Komdu kærunni á óvart með veglegum
förðunarburstum. Hægt er að kaupa
staka pensla í flestum snyrtivöruverslun-
um landsins en einnig má finna flott
penslasett sem innihalda nokkra góða
pensla.
Tarot – nútíð og
framtíð
Ef þín kona hefur
gaman af því að
spá í spilin er þetta
rétta bókin fyrir
hana. Kauptu
fallegan tarot-
spilastokk með ef
hún á hann ekki
fyrir. Skemmtileg afþreying fyrir þær
sem hafa áhuga.
Skartgripir
Þessir flottu hringar eru eftir hina
glæsilegu Hendrikku Waage og fást
meðal annars í versluninni Leonard.
Hringarnir fást í hinum ýmsu stærðum,
gerðum og litum og eru umfram allt á
mjög góðu verði.
FYRIR HANN:
Kokteilhristari
Marga karlmenn
dreymir um að geta
gert fullkomna
kokteila, hvort sem
það er fyrir félagana
eða á rómantísku
kvöldi með
eiginkonunni.
Kokteilhristari er hin
fullkomna jólagjöf og passar eflaust inn í
vínskápinn eða á barborðið. Hægt er að
fá kokteilhristara af öllum gerðum auk
mæliskeiða til að hafa hlutföllin rétt,
uppskriftir að kokteilum er hægt að
nálgast á netinu.
Gjafabréf frá konunni
Ef eiginkonuna langar að vera góð við
manninn sinn getur hún útbúið
gjafakort eða Inneign þar sem
manninum er frjálst að nota hvenær sem
er og konan getur ekkert sagt þegar
hann ætlar að nota það. Til dæmis; 1
stykki veiðiferð með strákunum, 1
pókerkvöld með strákunum eða sofa út
á laugardegi. Hentar mjög vel fyrir par
með börn.
Hydra Energetic
andlitskrem
Allir karlmenn eldri
en sextán ára þurfa
á góðu rakakremi
að halda,
sérstaklega þegar
kalt er í veðri og
húðin getur orðið
þurr. Hydra
Energetic er
frábært krem sem
hjálpar að halda
raka í húðinni og
reynist einkar vel
eftir rakstur. Kremið fæst í flestum
apótekum landsins.
Áskrift að Stöð 2 sport
Ef það er eitthvað sem honum finnst
skemmtilegt að gera er það að horfa á
fótbolta. Draumur hvers áhugamanns
um fótbolta er að geta horft á boltann
heima í stofu, auk leikjanna sjálfra eru
endursýningar sífellt í gangi og
umræðuþættir. Hægt er að kaupa
gjafabréf á heimasíðu Stöðvar 2.
Vasahnífur
Vasahnífur kemur sér alltaf vel, hvort
sem það er í veiðina eða ferðalagið. Í
vasahníf eru allar græjur sem hann
gleymir oftast, svo sem naglaklippur. Í
vasahnífnum eru tannstöngull og
skrúfjárn sem koma sér oftast vel hvar
sem er. Ef verkfærakassinn hans er ekki
stór er vasahnífurinn fullkomin jólagjöf.
Biotherme Homme Regenetic
Þessi frábæra nýjung á markaðnum
vinnur ötullega gegn hárlosi. Regenetic
róar hársvörðinn, endurheimtir þéttleika
hársins og styrk ásamt því að draga úr
hárlosi. Varan er auðveld í notkun.
Regenetic er notað daglega, kvölds og
eða morgna í þurrt eða handklæðaþurrt
hár. Dag frá degi styrkist hárið, viðnám
þess verður betra og það dregur úr
hárlosi. Þetta er tilvalin gjöf fyrir pabba
sem eru í afneitun og reyna að greiða
yfir skallann eða einfaldlega fyrir
kærastann sem er byrjaður að ganga
daglega með húfu því hárið er farið að
þynnast.
Myrká eftir
Arnald
Indriðason
Arnaldur
Indriðason er
einn fremsti
rithöfundur
þjóðarinnar og
nýjasta bók
hans, Myrká,
hefur fengið
góða dóma.
Það er tilvalið
fyrir eiginmann-
inn að geta melt jólasteikina í fríinu og
lesið Myrká í rólegheitunum
Kolbrun@dv.is/Bodi@dv.is
68 Föstudagur 28. nóvember 2008 Jólablað
Þönglabakka 4 - sími 557 4070 - myndval@myndval.is www.myndval.is
Persónuleg jólagjöf
myndadagatal með
myndunum
þínum
Borðdagatal 2.900kr.
Veggdagatal 3.900kr.
Hvað á að vera
í pakkanum?
Ert þú í hópi þeirra sem fá kvíðahnút í magann fyrir hver jól þeg-
ar kemur að því að velja jólagjöf fyrir makann? Ekki örvænta, DV
tók saman frábærar hugmyndir að gjöfum fyrir bæði kynin. Gjaf-
irnar eru af öllum stærðum og gerðum og í ýmsum verðflokkum
og ættir þú því að finna eitthvað við hæfi þíns ektamaka.
Tösku og hanskabúðin • Skólavörðustíg 7 • 101 Reykjavík • Sími 551 5814 • www.th.is
Góðar jólagjafahugmyndir
Mikið úrval af handtöskum, skjalatöskum, dömuveskjum, seðla-og leðurveskjum,
ferðatöskum að ógleymdu hinu landsfræga úrvali af dömu- og herrahönskum.
Líttu við í verslun okkar eða skoðaðu vöruúrvalið á www.th.is.