Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Blaðsíða 53
53Föstudagur 28. nóvember 2008Jólablað
Þegar fólkið setti askana
fyrir kött og hund,
hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lund.
Sjöundi var Hurðaskellir,
- sá var nokkuð klúr,
ef fólkið vildi í rökkrinu
fá sér vænan dúr.
Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó harkalega marraði
hjörunum í.
Skyrjarmur, sá áttundi,
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o´n af sánum
með hnefanum braut.
Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
unz stóð hann á blístri
og stundi og hrein.
Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.
Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.
Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.
Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.
Ellefti var Gáttaþefur,
- aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hlálegt
og heljarstórt nef.
Hann ilm af laufabrauði
upp á heiðar fann,
og léttur, eins og reykur,
á lyktina rann.
Ketkrókur, sá tólfti,
kunni á ýmsu lag. -
Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.
Hann krækti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
stauturinn hans þá.
Þrettándi var Kertasníkir,
- þá var tíðin köld,
ef ekki kom hann síðastur
á aðfangadagskvöld.
Hann elti litlu börnin
sem brostu, glöð og fín,
og trítluðu um bæinn
með tólgarkertin sín.
Á sjálfa jólanóttina,
- sagan hermir frá, -
á strák sínum þeir sátu
og störðu ljósin á.
Svo tíndust þeir í burtu,
- það tók þá frost og snjór.
Á þrettándanum síðasti
sveinstaulinn fór.
Fyrir löngu á fjöllunum
er fennt í þeirra slóð.
- En minningarnar breytast
í myndir og ljóð.
Myndir: Tryggvi Magnússon
HöfundarréTTur Mynda: Þórdís TryggvadóTTir
ungum, Sinterklaas er orðinn að
Santa Claus.
Hreindýr frá LappLandi
Undir lok nítjándu aldar voru flutt
um fimm hundruð hreindýr frá Finn-
mörku til Alaska ásamt nokkrum fjölda
samískra fjölskyldna en Samarnir áttu
að kenna hinum innfæddu Inúítum að
reka hreindýrahjarðir og sjá um þær.
Þetta framtak var að undirlagi hins
norsk-bandaríska Lomen-fyrirtækis
sem ætlaði sér að breyta hrjóstrugum
túndrum Alaska í gróðavænlegt kjöt-
fyrirtæki. Fyrirtækið hóf gríðar-
mikla auglýsingaherferð um
gjörvöll Bandaríkin þar
sem notaður er jóla-
sveinn á sleða sem
dreginn er af hrein-
dýrum og einn
Sami leiðir hvert
hreindýr.
Goð-
sögn-
in varð
til; jóla-
sveinn-
inn á
sleða
dregnum af hreindýrum á leið frá
norðurpólnum. Samarnir hafa að öll-
um líkindum breyst í þá skrautlegu
álfa og hjálparkokka jólasveinsins sem
við þekkjum frá Hollywood. Á fyrri
hluta tuttugustu aldar nýtti Coca-cola
fyrirtækið sér þessa hugmynd í sínum
auglýsingum og hefur gert allar göt-
ur síðan. Disney kvikmyndafyrirtækið
tók þessa hugmynd einnig upp á arma
sína og þessi tvö fyrirtæki hafa líklega
hvað mest mótað ímynd hins vest-
ræna jólasveins eins og við þekkjum
hann í dag.
palli@dv.is
bráðum koma blessuð jólin
MaTgoggar
Askasleikir
Bjúgnakrækir
Flautaþyrill
Flotgleypir
Flotnös
Flotsleikir
Flotsokka
Flórsleikir
Froðusleikir
Kertasleikir
Kertasníkir
Ketkrókur
Kleinusníkir
Lummusníkir
Pottaskefill
Pottasleikir
Pottskerfi
Pönnusleikir
Reykjasvelgur
Rjómasleikir
Skefill
Skófnasleikir
Skyrgámur
Skyrjarmur
Smjörhákur
Syrjusleikir
Þvörusleikir
HrekkjalóMar
Bandaleysir
Faldafeykir
Gangagægir
Gáttaþefur
Gluggagægir
Hurðaskellir
Lunguslettir
Stigaflækir.
Þambarskelfir
Þvengjaleysir
uMHverfis-
fyrirbæri
Bitahængir
Fannafeykir
Giljagaur
Hlöðustrangi
Klettaskora.
Lampaskuggi
Lækjaræsir
Moðbingur
Móamangi.
Pönnuskuggi
Stekkjarstaur
Stúfur?
Svartiljótur
Svellabrjótur
sTrandaÞula
Tífill/Tífall/Tígull
Tútur
Baggi/ Baggalútur
Lútur/Hnútur
Rauður/ Refur
Redda
Sledda
Bjálminn/Bjálfinn
sjálfur
Bjálmans/Bjálfans
barnið
Litli-Pungur
Örvadrumbur.
Litli-Drumbur
Efri-Drumbur/ Stóri-
Drumbur
Drumbur fyrir alla
Mannanöfn
Guttormur
Steingrímur
Þorlákur
uTan flokka
Kattarvali
Stúfur?
Jólasveinar eftir hlutverkum
baggalútur Jólasveinanafnið
Baggalútur hefur aftur fest rætur
meðal þjóðarinnar enda algjörir
jólasveinar þar á ferð.
santa Claus Að hluta til kominn úr
jólahefðum fyrri alda en fullmótaður í
auglýsingaherferðum stórfyrirtækja
vestanhafs. Mynd pHoTos.CoM