Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Page 104

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Page 104
n Ásdís Rán Gunnarsdóttir, sem slegið hefur rækilega í gegn í Búlgaríu að undanförnu, ætlar að gefa sér tíma til að heimsækja heimalandið rétt fyrir jólin. Þar sem Ásdís og eiginmaður hennar eru afar upptekið fólk hafa þau gripið til þess ráðs að bjóða vin- um og vandamönnum til jóla- boðs á skemmtistað í Reykjavík þar sem þau telja sig ekki hafa tíma til að hitta alla. Það verður eflaust múgur og margmenni sem lætur sjá sig í jóla- boði skötuhjúanna sem hafa lifað sann- kölluðu stjörnulífi í Búlgaríu síðustu vikur en Ásdís hef- ur meðal ann- ars setið fyrir í tímaritinu Max, komið fram í sjónvarpsþátt- um og margt fleira. Er í lagi að opna jóladagatalið? Fréttaskot 512 70 70 DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar. „Davíð Oddsson forfallaðist. Enn er mikilvægum upplýsingum haldið leyndum fyrir þjóðinni og ekkert hefur heyrst um það hvernig eigi að greiða upp þau lán sem nú er verið að taka án samþykkis þjóðarinnar. 1. desember fögnum við sjálfstæði okkar sem þjóð- ar, sjálfstæði sem nú er í bráðri hættu.“ Svona hefst yfirlýsing á Facebook-hóp sem ber nafnið „1. des – alhliða að- gerðir.“ Eva Hauksdóttir stofnaði hópinn. Hún segist ekki ætla að sætta sig við ástand- ið í þjóðfélaginu og sitja aðgerðalaus á meðan engin svör fáist. „Ég hvet fólk til að borga ekki af neinum lánum við ríki eða banka 1. des. Ég skora einnig á þá sem ekki þora að ganga alla leið að sýna alla- vega samstöðu þennan eina dag og borga svo 2. des,“ segir Eva og leggur til að fólk leggi niður vinnu á fullveld- isdaginn. Hópurinn mun svo fara að Seðlabankanum og biðja Davíð Odds- son kurteislega um að segja af sér. „Ef við fáum ekki viðunandi svör verður hann borinn út öðrum til viðvörunar,“ segir Eva. Aðspurð hvort hún hræðist aðgerð- ir lögreglunnar segir Eva það ekki vera svo. „Við erum búin að sjá það að lög- reglan er tilbúin til að beita ofbeldi án viðvörunar. En ég hef ekki áhyggjur af því,“ segir Eva og bætir því við að lyg- arnar séu verri en piparúðinn. Heldur jóla- boð á Íslandi Klikkaður í Cocoa Puffs! ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S N A T 34 27 9 09 /2 00 6 Hópur fólks segist munu bera Davíð Oddsson út úr Seðlabankanum á fullveldisdaginn: Ætla að bera davÍð út n Guðni Ágústsson er staddur á Kanarí þessa daga eins og DV hefur greint frá. Síðasta laugar- dag hélt hann ræðu á Klörubar eins og hann hefur gjarnan gert þegar hann er staddur á Kanarí. Á fundinum talaði Guðni um Framsóknarflokkinn en vildi ekki svara spurningum um ástæður þess að hann yfirgaf stjórnmál- in. „Ég ætlaði ekki að spyrja þig að þessu, en af hverju hættirðu?“ spurði eldri kona Guðna sem vísaði í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum. Gamlir framsóknarmenn og andstæðingar úr pólítík skömmuðu Guðna fyrir að hætta í stjórnmál- um en hátt í 300 manns voru á fundinum. Guðni drakk kaffi á meðan á fundinum stóð og virtist að sögn við- staddra standa sig ágætlega. Guðni skammaður á kanarÍ n Nokkrir vel þekktir rokkar- ar úr tónlistarbransanum hafa ákveðið að endurvekja hljóm- sveitina Rolling Stones á Play- ers um helgina og reyna að ná þeim svo vel að ekki verði hægt að greina á milli. Það eru þeir Bjössi og Bjarni úr Mínus, Kalli úr Lights on the Highway, Frosti úr Esju og Birgir Ísleifur úr Mot- ion Boys sem skipa liðið. Bjössi, sem þekktur er fyrir einstak- an trommuleik, kemur fram og syngur í fyrsta skipti en honum hefur ósjaldan verið líkt við sjálf- an Mick Jagger í útliti. Það verður því ekki annars að vænta en að honum muni takast vel upp. upplyftinG Í kreppunni Búin undir allt eva krefst aðgerða.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.